Þegar nei-ið náði yfirhöndinni

Halldór Benjamín Þorbergsson fór af árshluta­fundi Heima yfir á sviðið á Austur­velli, þar sem hann gat fagnað viðsnúningi unga fólksins.

Eftir að Öxar við ána hafði hljómað yfir blaktandi fánum á Austur­velli steig Halldór Benjamín Þorbergsson á svið. Halldór var nýkominn af árshluta­fundi fasteigna­félagsins Heima hf, þar sem hann er forstjóri. Hann hafði klukku­stund áður kynnt hluthöfum að hagnaður fyrri helming ársins hefði verið 4,6 milljarðar króna. Þeir náðu að hækka leigu­tekjurnar um rúmlega þrjú prósent umfram verð­bólguna og hagnaðinn um 3,5 milljarða.

Um morguninn greindi Hagstofan frá því að verðlags­vísitalan hækkaði um 0,2 prósent, aðallega vegna hækkunar á „reiknaðri húsaleigu“. 

Þá varð endanlega ljóst að forsendur­brestur var í kjara­samningnum, sams konar samningum og Halldór Benjamín hafði áður unnið að fyrir hönd atvinnu­rekenda í sínu fyrra starfi sem framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins. 

Síðar fór Halldór úr jakka­fötunum og birtist í gallaefni á fundum Áfram Ísland, samtökin gegn aðildar­viðræðum við Evrópu­sambandið sem héldu útifundinn á Austur­velli.

„Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir,“ sagði Halldór Benjamín í hljóð­nemann á sviðinu. Hann taldi tvö til þrjú þúsund manns á Austur­velli. Og þakkaði veðurguðunum. Fólk af öllum aldri fjöl­mennti og sumir þekktustu hægri menn landsins voru mættir, þar á meðal Snorri Másson, vara­formaður Miðflokksins, klæddur í galla­buxur, og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar­flokksins. Þá var Samúel Guðmundsson, sem rökræddi við rabbínann á Akureyri og þætti Piers Morgan um þjóðar­morð gegn Palestínu­mönnum mættur í erma­lausum bol og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­verandi forseti, í jakka­fötum með gyllt bindi ofan á himin­blárri skyrtu undir dökkbláum jakka­fötum.

Fólkið á Aust­ur­velliÁ sama stað og Bús­á­halda­bylt­ingin hafði farið fram sam­ein­að­ist fólkið um að segja „nei“.

Samband og samstaða

Þótt ekki yrði gengið inn í Evrópu­sambandið, var á Austur­velli þennan dag innsiglað samband fólks sem var innbyrðis ólíkara en þjóðir Evrópu. Eða hvað?

Á sviðinu voru tvær ungar hægri konur sem höfðu verið við nám í Banda­ríkjunum. 

Fyrst kom Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, fyrr­verandi vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins, sem var nýlega ráðin í starf í London sem stjórn­andi hjá íslensku gervi­greindar­félagi. Áslaug hafði verið í námsleyfi í New York í Banda­ríkjunum og var þar hluta tímans á launum frá Alþingi, áður en hún sneri aftur og ákvað að hætta á þingi.

Næst var Sigríður María Egils­dóttir. Hún hafði vakið athygli með öflugri framkomu á Ted-fyrir­lestri fyrir nokkrum árum og síðar orðið vara­þingmaður fyrir Viðreisn. Þá var hún hlynnt aðild að Evrópu­sambandinu. Sigríður María er þaulæfð ræðukona og var meðal annars valin „ræðumaður Íslands“ í Morfís-keppni 2013 fyrir Verzló.

„Og þau segjast bara vera forvitin. Þau vilji bara fá að sjá öll gögnin,“ sagði hún í hneykslunartón, með svip eins og fnykur væri í loftinu. „Og hvað gæti verið skynsamlegra? Hvað gæti verið hógværara?“ spurði hún og sneri við blaðinu. „En þetta eru þegar öllu er á botninn hvolft innihalds­laus slagorð samfélags­miðla­pólitíkur nútímans. Mótsagna­kenndur kokteill af frestunar­áráttu og forvitni.“ 

Hikandi lófatak fór af stað, eins og fólk hefði ekki skilið hvað hún sagði. Þar til einhver kallaði „vú“ og klappið liðkaðist.

„Það er ekki nóg að treysta þjóðinni. Þjóðin þarf að geta treyst ríkis­stjórninni,“ sagði Sigríður. 

Það var eins og Sigríður María gæti ekki dulið fyrirlitningu sína gegn sínum fyrri flokki. Margt hefur breyst frá því fyrir tíu árum þegar hún var við hlið Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur á kosninga­auglýsingu Viðreisnar. Eða bara frá því fyrir tveimur árum, þegar hún skrifaði undir aðsenda grein undir titlinum: „lögfræðingur og kjósandi Viðreisnar“.

„Ríkis­stjórnin þarf nefnilega ekki að kíkja í pakkann. Ríkis­stjórnin þarf að kíkja í spegil,“ stig­magnaði Sigríður. 

Sigríður María Egils­dóttirLög­fræð­ing­ur­inn og ræðu­mað­ur­inn fór til starfa í Banda­ríkj­unum eftir að hafa verið vara­þing­maður Við­reisnar. Hún breytti afstöðu sinni.

Snúið við blaðinu

Fjallað var um Áslaugu Örnu og Sigríði Maríu í kosninga­baráttunni árið 2017. Þá „stal“ Áslaug Arna „lúkki“ Sigríðar Maríu, samkvæmt frétt Vísis, í kosninga­myndböndum sínum. Þar hafði Sigríður María sagt: „Umræðan um efnahagsmál á það til að vera flókin. En hún þarf ekkert að vera það.“ Þá mælti hún fyrir „myntráði“, sem myndi lækka vexti á Íslandi strax með því að tengja krónuna við erlenda mynt.

Í dag var þó líkt og Sigríður María hefði fengið stílinn frá Áslaugu Örnu. 

„Þá er vegferðin sóun á tíma, fjármunum og orku, eins og Áslaug minntist á hér áðan,“ sagði Sigríður.

„Þessi pakki. Hann er ekkert innsiglaður. Hann stendur opinn öllum þeim  sem skjóta ekki forvitni sinni á frest,“ sagði hún. „Pakkinn er ekki bara það sem verður samið um. Pakkinn er Evrópu­sambandið sjálft.“

Hún virtist jafn­sannfærð fyrir tíu árum þegar hún sagði í þing­framboði: „Við viljum byrja að kjósa um hvort aðildar­viðræðum verði haldið áfram. Ef þjóðin segir já þá kjósum við seinna um samninginn. Ef sá samningur er góður segjum við já, en ef hann er vondur þá segjum við bara nei. Ég vil sjá samninginn og vita hvernig hann stendur gagnvart sjávar­útveginum og land­búnaðinum.“

Nú mörgum árum seinna hefur hún komist á þá skoðun, eftir að hafa flutt til Banda­ríkjanna, að Evrópu­sambandið bjóði ekki sérlausnir.

„Enda sækir Evrópu­sambandið ekki aðild að Íslandi. Það væri Ísland sem væri að sækja um aðild að Evrópu­sambandinu,“ sagði hún og aftur var klappað varfærnis­lega fram að vúi frá svipuðum stað. 

Hún talaði um að sjónarmið Íslendinga yrðu léttvæg í samhengi 450 milljóna manna og að þeir myndu þurfa að lúta Evrópu­dómstólnum. 

„Það sem ég heyri er þreyta. Það er þreyta á stjórn­málunum, verð­laginu, á vöxtunum,“ sagði hún. Árið 2016 sagði hún: „Þetta er vandi sem við höfum búið við í mörg ár og af því við erum orðin svo pirruð á þessu verður hávært ákall um skyndi­lausnir.“

Núna hafði hún gengið af trúnni.

„Brussel er ekki svar við þreytunni. Brussel er bara … meira. Ef þú ert óánægður með pólitíkusa þá er lausnin ekki fleiri pólitíkusar. Ef þú ert óanægður með kerfi þá er lausnin ekki meira kerfi.“

NethetjaSamúel Guð­munds­son, sem vakti heims­at­hygli með sam­skiptum sínum við árás­ar­gjarnan rabbína á Akureyri, er harður nei-sinni.

Ókeypis pylsur

Halldór Benjamín hrósaði ræðu­mennsku Sigríðar Maríu og kynnti næst: „Það eru ókeypis Bæjarins beztu pylsur, þjóðar­réttur Íslendinga, gjörið svo vel!“

Starfs­fólk Bæjarins beztu raðaði sér upp í bása við Jón Sigurðsson og bauð mann­fjöldanum pylsu og kók. 

Eigandinn og framkvæmda­stjórinn, Baldur Ingi Halldórsson, vakti athygli síðasta vetur þegar hann byrjaði að deila efni til varnar Adolf Hitler á TikTok. „Hann gerði ekkert rangt,“ sagði um Hitler í einu mynd­bandanna, en Baldur sagðist deila mjög mörgu. „Því færri Palestínu­menn í heiminum, því betri hemur,“ sagði hann svo á samfélags­miðlinum X í október.

Eigandinn stofnaði nýlega viðburða­fyrirtæki sem byggt var á grunni þess sem flutti inn kanadíska álits­gjafann og sálfræðinginn Jordan Peterson. Félagið hélt viðburð um loftslags­áhrif með Frosta Sigurjóns­syni, sem afneitar loftslags­breytingum af manna­völdum. Einnig héldu þeir viðburð með Bjór­kastinu, þar sem yfir­lýstur „kynþátta­raunhyggju­maður“ er einn þáttar­stjórnenda, sem er tíðrætt um „hvíta orku“. Nú gaf hann sjálf­stæðum Íslendingum pylsur.

Kjósa
73
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Ríkisstjórnin á skilið sérstök verðlaun fyrir einstakan listgjörning;
    Að stofna til viðburðar sem sameinar öfgahægrið, öfgavinstrið, poppúlisma og rasisma í ein samtök.
    Vona að verðlaunin verði; X-JÁ sigraði.
    3
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Heimar hf. eiga og leigja út atvinnuhúsnæði. Leiguverð atvinnuhúsnæðis er ekki inni í reiknaðri húsaleigu og ekki inni í verðbólgumælingum yfir höfuð. Eingöngu leiguverð íbúðarhúsnæðis er í reiknaðri húsaleigu í vísitölu neysluverðs. Heimar hf. leigja ekki út íbúðarhúsnæði. Með því að benda á þessar staðreyndir er ég ekki að reyna að verja neitt nema sannleikann. Höfundi þessarar greinar virðist ekki vera alveg eins annt um það þegar svokallaðir "auðkýfingar" eiga í hlut. Þetta er birtingarmynd þess hvers vegna miðillinn er stundum uppnefndur "Öfundin".
    -4
    • Stefán Ólafsson skrifaði
      Heimar leigja alls konar fyrirtækjum atvinnuhúsnæði. Þegar sú leiga hækkar meira en verðbólgan almennt þá fer það beint út í verðbólguna.
      23
    • MSB
      Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
      En leiguverð atvinnuhúsnæðis skilar sér væntanlega inní verðlag.
      8
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Þar er um að ræða óbein áhrif, sem önnur atvinnufyrirtæki kjósa mögulega að velta út í verðlag til neytenda. Það er þeirra ákvörðun og þá má gagnrýna það.

      Þið eruð í rauninni að færa rök fyrir afnámi verðtryggingar. Því er ég sammála. ESB myndi engu breyta um það eins og sendifulltrúi ESB staðfesti við mig á fundi á sendiskrifstofunni árið 2012. Þetta er og verður íslenskt innanríkismál. Að blanda þessu saman við umræðu um hugmyndir um ESB aðild er því hreinræktaður strámaður.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið undanfarið ár