Vonaðist eftir skýrara svari um endursendingar flóttafólks til Grikklands

Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata segir öfug­snúið að Ísland sendi fólk sem hefur stöðu flótta­fólks í Grikk­landi aftur þangað, á sama tíma og boðað hefur verið að taka eigi við sýr­lenskum flótta­mönnum frá Grikk­landi.

Þingmaður Pírata spurði dómsmálaráðherra út í pólitíska stefnumörkun ríkisstjórnarinnar varðandi endursendingar flóttafólks til Grikklands.
Þing­maður Pírata spurði dóms­mála­ráð­herra út í póli­tíska stefnu­mörkun rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi end­ur­send­ingar flótta­fólks til Grikk­lands. Mynd: Bára Huld Beck

Gildandi lög gera hvorki ráð fyrir að dóms­mála­ráðu­neytið gefi Útlend­inga­stofnun né kæru­nefnd útlend­inga­mála almennt til­mæli eða sér­stök fyr­ir­mæli um úrlausn ein­stakra mála. Dóms­mála­ráðu­neytið hefur heldur ekki það hlut­verk að meta hvort aðstæður í ein­stökum ríkjum séu slíkar að ófor­svar­an­legt sé að vísa fólki þangað.

Þetta segir í svari Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra við skrif­legri fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata um end­ur­send­ingar flótta­fólks til Grikk­lands.

Helgi spurði meðal ann­ars hvort rík­is­stjórnin ætl­aði að halda áfram að end­ur­senda flótta­fólk sem hlotið hefði alþjóð­lega vernd í Grikk­landi, „þrátt fyrir ástandið þar, sem m.a. var til­efni þess að rík­is­stjórnin ákvað nýlega að taka á móti 15 flótta­mönnum þaðan,“ en ákvörðun um að bjóða fimmtán sýr­lenska flótta­menn sem áður höfð­ust við í Moria-flótta­manna­búð­unum á eyj­unni Lesbos var kynnt af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar í lok sept­em­ber­mán­aðar.

Spurning Helga Hrafns laut þannig að póli­tískri stefnu­mörkun rík­is­stjórn­ar­innar í þessum efnum, en svar dóms­mála­ráð­herra við henni vísar ein­ungis til þess hvernig lögin og kerfið virkar í dag.

Blaða­maður heyrði í Helga Hrafni og spurði hvort hann hefði búist við því að fá bein­skeytt­ara svar við spurn­ingu sinni, í þess­ari þing­fyr­ir­spurn. „Já, ég bjóst nú eig­in­lega við því,“ segir Helgi Hrafn, en bætir við að mögu­lega hafi það verið „barns­leg ein­feldni“ hjá sér.

Ísland hefur ekki sent umsækj­endur um alþjóð­lega vernd til Grikk­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar allt frá árinu 2010, þar sem aðstæður þeirra sem bíða eftir að fá stöðu flótta­manns í Grikk­landi þóttu og þykja óboð­legar.

Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin tekur þó ein­ungis til þeirra sem hafa sótt um og bíða þess að fá svar við umsóknum sínum um alþjóð­lega vernd.

Helgi Hrafn var að spyrja um stöðu hinna, sem hafa fengið stöðu flótta­manna í Grikk­landi en leggja samt land undir fót og reyna að koma sér annað.

Rauði kross Íslands hefur ítrekað lýst þeirri afstöðu að aðstæður þeirra sem hafa hlotið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi séu sam­bæri­legar eða verri en þeirra sem bíða afgreiðslu umsóknar sinnar þar í landi. Bágar aðstæður fólks sem hefur fengið stöðu flótta­manna í Grikk­landi hafa margoft verið til umfjöll­unar á und­an­förnum árum.

Öfugsnúið

Helgi Hrafn vekur athygli á því í sam­tali við blaða­mann að þeir fimmtán Sýr­lend­ingar sem Ísland ætlar að taka við frá Lesbos hafi fengið stöðu flótta­manna í Grikk­landi. Á sama tíma og við séum að bjóða þetta fólk vel­komið sé enn verið að senda aðra sem hafi stöðu flótta­manna í gríska kerf­inu frá Íslandi til Grikk­lands.

Helgi Hrafn segir þetta öfug­snúið og telur þetta sýna fram á „algjört metn­að­ar­leysi dóms­mála­ráð­herra fyrir því að hafa eitt­hvað vit í þessu kerfi.“ Öll áhersla stjórn­valda sé á að reyna að „stytta máls­með­ferð­ar­tím­ann og segja nei hraðar og láta eins og það sé til hags­bóta fyrir umsækj­endur um vernd.“

Í svari ráð­herra segir að mat á því hvort ófor­svar­an­legt sé að vísa fólki aftur til Grikk­lands sé í höndum Útlend­inga­stofn­unar og kæru­nefndar útlend­inga­mála og sé „ávallt reist á nýj­ustu landa­upp­lýs­ingum sem liggja fyrir um aðstæður í við­töku­ríki, svo sem skýrslum alþjóð­legra sam­taka, frjálsra félaga­sam­taka og ann­arra ríkja.“

„Í fram­kvæmd hafa Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála, sem og syst­ur­stofn­anir þeirra í öðrum Evr­ópu­ríkjum, ekki talið að aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi, þ.e. þeirra sem hafa fengið við­ur­kennda stöðu sína sem flótta­menn þar í landi, séu þannig að þær sam­rým­ist skil­grein­ingu á ofsóknum í skiln­ingi flótta­manna­hug­taks­ins eða jafn­ist á við ómann­úð­lega eða van­virð­andi með­ferð í skiln­ingi mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Áréttað er að flótta­manna­kerfið er neyð­ar­kerfi, ætlað fólki sem ótt­ast um líf sitt og frelsi, og er ekki hugsað fyrir þá sem þegar hafa fengið alþjóð­lega vernd í öðru ríki,“ segir í svari Áslaugar Örnu.

Langflestir sem hingað leita með vernd hafa slíka í Grikklandi

Samkvæmt svari ráð­herra sóttu alls 596 manns um alþjóð­lega vernd hér landi á fyrstu 10 mán­uðum árs­ins og voru 293 þeirra þegar með vernd í öðru ríki, langstærstur hluti í Grikk­landi, eða 221 tals­ins.[links]

Helgi Hrafn spurði hversu margir ein­stak­lingar hefðu verið sendir aftur til Grikk­lands vegna þess að þeir hefðu fengið alþjóð­lega vernd þar og fékk þau svör að þar væri um sex umsækj­endur að ræða. Allir fóru þeir á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins, fjórir sjálf­vilj­ugir en tveir í fylgd stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra.

Þing­mað­ur­inn spurði ráð­herra jafn­framt að því hversu mörgum umsækj­endum um alþjóð­lega vernd hefði verið hafnað um efn­is­lega með­ferð umsókna sinna sökum þess að umsækj­endur voru með alþjóð­lega vernd í Grikk­landi.

Fram kemur í svari ráð­herra að alls hafi 34 verið hafnað á þeim grund­velli á fyrstu 10 mán­uðum árs­ins. Í 26 af þessum 34 til­fellum voru ákvarð­anir Útlend­inga­stofn­unar þó aft­ur­kall­aðar, vegna breytts mats Útlend­inga­stofn­unar sem tekið var upp vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Umsóknir þeirra voru því teknar til efn­is­legrar með­ferðar og ein til við­bótar send til efn­is­legrar með­ferðar af kæru­nefnd útlend­inga­mála. Fimm umsóknir eru í kæru­ferli og tveir umsækj­endur hafa yfir­gefið landið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár