Vonast til að hægt verði að klára sóttvarnalögin í næstu viku

„Ég hef vænt­ingar til þess að klára málið í næstu viku,“ segir Ólafur Þór Gunn­ars­son þing­maður VG og vara­for­maður vel­ferð­ar­nefndar. Helga Vala Helga­dóttir for­maður nefnd­ar­innar seg­ist ekki skilja ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um skyldu­skimun á landa­mærum.

Velferðarnefnd Alþingis hefur verið að funda stíft um breytingar á sóttvarnalögum undanfarna daga.
Vel­ferð­ar­nefnd Alþingis hefur verið að funda stíft um breyt­ingar á sótt­varna­lögum und­an­farna daga. Mynd: Bára Huld Beck

Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður Vinstri grænna og 1. vara­for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, gerir sér vonir um að vel­ferð­ar­nefnd nái að ljúka vinnu sinni við breyt­ingar á sótt­varna­lögum í næstu viku og málið geti þá fengið skjóta afgreiðslu þings­ins.

Eins og greint var frá í gær vildi þing­flokkur Sam­fylk­ingar að þing kæmi saman í dag til þess að gera breyt­ingar á sótt­varna­lögum sem myndu skjóta laga­stoðum undir þær hertu aðgerðir á landa­mærum Íslands sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra í ljósi mik­ils upp­gangs far­ald­urs­ins erlendis og nýrra og meira smit­andi afbrigða kór­ónu­veirunnar.[links]

Ekki varð af því, en sam­kvæmt því sem Kjarninn kemst næst voru ein­ungis þing­flokkar Við­reisnar og Flokks fólks­ins fylgj­andi því að þingið kæmi saman í dag til þess að gera slíkar breyt­ingar. Rík­is­stjórnin sam­þykkti hins vegar á fundi sínum í dag að skylda alla í skimun, ef til vill nokkuð óvænt, í ljósi fyrri orða heil­brigð­is­ráð­herra og sótt­varna­læknis um málið.

Sótt­varna­læknir virt­ist búinn að sætta sig við að ekki yrði hægt, sam­kvæmt gild­andi sótt­varna­lögum, að fara þá að skylda alla sem til lands­ins koma í tvö­falda skimun, en það er þó leiðin sem rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í dag.

[adspot]

„Við teljum að lögin séu nægi­lega styðj­andi við þessa ákvörðun vegna þess hve alvar­leg staðan er. Því gríp ég til þessa neyð­ar­úr­ræð­is,“ sagði Svan­dís Svav­ars­dóttir í við­tali í hádeg­is­fréttum Bylgj­unn­ar. 

Tekið skal fram að komu­far­þegar sem geta fram­vísað gildu vott­orði sem sýnir fram á að COVID-19 sýk­ing sé afstaðin eru áfram und­an­þegnir sótt­varna­að­gerðum á landa­mærum og það sama mun gilda um komu­far­þega sem geta fram­vísað gildu bólu­setn­ing­ar­vott­orði.

Þyrfti ekkert að vera að leika einhvern millileik

Ólafur Þór sagði við Kjarnann, áður en rík­is­stjórnin kynnti ákvörðun sína í hádeg­inu, að á fundi nefnd­ar­innar í gær hafi Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar reifað það að leggja fram til­lögu að skjótum laga­breyt­ingum.

Það hefði verið rætt, en hann hefði þar komið þeirri skoðun á fram­færi að betra væri að freista þess að klára það frum­varp sem hefur legið fyrir og nefndin hefur verið að vinna. Vel­ferð­ar­nefndin hélt auka­fund um málið í dag og annar er fyr­ir­hug­aður á mánu­dag.

„Ég hef vænt­ingar til þess að klára málið í næstu viku. Þá þarf ekk­ert að vera að leika ein­hvern svona milli­leik,“ sagði Ólafur Þór.

End­ur­skoð­unin sem nú stendur yfir á sótt­varna­lögum er til þess að bregð­ast við þeim athuga­semdum sem komu fram í álits­gerð Páls Hreins­sonar um vald­heim­ildir sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­ráð­herra til opin­berra sótt­varna­ráð­staf­ana og ætlað að skerpa á þeim.

Óviss um að lagastoð sé fyrir ákvörðun ríkisstjórnarinnar

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar seg­ist ekki skilja neitt í þeirri ákvörðun sem rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í dag. „Bara alls ekki neitt,“ skrifar Helga Vala á Facebook.

„Hér sitjum við í vel­ferð­ar­nefnd sveitt með ýmsum lög­spek­ingum að ræða stjórn­ar­skrá, með­al­hóf og mik­il­vægi þess að ákvarð­anir stjórn­valda hafi laga­stoð og þá ger­ist þetta? Hvenær gerð­ist það að ekki er þörf á skýrri laga­heim­ild til svona tak­mörk­unar? Er þetta vegna þess að rík­is­stjórnin treystir sér ekki til að fara með þetta fyrir Alþingi?“ skrifar hún.

Hvað ef fólk neitar skimun?

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fer yfir ákvarð­anir rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi tak­mark­anir á landa­mærum á Facebook í dag. Þar segir hún að því miður séu dæmi um að fólk hafi brotið reglur um sótt­kví og því verði tvö­föld skimun með fimm daga sótt­kví fram­vegis skylda.

„Ef fólk neitar slíku mun hvert slíkt dæmi verða skoðað og brugð­ist við með við­eig­andi hætti,“ skrifar for­sæt­is­ráð­herra, en útskýrir ekki frekar með hvaða hætti yrði brugð­ist við.

Í sömu færslu segir for­sæt­is­ráð­herra ljóst að ekki séu laga­legar heim­ildir til að skylda fólk í far­sótt­ar­hús. Í anda með­al­hófs hafi stjórn­völdum þótt mik­il­vægt að bjóða upp á val­kosti en dæmin um brot á sótt­kví segi rík­is­stjórn­inni að þetta skref sé „nauð­syn­legt til að tryggja enn betur sótt­varnir.“

Innáskiptingar hjá Sjálfstæðisflokki

Vel­ferð­ar­nefnd hefur rætt um breyt­ingar á sótt­varna­lögum núna í upp­hafi árs, á fimm fundum. Báðir full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks í nefnd­inni, Ásmundur Frið­riks­son og Vil­hjálmur Árnason, hafa verið fjar­ver­andi á nokkrum þeirra.

Í stað þeirra hafa Sigríður Á. Andersen og Birgir Ármanns­son þing­flokks­for­maður komið inn í nefnd­ina. Bryndís Har­alds­dóttir er vara­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í nefnd­inni en hún hefur ekki verið kölluð inn í for­föllum þeirra Ásmundar og Vil­hjálms.

Vil­hjálmur segir við Kjarnann að það sé ekki þannig að það sé alltaf farið eftir því hver er vara­maður flokks­ins í nefnd­inni þegar senda þurfi afleys­inga­fólk á nefnd­ar­fundi. Það sé ein­fald­lega spurt hvort ein­hver geti hlaupið í skarðið og þá stígi þeir sem hafi áhuga á því fram og sitji fund­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár