Laun forstjóra Íslandspósts hækkað um rúm 40 prósent á fjórum árum

Í byrjun síð­asta árs fengu starfs­menn Íslands­pósts launa­upp­bót eftir góða afkomu fyr­ir­tæk­is­ins. Á sama tíma lagði stjórn Íslands­pósts til 20 pró­sent hækkun launa sinna. Í heild­ina sam­þykkti Alþingi heim­ild til að lána Íslands­pósti 1,5 millj­arða í fyrra

Laun for­stjóra Íslands­pósts hafa hækkað um tæp 43 pró­sent frá árinu 2014 til 2017. Auk þess hafa laun stjórnar hækkað um 65 pró­sent frá árinu 2014. Í upp­hafi árs 2018 sam­þykkti stjórn Íslands­pósts að leggja fyrir aðal­fund félags­ins að laun stjórn­ar­manna yrðu hækkuð um tutt­ugu pró­sent. Á svip­uðum tíma ákvað stjórnin að greiða starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins launa­upp­bót í ljósi góðrar afkomu fyr­ir­tæk­is­ins. Rúmu hálfu ári síðar, í sept­em­ber 2018, fékk fyr­ir­tækið 500 millj­óna króna lán frá rík­inu til að bregð­ast við lausa­fjár­skorti fyr­ir­tæks­ins. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. 

Hækkun launa í ljósi góðrar afkomu

Í febrúar í fyrra samþykkti stjórn Íslandspósts að leggja fyrir aðalfund félagsins að laun stjórnarmanna yrðu hækkuð. Laun almennra stjórnarmanna myndu hækka úr 140 þúsund krónum á mánuði í 165 þúsund krónur. Laun formanns stjórnar eru tvöföld laun stjórnarmanns og fór hann því úr 280 þúsund krónum á mánuði og upp í 330 þúsund krónur. Hækkunin nam því tæpum átján prósentum. Þetta sýna fundargerðir stjórnar sem Fréttablaðið fékk aðgang að í krafti upplýsingalaga. 

Þá var einnig samþykkt í upphafi síðasta árs að greiða starfsfólki launauppbót í ljósi góðrar afkomu fyrirtækisins árið á undan. En árið 2017 skilaði Íslandspóstur afgangi upp á rúmlega 216 milljónir króna. Var það annað árið í röð sem fyrirtækið hagnaðist eftir að hafa tapað samanlagt 280 milljónum árin þrjú á undan. Ársreikningur ársins 2018 liggur ekki fyrir.

Uppbótin hljóðaði upp á tuttugu þúsund krónur til starfsfólks í fullu starfi en greiðslur lækkuðu í samræmi við starfshlutfall til annarra. Lágmarksgreiðsla var þó ávallt tíu þúsund krónur. Kostnaður vegna launauppbótar til starfsmanna Íslandspósts nam 14,3 milljónum króna, samkvæmt umfjöllun Fréttablaðsins. 

Íslandspóstur fékk heimild fyrir 1500 milljóna láni frá ríkinu í fyrra

[links]Rúmu hálfu ári seinna, í sept­em­ber 2018, leit­aði Íslands­póstur á náðir rík­is­ins og fékk 500 millj­óna króna lán frá rík­inu til að bregð­ast við lausa­fjár­skorti eftir að við­skipta­banki þess, Lands­banki Íslands, hafði lokað á frek­ari lán­veit­ingar. Nokkrum mán­uðum síðar, í des­em­ber, sam­þykkti Alþingi að lána fyr­ir­tæk­inu allt að millj­arð til við­bótar.

Í umsögn rík­­is­end­­ur­­skoð­unar, um auka fjár­veit­ingu ríks­ins til Íslands­pósts, segir að ­­Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun telji að það sé óheppi­­­legt að ekki liggi nákvæm­­­lega fyrir hvernig fyr­ir­hugað sé að taka á rekstr­­­ar­­­vanda Íslands­­­­­pósts þannig að til­­­skil­inn árangur náist áður en tekin er ákvörðun um fram­lög úr rík­­­is­­­sjóði til félags­­­ins. Þá sé orsök fjár­hags­vand­ans alls ógreind, ekki liggi fyrir hvort hann stafi af sam­keppn­is­rekstri eða starf­semi innan einka­rétt­ar. Fjár­laga­nefnd Alþingis sam­þykkti því í jan­úar á þessu ári beiðni til rík­is­end­ur­skoð­anda um að unnin yrði stjórn­sýslu­út­tekt á starf­semi Íslands­pósts.

Laun stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og forstjóra hafa hækkað talsvert á síðustu árum

Frá árinu 2014 hafa laun stjórnarmanna Íslandspósts hækkað á hverju ári. Samkvæmt umfjöllun Fréttablaðsins hefur hækkunin verið á bilinu ellefu til tólf prósent ár hvert. Hafi tillaga stjórnar um hækkun launa sinna verið samþykkt á aðalfundi Íslandspóst í fyrra þá hafa laun stjórnarmanna hækkað um 65 prósent frá árinu 2014. Formaður stjórnar er Bjarni Jónsson, varaþingmaður Vinstri grænna, og meðal stjórnarmanna er Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðar­maður Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra.

Jafnframt má sjá af ársreikningum Íslandspósts frá árunum 2014 til 2017, en ársreikningur 2018 liggur ekki fyrir fyrr en eftir tæpar þrjár vikur, að laun forstjóra hafa hækkað um tæp 43 prósent á tímabilinu.

Þá hafa laun framkvæmdastjóra Íslandspósts hækkað um rúm tólf prósent. Að auki nýtur framkvæmdastjórn bifreiðahlunninda frá fyrirtækinu en árið 2015 greidd­i Ís­lands­póstur 29,5 millj­ónir króna fyrir fimm jeppa og einn fólks­bíl sem for­stjóri og fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tæk­is­ins hafa til umráða sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ing­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár