Festi ætlar að hætta að nýta hlutabótaleiðina

Móð­ur­fé­lag Krón­unnar, Elko og N1 hefur gefið út að það ætli sér ekki lengur að nýta hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda. Hluti starfs­manna Elko og N1 hefur verið í skertu starfs­hlut­falli und­an­farnar vikur.

Eggert Þór Kristófersson er forstjóri Festi.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son er for­stjóri Festi. Mynd: Aðsend

Festi hf. hefur ákveðið að frá og með deg­inum í dag muni félagið ekki nýta hluta­bóta­leið stjórn­valda, en hluti starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins, sem starfa fyrir dótt­ur­fé­lögin Elko og N1, hafa verið í skertu starfs­hlut­falli und­an­farnar vikur.

Í til­kynn­ingu frá Festi, sem Eggert Þór Krist­ó­fers­son for­stjóri félags­ins und­ir­ritar, er áréttað að síðan hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda var kynnt til sög­unnar hafi fyr­ir­tækið ekki greitt út arð eða keypt eigin hluta­bréf.

Ekkert kemur fram í til­kynn­ing­unni um hvort Festi hygg­ist end­ur­greiða þann rík­is­stuðn­ing sem í hluta­bóta­úr­ræð­inu felst til baka, eins og Skelj­ungur ákvað að gera í gær.

Þar kemur hins vegar fram að vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og sam­komu­banns stjórn­valda hafi versl­anir Elko á Kefla­vík­ur­flug­velli og nokkrar þjón­ustu­stöðvar N1 orðið fyrir „algjöru eða miklu tekju­tapi og veru­legum tak­mörk­unum á starf­semi“.

„Hluta­bóta­leiðin var nýtt að hvatn­ingu stjórn­valda í stað þess að grípa til upp­sagna og vernda þannig ráðn­ing­ar­sam­band við starfs­fólk, enda er okkur umhugað um að vernda störf og halda því góða starfs­fólki sem hjá okkur starfar.

Ákvörð­unin var tekin með góðum hug og hvarfl­aði það ekki að okkur að hún myndi orka tví­mælis enda fór fyr­ir­tækið í einu og öllu að til­mælum stjórn­valda,“ segir í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, sem seg­ist hafa skýra stefnu um sam­fé­lags­lega ábyrgð.

„Það eru ein­kenni­legir tímar sem við lifum núna og margt óvænt sem kemur upp í dag­legum rekstri sem við lærum af,“ segir í til­kynn­ingu Festar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár