Hefur engar efasemdir um að Rússar skiptu sér af kosningunum

Trump bað Comey aldrei bein­línis um að FBI myndi hætta rann­sókn á afskiptum Rússa. Manngerð Trumps knúði Comey til þess að skrifa ítar­leg minn­is­blöð eftir fundi þeirra.

James Comey var forstjóri FBI þar til Donald Trump lét hann fara í byrjun maí.
James Comey var for­stjóri FBI þar til Donald Trump lét hann fara í byrjun maí. Mynd: EPA

James Comey, fyrr­ver­andi for­stjóri FBI sem Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna rak 9. maí síð­ast­lið­inn, seg­ist ekki hafa neinar efa­semdir um að rúss­nesk stjórn­völd hafi skipt sér af og haft áhrif á for­seta­kosn­ing­arnar vest­an­hafs í fyrra.

[links]Þrátt fyrir afskipti Rússa seg­ist Comey vera sann­færður um að engum atkvæðum í kosn­ing­unum hafi verið breytt.

Þessu svar­aði hann þegar hann var spurður í yfir­heyrslu leyni­þjón­ustu­nefndar banda­ríska þings­ins sem stendur nú yfir í Washington DC.

Donald Trump óskaði aldrei bein­línis eftir því að rann­sóknin á afskiptum Rússa yrði hætt, segir Comey. Trump sagð­ist hins vegar „vona“ að hægt væri að láta málið niður falla. Comey segir það ekki vera sitt að ákvarða hvort for­set­inn hafi brotið lög.

[adspot]

Hvað hefur komið fram

  • Comey segir brjóst­vit sitt hafa sagt honum að Donald Trump hafi viljað fá eitt­hvað gegn því að Comey fengi að halda starfi sínu sem for­stjóri FBI. Comey og Trump fund­uðu níu sinnum síðan Trump var kjör­inn for­seti í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Comey telur það hafa verið óvenju­lega margir fundir, enda hafði hann aðeins hitt Barack Obama mun sjaldnar á mun lengra tíma­bili.
  • For­stjór­inn fyrr­ver­andi seg­ist hafa byrjað að skrifa ítar­legar lýs­ingar á fundum sínum með Donald Trump eftir að hafa hitt hann í fyrsta sinn. Spurður hvers vegna hann taldi það hafa verið mik­il­vægt svarði hann að mann­gerð Trumps auk fleiri óvenju­legra hluta hafi gert það að verkum. Comey seg­ist ekki hafa skrifað minn­is­blöð um aðra fundi með yfir­mönnum sínum og að hann hafi aldrei gert það áður, hvorki með George W. Bush eða Barack Obama.
  • Comey seg­ist hafa ritað minn­is­blöð sín vegna þess að hann hafi vitað að hann þyrfti ein­hvern tíma að verja sjálfan sig og stofn­un­ina sem hann starf­aði fyrir.
  • Donald Trump sjálfur var aldrei til rann­sóknar á meðan Comey var for­stjóri FBI.
  • Comey seg­ist hafa hafa haft áhyggjur af því að Trump myndi ljúga um efni einka­funda þeirra tveggja.
  • Comey seg­ist ekki vita hvers vegna hann var rek­inn úr stöðu sinni. Hann seg­ist halda að það hafi verið vegna rann­sóknar FBI á afskiptum Rússa.
  • Comey seg­ist hafa skilið ósk Trumps um að FBI myndi hætta rann­sókn á Michael Flynn, fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa, sem skipun. Skip­un­inni fylgdi hann ekki eftir.

Yfir­heyrslan stendur enn yfir. Kjarninn mun fjalla um yfir­heyrsl­una og eft­ir­mála hennar í dag og á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár