Trump á Twitter: „WOW, Comey is a leaker!“

Fyrstu við­brögð for­seta Banda­ríkj­anna komu á Twitter í morgun.

Donald Trump og James Comey.
Donald Trump og James Comey. Mynd: EPA

Fyrstu við­brögð Donalds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, við yfir­heyrslum leyni­þjón­ustu­nefndar Banda­ríkja­þings yfir James Comey, fyrr­ver­andi for­stjóra banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar FBI, í gær komu á Twitter í morgun.

Trump seg­ist þar alltaf hafa verið í fullum rétti „þrátt fyrir svo margar falskar stað­hæf­ingar og lygar“. Donald Trump rak James Comey úr stöðu for­stjóra FBI í byrjun maí og skýrði brot­vikn­ing­una með yfir­lýs­ingum um að Comey hafi staðið sig illa í starfi sínu.

Í vitn­is­burði Comey fyrir banda­ríska þing­inu í gær kom fram að þó að Trump hafi aldrei bein­línis farið fram á að FBI myndi hætta rann­sókn sinni á afskiptum Rússa af for­seta­kosn­ing­unum síð­ast­liðið haust og óeðli­legum tengslum sam­starf­sam­anna Trumps við rúss­neska emb­ætt­is­menn, þá hafi for­set­inn gefið það sterkt í skyn á einka­fundum sínum með Comey.

[links]Comey sagð­ist í yfir­heyrsl­unum hafa byrjað að skrá sam­töl sín við for­set­ann hjá sér, enda þótti hann fund­irnir vera óeðli­legir og þess eðlis að í fram­tíð­inni gæti hann þurft að verja sig og lög­gæslu­stofn­un­ina sem hann starf­aði fyrir gegn árásum úr Hvíta hús­inu.

Donald Trump virð­ist vera að bregð­ast við umfjöllun morg­un­þátt­ar­ins Fox and Friends á Fox News-sjón­varps­stöð­inni banda­rísku þar sem fjallað var um yfir­heyrsl­una yfir Comey.

Í lokin heldur Trump á lofti þeirri gagn­rýni sem kom fram í gær af hálfu tals­manna Hvíta húss­ins sem und­ir­strikar að Comey lak minn­is­blöðum sínum til fjöl­miðla, eftir að Trump hót­aði því að gera hljóð­upp­tökur af einka­fundum þeirra tveggja opin­berar.

„...and WOW, Comey is a lea­ker!“

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár