Útganga Bretlands úr ESB hefst formlega 29. mars

Theresa May mun virkja 50. grein Lissa­bonsátt­mál­ans þann 29. mars næst­kom­andi, og þá geta form­legar samn­inga­við­ræður um útgöngu rík­is­ins úr ESB haf­ist. Þeim verður að ljúka á tveimur árum.

Theresa May og Angela Merkel.
Theresa May og Angela Merkel. Mynd: EPA

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, mun virkja 50. grein Lissa­bonsátt­mál­ans þann 29. mars næst­kom­andi og með því hefja form­lega útgöngu­ferli rík­is­ins úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta hefur tals­maður hennar nú stað­fest.

[links]Áður hefur verið greint frá því að hún myndi virkja ákvæðið form­lega fyrir lok mars­mán­aðar. May mun senda bréf til for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, Donald Tusk, þar sem þetta verður til­kynnt. Hún mun einnig flytja breska þing­inu skýrslu um málið þennan dag, sam­kvæmt Guardian.

Þegar búið er að virkja 50. grein­ina geta samn­inga­við­ræður um útgöngu Bret­lands form­lega haf­ist, en virkjun grein­ar­innar er eina lög­lega leiðin fyrir ríki til þess að draga sig út úr sam­band­inu. Þegar greinin hefur verið virkjuð á að ljúka samn­ingum um útgöngu innan tveggja ára, en flestir telja þó ólík­legt að það náist.

Hægt er að fram­lengja þennan samn­ings­tíma en það verður aðeins gert með sam­hljóma ákvörðun Evr­ópu­ráðs­ins. Hvert ein­asta aðild­ar­ríki hefur einnig neit­un­ar­vald þegar kemur að sam­komu­lag­inu um útgöngu, ekki ein­göngu Bretland. Þjóðþing allra ríkj­anna munu koma til með að kjósa um útgöngu­samn­ing­inn þegar hann liggur fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár