Boðað til aðalfundar Íslandspósts 15. mars

Aðal­fundar Íslands­pósts verður hald­inn föstu­dag­inn 15. mars næst­kom­andi í höf­uð­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins. Fund­ur­inn átti að fara fram í síð­ustu viku en var frestað að beiðni fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra.

Aðal­fundur Íslands­pósts hefur verið boðaður þann 15. mars næstkomandi í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Fundurinn átti að fara fram þann 22. febrúar síðastliðinn en honum var frestað að beiðni Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Á aðalfundi verður birt árs­skýrsla fyr­ir­tæk­is­ins.

Milljarðafjárfestingar og launaskrið

[links]Íslands­póstur er í eigu rík­is­ins en mikið hefur verið fjallað um erf­iða fjár­hags­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á und­an­förnum mán­uðum. Fyrir jól sam­þykkti Alþingi 1,5 millj­arða neyð­ar­láns­heim­ild til fyr­ir­tæk­is­ins vegna bágrar fjár­hags­stöðu félags­ins. Íslands­­­póstur hefur ekki staðið undir sér und­an­farin ár, meðal ann­­ars vegna mik­ils sam­­dráttar í bréfa­­send­ingum og nið­­ur­greiðslu erlendra póst­­­send­inga. Dreif­ing­­ar­­dögum póst­s­ins hefur verið fækkað og póst­­­burð­­ar­­gjald hefur þre­fald­­ast á tíu árum. Fjár­­­fest­ingar fyr­ir­tæk­is­ins hlaupa hins vegar á millj­­örðum og fyr­ir­tækið hefur tapað hund­ruðum millj­­ónum króna vegna lána til dótt­­ur­­fé­laga Íslands­­­póst­s. Greint var frá því í des­em­ber í fyrra að Íslands­póstur hafi afskráð dótt­ur­fyr­ir­tæki sitt ePóst án sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Auk þess hefur verið fjallað um launa­upp­bót starfs­manna Íslands­pósts í upp­hafi árs í fyrra sem og til­lögu stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins um tutt­ugu pró­sent launa­hækkun stjórn­ar­manna . Jafn­framt má sjá af árs­reikn­ingum Íslands­pósts frá árunum 2014 til 2017 að laun for­stjóra hafa hækkað um tæp 43 pró­sent á tíma­bil­in­u.

Gagnrýnt hefur verið að íslenska ríkið hafi ákveðið að lána Íslands­póst stórfé þrátt fyrir að ekki liggi fyrir grein­ing á því hvað valdi bágri fjár­hags­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Í umsögn Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­un­ar, um auka fjár­veit­ingu rík­is­ins til Íslands­pósts, kom meðal ­­­fram að emb­ættið telji það óheppi­­­­legt að ekki liggi nákvæm­­­­lega fyrir hvernig fyr­ir­hugað sé að taka á rekstr­­­­ar­­­­vanda Íslands­­­­­­­pósts þannig að til­­­­skil­inn árangur náist áður en tekin er ákvörðun um fram­lög úr rík­­­­is­­­­sjóði til félags­­­­ins. Þá sé orsök fjár­­hags­vand­ans alls ógreind, ekki liggi fyrir hvort hann stafi af sam­keppn­is­­rekstri eða starf­­semi innan einka­rétt­­ar. Fjár­laga­nefnd Alþingis sam­þykkti því í jan­úar á þessu ári beiðni til rík­is­end­ur­skoð­anda um að unnin yrði stjórn­sýslu­út­tekt á starf­semi Íslands­pósts.

Und­an­farin ár hefur aðal­fundur Íslands­pósts verið hald­inn síð­asta föstu­dag febr­ú­ar­mán­aðar og var einnig stefnt að því í ár áður en til­kynnt var um skyndi­lega frestun án skýr­inga. Nú hefur hins vegar verið boðað til aðal­fundur á ný, þann15. mars næst­kom­andi. Á fund­inum verður árs­skýrsla fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið 2018 birt en hún hefur meðal ann­ars að geyma upp­lýs­inga um kaup og kjör stjórn­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár