Frumvarp um að færa skipulagsvald yfir Reykjavíkurflugvelli til ríkisins afgreitt úr nefnd

Umhverfis- og sam­göngu­nefnd afgreiddi í morgun þing­manna­mál sem felur í sér að skipu­lags­vald sé tekið af Reykja­vík­ur­borg á Reykja­vík­ur­flug­velli og fært til rík­is­ins. Á fundi nefnd­ar­innar í morgun var frum­varp­inu breytt með þeim hætti að skipu­lags­vald yfir flug­völl­unum á Akureyri og Egils­stöðum verður líka fært frá sveit­ar­fé­lögum til rík­is­ins. Málið var afgreitt út úr nefnd­inni í morgun þrátt fyrir mikla and­stöðu minni­hluta hennar. Allur þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins stendur á bak­við frum­varpið og fyrstu flutn­ings­maður þess er Hösk­uldur Þór­halls­son. Hann er einnig for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna sem situr í nefnd­inni, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook: "Rétt í þessu var afgreitt út úr umhverfis- og sam­göngu­nefnd þings­ins for­kast­an­legt þing­mál þar sem gert er ráð fyrir því að skipu­lags­valdið sé tekið af Reykja­vík­ur­borg vegna flug­vall­ar­ins. Málið tók svo stór­tækum breyt­ingum eftir að fundur hófst nú í morgun og Egils­staða­flug­velli og Akur­eyr­ar­flug­velli bætt við og þar með skipu­lags­valdi þeirra sveit­ar­fé­laga. Í frum­varp­inu var gert ráð fyrir því að skipu­lags­valdið að þessu leyti færð­ist til Alþingis en breyt­ingin sem var kynnt nefnd­ar­mönnum eftir að fundur hófst gerir ráð fyrir því að skipu­lags­valdið sé á hendi inn­an­rík­is­ráð­herra. Minni­hlut­inn, við Katrín Júl­í­us­dóttir og Róbert Marshall, mót­mæltum máls­með­ferð­inni harð­lega. Við­kom­andi sveit­ar­fé­lög fengu ekki að koma á fund nefnd­ar­innar og heldur ekki ráðu­neyti inn­an­rík­is­mála og skipu­lags­mála sem er umhverf­is­ráðu­neytið. Málið var loks tekið út með liðs­auka sem sóttur var til ann­arra nefnda og hefur ekki tekið þátt í umfjöllun um málið hingað til. Hér eru á ferð­inni for­kast­an­leg vinnu­brögð og yfir­gangur sem er for­manni nefnd­ar­innar og meiri­hlut­anum til skammar."

Katrín Júl­í­us­dóttir segir einnig frá mál­inu á Facebook-síðu sinni og seg­ist hafa haldið að stjórn­ar­meiri­hlut­inn gæti ekki komið henni á óvart lengur. „En þá ger­ist það að mál Hösk­uldar Þór­halls­sonar um að taka skipu­lags­valdið af Reykja­vík þegar kemur að flug­vell­inum er rifið út úr nefnd, ger­breytt og nú er skipu­lags­valdið einnig tekið af Akureyri og Egils­stöðum eða þeim sveit­ar­fé­lögum sem eru með milli­landa­flug­velli. Fengum málið sent breytt kl. 8.13. 10 mín­útum síðar er það rifið út úr nefnd gegn vilja okkar.“ Hún segir að hún, Svandís Svav­ars­dóttir og Róbert Marshall, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, hafi óskað eftir því að þessi sveit­ar­fé­lög fengju að koma fyrir nefnd­ina og ræða við hana um málið en því hafi verið hafnað.
„Sama hvað fólki kann að finn­ast um stað­setn­ingu flug­vall­ar­ins í Reykja­vík þá hlýtur okkur öllum að vera annt um vönduð vinnu­brögð og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt sveit­ar­fé­laga.“





Ég hélt að þessi stjórn­ar­meiri­hluti gæti ekki komið mér á óvart lengur. En þá ger­ist það að mál Hösk­uldar Þór­halls­sonar...

Posted by Katrín Júl­í­us­dóttir on Monday, June 1, 2015

Róbert Marshall, þing­maður Bjartrar fram­tíðar sem situr einnig í nefnd­inni, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að póli­tískt reg­in­hneyksli hafi átt sér stað umhverfis- og sam­göngu­nefnd. "Nógu arfa­slakt var mál for­manns­ins Hösk­uldar Þór­halls­sonar um að færa skipu­lags­mál Reykja­vík­ur­flug­vallar undir Alþingi en meiri­hluti nefnd­ar­innar hefur nú lagt til breyt­ingar á mál­inu á síð­ustu metr­unum (á síð­asta fundi um málið) þannig að skipu­lags­vald yfir öllum flug­völlum sem geta sinnt milli­landa­flugi er tekið af m.a. sveit­ar­fé­lög­unum á Akureyri og Egils­stöðum. Án þess að þeim sé gefið færi á umsögnum eða and­mælum. Málið var afgreitt út úr nefnd­inni núna á níunda tím­anum við hávær mót­mæli okkar Svan­dísar Svav­ars­dóttir og Katrínar Júl­í­us­dóttir."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár