Icelandair hefur ekki lækkað eldsneytisgjald sitt í takti við lækkun á heimsmarkaðsverði

Icelandair hefur lækkað sér­stakt elds­neyt­is­gjald sitt um 15 pró­sent frá miðju ári í fyrra. Á sama tíma hefur heims­mark­aðs­verð á olíu fallið um 57 pró­sent. Hið sér­staka elds­neyt­is­gjald hefur verið hluti af verð­lagn­ingu ýmissa flug­fé­laga í heim­inum frá árinu 2004 og hefur sögu­lega ekki fylgt sveiflum heims­mark­aðs­verðs á olíu.

Heims­mark­aðs­verð á olíu fór niður fyrir 50 dali á hverja tunnu, eða fat, af Brent-olíu í fyrra­dag. Þegar þetta er skrifað er verðið 50,24 dalir á tunnu. Í júní 2014 kost­aði tunna af Brent-olíu 115,9 dali. Hún hefur því, líkt og áður sagði, lækkað um 57 pró­sent í verði á rúmu ári. Verðið hefur ekki verið lægra síðan á árinu 2009.

Kjarninn greindi frá því í gær að verð á elds­neyti til neyt­enda á Íslandi hafi ekki fylgt þróun á heims­mark­aðs­verði og fór yfir þær ástæður sem liggja þar að baki.

Lækkaði um 15 prósent í lok síðasta árs


Icelandair lækk­aði elds­neyt­is­gjaldið sitt um 15 pró­sent um mán­að­ar­mótin nóv­em­ber-des­em­ber 2014. Gjaldið er hluti af far­miða­verði margra flug­fé­laga og hjá Icelandair nemur þetta gjald stundum meira en helm­ingi af verði flug­mið­ans. Við þetta lækk­aði elds­neyt­is­gjaldið fyrir Evr­ópu­ferðir úr 9.200 krónum í 7.900 krónur og úr 16.400 krónum í 13.900 krónur ef flokið er til Norður- Ameríku.

Guðjón Arn­gríms­son, upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair, segir að fyr­ir­tækið hafi ekki lækkað elds­neyt­is­gjaldið síðan í lok síð­asta árs. „Elds­neyt­isá­lag flug­fé­laga var sett á vorið 2004 þegar flug­elds­neyti hafði hækkað hratt, og var komið í 370 doll­ara á tonnið. Verðið hefur síðan sveifl­ast upp og niður, fór hæst í meira en 1400 doll­ara 2008, lækk­aði svo niður í um 500 doll­ara 2009, hækk­aði aftur í 1400 doll­ara og er nú komið í kringum 500 doll­ara á tonnið. Elds­neyt­isá­lag hefur ekki fylgt þessum sveiflum, en hefur farið lækk­andi.“

Gjaldið barn síns tíma


Ástæður þess að elds­neyt­is­gjaldið fylgir ekki sveiflum eru nokkrar. Þar ber fyrst að nefna þá að stærri flug­fé­lög verja sig vana­lega gagn­vart sveiflum í elds­neyt­is­verði með því að gera fram­virka samn­inga um kaup á því. Því hafa sveiflur yfir skemmri tíma ekki áhrif á elds­neytis­kaup flug­fé­laga. Þetta er að mörgu leyti svipuð rök og íslensk olíu­fé­lög nota þegar þau benda á að þau eigi oft upp­safn­aðar birgðir af elds­neyti sem keyptar hafi verið á hærra verði. Því taki tíma fyrir lækk­anir á heims­mark­aðs­verði að skila sér út í verð­lagið.

Önnur ástæða er sú að álagn­ing hins sér­staka elds­neyt­is­gjalds skiptir í raun engu máli í verð­lagn­ingu á flug­miðum. Kaup á elds­neyti eru risa­stór breyta í rekstri flug­fé­laga og því blasir við að þróun þess mun alltaf hafa áhrif á það verð sem flug­fé­lög geta boðið við­skipta­vinum sínum. Það er enda svo að þegar flug er pantað kemur fram fullt verð, með elds­neyt­is­gjald­inu. Þ.e. að leggst ekki ofan á eftir að pantað hefur verið.

Því hefur lengi verið rætt um það innan flug­geirans að þetta gjald sé til­gangs­laust og að löngu tíma­bært sé að taka það út úr verð­inu til að það valdi ekki rugl­ingi. Það hefur hins vegar ekki verið gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár