Borgin mun krefjast milljarða í skaðabætur ef frumvarp um skipulagsvald fer í gegn

Reykja­vík­ur­borg mun leita réttar síns fyrir dóm­stólum og krefj­ast skaða­bóta fyrir eigna­upp­töku ef frum­varp Hösk­uldar Þór­halls­sonar og ann­arra þing­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins um að flytja skipu­lags­vald flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri frá borg­inni til rík­is­ins verður að lögum. „Ljóst er að afleitt tjón vegna sam­þykktar frum­varps­ins getur varðað tugum eða hund­ruðum millj­arða króna.“

Þetta kemur fram í umsögn borg­ar­innar um frum­varpið, en eins og Kjarninn greindi frá í morgun var frum­varpið afgreitt úr umhverfis- og skipu­lags­nefnd í morgun.

Borgin er mjög harð­orð í garð frum­varps­ins, segir það fela í sér frek­legt inn­grip í skipu­lags­vald sveit­ar­fé­laga og það sé for­dæma­laust.

„Það er álit Reykja­vík­ur­borgar að það sé laga­lega ill­fært og jafn­vel ómögu­legt að setja almenn lög, sem ganga m.a. gegn stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins, til að ríkið nái yfir­ráðum yfir flug­vall­ar­svæð­inu. Má nefna að Reykja­vík­ur­borg á um 60% þess lands sem er undir flug­vell­inum í Vatns­mýri og að upp­fylltum almennum skil­yrðum í íslenskum skaða­bóta­rétti blasir við að íslenska ríkið muni valda sveit­ar­fé­lag­inu tjóni með hátt­semi sinni við laga­setn­ing­una, í frum­varp­inu felst því ekk­ert annað en eigna­upp­taka lands,“ segir í umsögn­inni. Þá vísar borgin til meg­in­reglu um bóta­skyldu, þar sem fram kemur að sá sem sýnt getur fram á að hann verði fyrir tjóni vegna rýrn­unar á verð­mæti og skertum nýt­ing­ar­mögu­leikum af þessum sökum eigi rétt á bótum. Tjónið verði sem fyrr segir tugir, eða hund­ruð millj­arða.

„Reykja­vík­ur­borg vill enn fremur und­ir­strika að stefna borg­ar­innar um byggð í Vatns­mýri hefur nú legið fyrir í yfir 10 ár. Má ljóst vera að með frum­varp­inu er ríkið að koma sér hjá því að upp­fylla samn­ings­skuld­bind­ingar sínar varð­andi fram­tíð flug­vall­ar­ins. Reykja­vík­ur­borg telur frum­varpið for­dæma­laust inn­grip í sjálf­stjórn­ar­rétt sveit­ar­fé­lags­ins og skipu­lags­vald.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár