Lokuðu skála vegna veggjalúsar: „Er að koma upp mjög víða“

Nýlega kom upp veggja­lús í skála Ferða­fé­lags­ins Úti­vistar í Básum í Þórsmörk. „Við munum ekki opna fyrr en við getum full­vissað okkur um að það sé ekki veggja­lús þarna,“ segir fram­kvæmda­stjóri Úti­vistar.

Veggja­lús kom upp í skála Úti­vistar í Básum í Þórsmörk nýlega og brugð­ist hefur verið við með því að loka skál­anum. Þetta stað­festir Hörður Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Úti­vistar, í sam­tali við Heim­ild­ina. „Veggja­lús er land­læg á Íslandi og er að koma upp mjög víða. Það eru mjög margir sem eiga við þetta vanda­mál, eins og hefur verið í fréttum,“ segir hann.

Hörður segir að smitið hafi senni­lega fyrst komið upp í haust. „Við fórum í aðgerðir til að útrýma því sem þar kom. Það er mik­il­vægt að gera þetta mjög hratt svo þetta breið­ist ekki út. Svo við erum búin að vera í sam­bandi við mein­dýra­eyði. Við töldum okkur vera í góðum málum.“

Opna ekki fyrr en lúsin er farin

Aðgerð­irnar höfðu þó ekki erindi sem erf­iði og varð veggjalús­ar­innar aftur vart. „Það kom upp smit um síð­ustu helgi. Sem er afskap­lega slæmt. Við erum búin í fram­haldi …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár