Grikkir vilja nota almannatryggingasjóði til að geta borgað laun

Grísk stjórn­völd vilja nú nota sjóði almanna­trygg­inga­kerf­is­ins til þess að geta borgað opin­berum starfs­mönnum laun og líf­eyri fyrir þennan mánuð.

Í nýlegu við­tali við­ur­kenndi Yanis Varoufakis fjár­mála­ráð­herra að ríkið sæi fram á erf­ið­leika vegna þess að skatt­heimta í jan­úar var ekki eins mikil og gert var ráð fyrir. Hann sagði að til væru pen­ingar til að borga laun og líf­eyri opin­berra starfs­manna, en að annað þyrfti að koma í ljós.

Financial Times segir að stjórn­völd þrýsti nú á ýmsar stofn­anir að færa fé sitt inn í sam­eig­in­legan sjóð undir stjórn Seðla­banka Grikk­lands. Þannig gætu stjórn­völd haft meiri stjórn á fjár­málum rík­is­ins. Gríska ríkið þarf að greiða 1,2 millj­arð evra til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins fyrir 20. mars og svo þarf ríkið 1,5 millj­arð evra til þess að geta borgað laun og líf­eyri.

Talið er að rík­is­stofn­anir eigi allt í allt tvo millj­arða evra í vara­sjóði, sem væri nóg til að koma rík­inu í gegnum næstu mán­uði á meðan verið er að semja um áfram­hald á aðstoð frá Evr­ópu­sam­band­inu, Seðla­banka Evrópu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum.

Með því að nota þetta fé er hins vegar búið að setja almanna­trygg­inga­kerfið í hættu ef ekki tekst að semja. Á meðal þess sem sett yrði í hættu eru atvinnu­leys­is­bætur til þeirra fjöl­mörgu sem eru án vinnu í land­inu.

Financial Times hefur eftir Theodoros Ambatzoglou, sem er yfir­maður vinnu­mála­stofn­unar lands­ins, að það að færa sjóði sé of áhættu­samt skref að taka.

Hóta að gera þýskar eignir upptækar vegna nasista


Þá hefur dóms­mála­ráð­herr­ann Nikos Paraskevopoulos hótað því að gera þýskar eignir upp­tækar til þess að greiða bætur vegna stríðs­glæpa nas­ista í Grikk­landi í seinni heim­styrj­öld­inni. Grískir fjöl­miðlar hafa eftir honum að hann sé reiðu­bú­inn að virkja dóms­úr­skurð frá árinu 2000 þar sem hæsti­réttur Grikk­lands dæmdi afkom­endum 218 ein­stak­linga sem voru myrtir af nas­istum í Distomo árið 1944 bætur.

Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra sagði einnig í gær að rík­is­stjórnin hefði fullan hug á því að sækja stríðs­bætur til Þjóð­verja

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár