Seðlabankanum gert að greiða þrjár milljónir fyrir ólögmæta uppsögn manns sem braut lög

Fyrrum starfs­manni Seðla­banka Íslands, sem höfð­aði mál á hendur bank­anum vegna upp­sagnar eftir að upp komst um umsvifa­miklar fjár­fest­ingar hans á árunum 2007 og 2008, voru í dag dæmdar þrjár millj­ónir króna í bætur í Hæsta­rétti. Seðla­bank­inn hafði verið sýkn­aður af öllum kröfum manns­ins í hér­aðs­dómi en Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að mað­ur­inn ætti að fá bætur vegna ólög­mætrar upp­sagnar, þrátt fyrir að hann hefði brotið af sér í starfi. Seðla­bank­anum var auk þess gert að greiða mann­inum tvær millj­ónir króna í máls­kostnað. Ástæða þess að ekki mátti segja mann­inum upp vegna brot­anna var sú að Seðla­bank­inn hefði fyrst átt að áminna hann.

Einn dóm­ari, Ólafur Börkur Þor­valds­son, skil­aði sér­at­kvæði og taldi að stað­festa ætti hér­aðs­dóm. Að hans mati hefði Seðla­bank­inn mátt segja mann­inum upp vegna brota hans.

Félag í eigu manns­ins, Hall­gríms Ólafs­sonar, hafði stóð í umsvifa­miklum fjár­fest­ingum með hluta­bréf, fram­virka samn­inga og gjald­miðla á árunum 2007 og 2008, á sama tíma og hann átti að hafa haft aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum innan bank­ans. Upp komst um umsvif við­skipta félags manns­ins sum­arið 2013 og var honum sagt upp störfum nokkrum mán­uðum síðar.

Hann höfð­aði mál á hendur Seðla­bank­anum vegna upp­sagn­ar­innar sem hann tap­aði í hér­aðs­dómi í des­em­ber 2014. Starfs­menn Seðla­bank­ans sem báru vitni í mál­inu sögði mann­inn hafa brotið gróf­lega trúnað, brotið gegn lögum um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins og brotið gegn reglum Seðla­bank­ans um heim­ild starfs­manna hans til setu í stjórnum stofn­ana og atvinnu­fyr­ir­tækja.

Maðurinn áfrýj­aði til Hæsta­réttar og hann dæmdi í dag að Seðla­bank­anum hefði verið óheim­ilt að segja mann­inum upp, þrátt fyrir að hann hefði brotið af sér í starfi. Í dómi Hæsta­réttar segir: "Við mat á fjár­hæð skaða­bóta var talið að taka þyrfti til­lit til þess að starfs­ör­yggi H hjá S sætti tak­mörk­unum, eins og starfs­ör­yggi ann­arra hjá íslenska rík­inu eða stofn­unum þess, sbr. 44. gr. fram­an­greindra laga, og að H hefði brotið af sér í starfi, þótt brotin hefðu ekki verið svo alvar­leg að rétt­lætt hefði fyr­ir­vara­lausa upp­sögn. Bæri hann því sjálfur nokkra ábyrgð á tjóni sínu. Með hlið­sjón af fram­an­greindu var S dæmt til að greiða H skaða­bætur sem metnar voru að álitum 3.000.000 krónur."

Maðurinn hafði kraf­ist 19,7 millj­óna króna frá Seðla­bank­anum í skaða­bætur fyrir hér­aðs­dómi.

Samstarfsmenn höfðu ekki hugmynd


Mála­vextir eru þeir að Hall­grími var sagt upp störfum í Seðla­bank­anum árið 2013. Upp­sögnin átti sér stað eftir að upp komst að félag sem mað­ur­inn átti 30 pró­sent hlut í hefði farið út í fjár­fest­ingar á árinu 2007, meðal ann­ars á verð­bréfa­mark­aði, með gjald­eyri og fram­virka samn­inga um kaup á hluta­bréfum. Samkvæmt árs­reikn­ingi átti félagið, Skólabrú hf., eignir upp á 120,5 millj­ónir króna í lok árs 2007.

Félagið hafði áður átt fast­eign sem var seld haustið 2007 og sölu­á­góð­inn not­aður í ofan­greindar fjár­fest­ingar.

Hall­grímur hélt því fram fyrir hér­aðs­dómi að hann, sem starfs­maður Seðla­bank­ans, ekki haft neinn aðgang að mark­aðs­upp­lýs­ingum umfram almenn­ing og hvað þá að hann hafi búið yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum. Starfs­menn Seðla­bank­ans, sem unnu með honum og gáfu vitna­skýrslur við aðal­með­ferð fyrir hér­aðs­dómi, báru allir að hann hefði haft aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem engan veg­inn hafi getað sam­rýmst því að hann væri jafn­framt fram­kvæmda­stjóri félags sem hafi verið í umsvifa­miklum fjár­fest­ingum. Enginn þeirra virð­ist hafa hafa haft hug­mynd um fjár­fest­inga­um­svif Hall­gríms fyrr en í sum­arið 2013.

Næsti yfir­maður hans sagði til dæmis fyrir dómi að „Meðal ann­ars hafi Skólabrú ehf., í við­skiptum við Lands­bank­ann í ágúst 2008, gert fram­virkan hluta­fjár­samn­ing um kaup í fyr­ir­tæk­inu Atlantic petr­olium, samn­ing­ur­inn hafi verið í dönskum krónum og sett hafi verið að hand­veði inni­stæða á evru­gjald­eyr­is­reikn­ingi. Á sama tíma hafi stefn­andi verið að vinna á gjald­eyr­is­borði stefnda sem sé ótrú­legt. Því hafi stefn­andi brotið gróf­lega trúnað gagn­vart sér sem næsta yfir­manni sínum“.

Umfang upplýst sumarið 2013


Aðal­lög­fræð­ingur Seðla­bank­ans komst að aðkomu manns­ins að félag­inu Skólabrú ehf. þegar hún var að vinna að frum­inn­herj­a­lista Seðla­bank­ans á árinu 2012. Hann var í kjöl­farið beð­inn um að gera Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra og reglu­verði bank­ans grein fyrir félag­inu og starf­semi þess.

Kom þá í ljós að Skólabrú hf. hefði farið út í fjár­fest­ingar í hluta­bréfum, með gjald­eyri og fram­virka samn­inga, eftir að hafa selt fast­eign sem það átti á árinu 2007. Þar kom einnig fram að félagið ætti í deilum við slita­stjórn Lands­bank­ans og Virðingu vegna fjár­fest­inga sinna og að lík­legt væri að málið myndi enda fyrir dóm­stólum. Hall­grímur sagði sig í kjöl­farið úr stjórn félags­ins eftir að seðla­banka­stjóri hafði hafnað bón hans um að sitja áfram í henni.

Í júní 2013 féll dómur í máli Skóla­brúar hf. gegn Virðingu og var sá dómur birtur á vef dóm­stóla lands­ins. Málið snérist um að Skólabrú taldi Virðingu hafa farið út fyrir fjár­fest­inga­heim­ildir sínar með fé félags­ins og krafð­ist skaða­bóta. Virðing var sýknuð af kröfu félags­ins.

Í dómnum kemur hins vegar ýmis­legt athygl­is­vert fram sem olli áhyggjum innan Seðla­bank­ans. Þar segir meðal ann­ars að Skólabrú hafi fjár­fest í hluta­bréfum og fram­virkum samn­ingum í félögum á borð við Atorku, Kaup­þingi, Straumi-Burðarás og Existu. Í grein­ar­gerð Skóla­brúar í mál­inu segir að Hall­grímur hafi sent tölvu­póst í jan­úar 2008 þar sem hann vildi að öll sam­skipti Virð­ingar við Skólabrú ættu að fara fram við stjórn­ar­for­mann Skóla­brúar, ekki fram­kvæmda­stjóra, sem var Hall­grímur sjálfur. Í dómnum segir að sú skýr­ing hafi verið gefin á fyr­ir­komu­lag­inu „að vegna starfa Hall­gríms í Seðla­banka Íslands gæti hann ekki af „aug­ljósum ástæðum“ staðið í sím­tölum eða kaupum á verð­bréfum í vinnu­tíma[..] Hall­grímur hafi þó oft haft sam­band við […] í far­síma hans“.

Í grein­ar­gerð­inni kemur líka fram að Hall­grímur hafi sjálfur hringt í þann starfs­mann Virð­ingar sem sá um fjár­fest­ingar fyrir Skólabrú til þess að óska „fyrir hönd stefn­anda eftir kaupum á hluta­bréfum í Kaup­þingi banka hf. og að jafn­framt yrðu gerðir fram­virkir samn­ingar um kaup á hluta­bréfum í Exista hf. og Straumi-Burða­r­ási hf.“. Á árinu 2008 hafi Hall­grímur síðan verið í beinum sam­skiptum fyrir hönd Skóla­brúar við þáver­andi starfs­mann Virð­ingar um fjár­fest­ingar Skóla­brúar.

Sagt upp í október 2013


Dómar í málum Skóla­brúar gegn þrota­búi Lands­bank­ans og Virðingu gengu báðir á fyrri hluta árs­ins 2013 og voru báðir birtir opin­ber­lega. Í sýknu­dómnum í skaða­bóta­máli manns­ins gegn Seðla­bank­anum í hér­aðs­dómi segir: „Urðu dómar þessir til­efni þess að stefn­andi var kall­aður á fund seðla­banka­stjóra þann 28. júní 2013 og honum afhent bréf und­ir­ritað af seðla­banka­stjóra og reglu­verði bank­ans. Í bréf­inu kemur fram að þann 10. júní 2013 hafi gengið dómur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í mál­inu E-198/2012: Skólabrú ehf. gegn Virðingu hf. og dóm­ur­inn birtur á vef­síðu hér­aðs­dóms­ins þann 26. júní sl. Í dóm­inum komi fram upp­lýs­ingar um aðkomu stefn­anda að verð­bréfa-, gjald­eyris- og afleiðu­við­skiptum Skóla­brúar á árunum 2007 og 2008, sem fram­kvæmda­stjóri Skóla­brúar ehf. og jafn­framt starfs­maður Seðla­banka Íslands á sama tíma.

Vísað var síðan til 5. gr. reglna stefnda nr. 831/2002 um með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga og verð­bréfa- og gjald­eyr­is­við­skipti starfs­manna. Þess var óskað af hálfu stefnda að stefn­andi tæki sér tíma­bundið leyfi frá störfum á launum frá 28. júní 2013 á meðan athugað væri hvort stefn­andi hefði gerst brot­legur í starfi við lög og starfs­reglur stefnda. Síðan fór í gang rann­sókn af hálfu stefnda á mál­inu og var m.a. aflað gagna frá utan­að­kom­andi aðilum sem stefn­andi hafði veitt heim­ild til að afla gagna frá.“

Í októ­ber 2013 komst Seðla­bank­inn að þeirri nið­ur­stöðu að Hall­grímur hefði brotið gróf­lega gegn lögum um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins sem og gegn reglum Seðla­bank­ans um heim­ild starfs­manna hans til setu í stjórnum stofn­ana og atvinnu­fyr­ir­tækja. Eftir að honum hafði verið gefið tæki­færi til að and­mæla var Hall­grími sagt upp störfum þann 23. októ­ber 2013 það sem það væri mat Seðla­bank­ans að hann hefði „brotið gróf­lega gegn trún­að­ar­skyldum í starfi sínu“.

Hall­grímur sætti sig ekki við þessa nið­ur­stöðu og höfð­aði skaða­bóta­mál. Upp­haf­lega fór hann fram á 47,6 milj­ónir króna í miska­bætur. Við upp­haf aðal­með­ferðar fyrir hér­aðs­dómi var sú krafa síðan lækkuð niður í 19,7 milj­ónir króna. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafn­aði þeirri kröfu í des­em­ber 2014 og áfrýj­aði Hall­grímur þeirri nið­ur­stöðu til Hæsta­réttar, sem birti dóm sinn í dag.

Hefði átt að áminna manninn fyrst


Í dómi Hæsta­réttar segir að Seðla­bank­inn hafi borið fyrir sig að upp­sögn manns­ins hafi verið reist á þremur atriðum, sem falið hafi í sér brot hans á starfs­skyldum sínum og hann hafi fyrst fengið vit­neskju um á miðju ári 2013. "Í fyrsta lagi gjald­eyr­is­við­skipti áfrýj­anda fyrir hönd Skóla­brúar ehf. Í mál­inu er upp­lýst að þau fólust í kaupum á evrum að jafn­virði 20.000.000 krónur á árinu 2007 þegar til stóð að félagið tæki þátt í fast­eigna­kaupum í Póllandi. Fyrir liggur að af þeim kaupum varð ekki og að félagið hagn­að­ist veru­lega á því að eiga þennan erlenda gjald­eyri. Þá liggur fyrir að félagið fékk erlendan gjald­eyri vegna sölu á hlutafé og var hann lagður inn á reikn­ing þess. Í öðru lagi bendir stefndi á að komið hafi í ljós að Skólabrú ehf. hafi gert fram­virkan samn­ing um kaup á hlutafé og er upp­lýst að um var að ræða einn slíkan samn­ing um kaup á hlutafé í erlendu félagi. Í þriðja lagi hafi komið í ljós að áfrýj­andi hafi í raun verið í fyr­ir­svari fyrir Skólabrú ehf. í þeim við­skiptum sem félagið stund­aði frá árinu 2007."

Meiri­hluti Hæsta­réttar fellst á það með Seðla­bank­anum að fram­an­greind gjald­eyr­is­við­skipti og fyr­ir­svar áfrýj­anda fyrir Skólabrú ehf. hafi verið nýjar upp­lýs­ingar, sem bank­anum hafi ekki mátt vera að fullu kunnar á árinu 2012, og að þessi atriði hafi falið í sér brot áfrýj­anda á starfs­skyldum hans. Hann fell­st­því á að mað­ur­inn hafi brotið gegn lögum um rétt­indi og skyldur opin­bera starfs­manna með því að eiga þau gjald­eyr­is­við­skipti sem um ræðir og með því að upp­lýsa ekki nægi­lega um fyr­ir­svar sitt fyrir félagið. Í dómnum segir hins vegar einnig: "Brot þessi, sem felld verða undir 21. gr. lag­anna, veittu stefnda ekki rétt til þess að segja áfrýj­anda upp störfum á grund­velli 43. gr. þeirra án und­an­geng­innar áminn­ingar, sbr. 44. gr. þeirra. Verður því fall­ist á með áfrýj­anda að upp­sögnin hafi verið ólög­mæt og hann eigi af þeim sökum rétt til skaða­bóta úr hendi stefnda."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár