Keyptu barn á netinu

Fyrir nokkrum dögum hlutu dönsk hjón dóm fyrir að hafa árið 2014 keypt pólskan hvít­voð­ung eftir þau aug­lýstu eftir barni á net­inu. Borgþór Arn­gríms­son greinir frá mál­inu.

Dönsku hjónin sem um ræðir bjuggu á þessum tíma á Suður-Jótlandi. Þau höfðu um ára­bil þráð að eign­ast barn en höfðu, eftir rann­sóknir lækna, kom­ist að því að það gætu þau ekki eftir venju­legum leiðum. Hjónin sóttu um að ætt­leiða barn en fengu neitun eftir að hafa fengið þann úrskurð sér­fræð­inga að sál­ar­á­stand kon­unnar væri með þeim hætti að ekki væri hægt að heim­ila ætt­leið­ingu.

Sá úrskurður, sem kom hjón­unum mjög á óvart, þýddi að hinn lög­form­legi far­vegur ætt­leið­inga væri úti­lok­aður. En hjónin gáfust ekki upp. Þau vissu, að sögn, nokkur dæmi þess að dönsk pör, þar á meðal sam­býl­is­konur, hefðu tekið að sér pólsk börn. Börn sem mæð­urnar hefðu bein­línis aug­lýst á net­inu. Hjónin komust líka að því að þess væru dæmi að fólk sem vildi eign­ast börn, aug­lýsti á net­inu. Þau ákváðu að reyna þessa leið.

Hittust á kaffihúsi

Aug­lýs­ing hjón­anna bar fljót­lega árangur. Pólsk kona, komin nokkra mán­uði á leið, hafði sam­band við hjónin og lýsti sig fúsa til að láta barnið, þegar það yrði komið í heim­inn, í þeirra hendur. Kvaðst ekki geta séð því far­borða. Sem greiðslu fyrir barnið vildi konan fá 13.500 evrur (tæp­lega 1. 7 milljón íslenskar), því höfn­uðu dönsku hjónin. Á end­anum samd­ist um að móð­irin fengi greiddar 750 evrur (rúm­lega 91 þús­und íslenskar) fyrir barnið.

Umsamið var að þegar barnið yrði fætt kæmu dönsku hjónin til Póllands og tækju við barn­inu og móð­irin fengi greiðsl­una en hluta hennar hafði hún reyndar þegar fengið. Þegar barnið, sem er drengur, var komið í heim­inn fóru dönsku hjónin til Póllands og hittu mæðginin á kaffi­húsi á stórri lest­ar­stöð í Póllandi. Snáðinn var þá ein­ungis tveggja daga gam­all. Eftir nokkra stund á kaffi­hús­inu hélt móð­irin heim­leiðis en dönsku hjónin óku með dreng­inn til baka heim til Tønder.

Hollenskt fæðingarvottorð

Nokkrum dögum eftir heim­kom­una fóru hjónin með dreng­inn til Hollands en þar átti mað­ur­inn ætt­ingja. Hollensk yfir­völd gáfu út fæð­ing­ar­vott­orð fyrir dreng­inn, hjónin sögðu að hann hefði fæðst á meðan þau voru í heim­sókn hjá ætt­ingjum manns­ins. Þau sneru síðan aftur heim til Tønder fram­vís­uðu þar hol­lenska fæð­ing­ar­vott­orð­inu og dreng­ur­inn fékk danska kenni­tölu.

Dönsk yfirvöld fengu fljótlega vitneskju um málið

Nokkrum vikum eftir að hjónin komu heim með barnið barst dönskum yfir­völdum til­kynn­ing frá Evr­ópu­lög­regl­unni, Europol. Pólska lög­reglan hafði þá kom­ist á snoðir um málið og við yfir­heyrslur hafði móðir drengs­ins við­ur­kennt að hún hefði selt dönsku hjón­unum dreng­inn. Hún hefði brugðið á þetta ráð sökum þess að hún hefði ekki séð fram á að geta fram­fleytt syn­inum.

Hjónin sögðu þetta einu leiðina

Eftir að dönsk yfir­völd fengu til­kynn­ing­una frá Evr­ópu­lög­regl­unni voru hjónin kölluð til yfir­heyrslu hjá lög­regl­unni í Tønder. Þar við­ur­kenndu þau að hafa borgað fyrir dreng­inn og að hafa sagt hol­lenskum yfir­völdum ósatt um fæð­ingu hans og enn­fremur um skrán­ing­una í Danmörku, eftir heim­kom­una frá Hollandi. Skýr­ing­una á þessu sögðu hjónin þá að þau hefðu þráð að eign­ast barn og þetta hefði verið eina leiðin til þess að láta þá ósk ræt­ast.

Hvað segja pólsk lög?

Í Póllandi er ekki leyfi­legt að for­eldri láti, á eigin spýtur, frá sér barn til ætt­leið­ingar gegn greiðslu. Lögin eru þó ekki skýr, ætt­leið­ing gegn greiðslu fellur þar í sama flokk og nauð­ung­ar­sala í barna­þrælkun og fleira því skylt. Barn sem látið er til ætt­leið­ingar fellur ekki undir þessa skil­grein­ingu og mjög erfitt getur reynst að sýna fram á að greitt hafi verið fyrir barn í tengslum við ætt­leið­ingu. Þessi óskýr­leiki í pólskum lögum er alkunna og ein skýr­ing þess að pólskar mæður aug­lýsi börn á net­inu, þótt það hafi ekki verið með þeim hætti í til­viki dönsku hjón­anna en þar voru það þau sem aug­lýstu.

Fyrir hvað á að refsa?

Eins og áður sagði eru þrjú ár síðan dönsk yfir­völd komust á snoðir um þetta mál. Í við­tali við dag­blaðið Jót­land­s­póst­inn sagði sak­sókn­ari að ástæður þess að þetta mál hefði dreg­ist svona lengi væru nokkrar og að ekk­ert for­dæmi væri fyrir máli sem þessu í Danmörku. Og fyrir hvað átti að refsa, spurði sak­sókn­ari sem sagði að fyrst hefðu sjónir ákæru­valds­ins beinst að lögum um man­sal.

Þarna var ekki um slíkt að ræða, því ekki var þetta nauð­ung­ar­sala, frels­is­svipt­ing eða mis­notkun af nokkru tagi. Ekki var heldur hægt að flokka málið undir barns­rán því móð­irin hafði sam­þykkt að láta barnið af hendi. „Það var alveg sama hvaða laga­bálka við skoð­uðum, engir þeirra náðu til til­vika sem þess­ara,“ sagði sak­sókn­ari.

Tuttugu daga skilorðsbundið fangelsi

Dómur í máli dönsku hjón­anna, sem í milli­tíð­inni eru flutt til Norður-Jótlands, féll fyrir nokkrum dögum. Þar voru þau dæmd í tutt­ugu daga skil­orðs­bundið fang­elsi og fjöru­tíu daga sam­fé­lags­þjón­ustu. Sak­sókn­ari hafði kraf­ist þess að hjónin yrðu dæmd fyrir brot á ætt­leið­ing­ar­lögum, dóm­ari hafn­aði því en dæmdi þau fyrir að hafa veitt rangar upp­lýs­ingar um barnið.

Snáðinn þrífst vel

Síðan dönsk yfir­völd fengu árið 2014 upp­lýs­ing­arnar frá Europol hafa þau fylgst með hjón­unum og drengnum. Skemmst er frá því að segja að dreng­ur­inn þrífst og dafnar vel. Hann er og hefur allan tím­ann verið hjá dönsku „for­eldr­unum“ og ekki útlit fyrir að þar verði breyt­ing á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár