Miklar landslagsbreytingar þetta árið í Surtsey

Nú stendur yfir árlegur líf­fræði­leið­angur í Surtsey en sér­staka athygli vöktu lands­lags­breyt­ingar þar sem jarð­vegur hefur skol­ast úr hlíðum og út í haf. Það hefur myndað sand­strendur á aust­an­verðri eynni.

Árlegur líf­fræði­leið­angur stendur nú yfir í Surtsey þar sem unnið er að rann­sóknum og áfram­hald­andi vöktun á líf­ríki eyj­unnar. Einnig verður hreinsað sorp sem skol­ast hefur upp á land. Hópurinn sam­anstendur af níu manns en sá sem oft­ast hefur farið er að koma þangað fimm­tug­asta árið í röð. Þetta kom fram á vef Umhverf­is­stofn­unar í vik­unni.

Þar segir að það sé ekki hver sem er sem fær að fara til Surts­eyjar þar sem eyjan er frið­lýst sem friðland. Friðland er afmarkað land­svæði sem ákveðið hefur verið með lögum að vernda til að mynda út af sjald­gæfum teg­undum líf­vera sem eru í hættu eða til að vernda líf­ríki sem er sér­stak­lega fjöl­breytt eða sér­stætt.

[adspot]

Það eru átta vís­inda­menn og land­vörður sem taka þátt í leið­angrinum í ár en meðal þeirra eru tveir reynslu­boltar. Erling Ólafsson frá Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands er að fara í eynna í fimm­tug­asta árið í röð og Borgþór Magn­ús­son sem einnig starfar hjá Nátt­úru­fræði­stofnun og er með í för hefur einnig farið árlega í tugi ára.

Hópurinn lenti í eyj­unni í fyrra­dag með þyrlu og verður til morg­un­dags­ins, fimmtu­dags. Fram kemur hjá Umhverf­is­stofnun að hóp­ur­inn hafi strax tekið eftir miklum lands­lags­breyt­ingum þar sem jarð­vegur hafi skol­ast úr hlíðum og út í haf. Það hafi myndað sand­strendur á aust­an­verðri eynni. Sand­strendur hafi áður verið algengar í Surtsey en und­an­farin ár hafi eyjan verið stór­grýtt á alla kanta.

Í leið­angrinum í fyrra safn­að­ist mikið rusl á svæð­inu og land­verðir hreins­uðu til dæmis um 80 netakúlur af tang­anum nyrst á eyj­unni. Það þykir þó fram­för þar sem mest hefur verið hreinsað burt 400 kúlur. Almennt er ruslið í Surtsey að mestu tengt veið­ar­færum, að því er fram kemur á vef Umhverf­is­stofn­unar.

Hægt er að fylgj­ast með starf­inu á Instagram-reikn­ingi nátt­úru­vernd­ar­teymis Umhverf­is­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár