Hagfræðistofnun segir kolefnisföngun ábatasamari en stjórnvöld geri ráð fyrir

Reiknað er með að hægt verði að fanga 150 þús­und tonn af kolefni sem losnar frá jarð­varma­virkj­unum árið 2030. Hag­fræði­stofnun gerir ráð fyrir að föngun á árunum 2021 til 2030 verði 950 þús­und tonn og að þjóð­hags­legur ávinn­ingur föng­unar sé 6 millj­arðar.

Carbfix fangar kolefni úr jarðgufu við Hellisheiðarvirkjun.
Carbfix fangar kolefni úr jarð­gufu við Hell­is­heið­ar­virkjun. Mynd: ON

Þjóð­hags­legur ávinn­ingur af föngun og nið­ur­dæl­ingu kolefnis frá jarð­varma­virkj­unum er met­inn vera rúmir sex millj­arðar króna til árs­ins 2030 í nýrri skýrslu Hag­fræði­stofn­unar sem fjallar um áhrif aðgerða í lofts­lags­málum. Árið 2019 losn­uðu 166 þús­und tonn af kolefn­isí­gildum frá jarð­varma­virkj­unum sem er nærri sex pró­sent af þeirri losun sem Íslend­ingar bera beina ábyrgð á. Losunin hafði þá auk­ist um 40 pró­sent frá árinu 2005 Hag­fræði­stofnun reiknar með að hægt verði að binda 90 pró­sent þess magns árlega árið 2030, eða um 150 þús­und tonn. [links]

Skýrsla Hag­fræði­stofn­unar Áhrif aðgerða í lofts­lags­málum – Kostn­að­ar- og ábata­mat kom út í júlí en í henni er, líkt og nafnið gefur til kynna, mat lagt á kostnað og ábata ýmissa aðgerða sem finna má í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum. Í skýrsl­unni er mat lagt á 23 aðgerða af þeim 48 sem kynntar voru í aðgerða­á­ætl­un­inni um mitt ár 2020. Ekki er lagt mat á 25 aðgerðir vegna þess að sumar þeirra eru enn í mótun eða í und­ir­bún­ingi og áhrif ann­arra aðgerða sem ekki er lagt mat á eru óljós. Þess má geta að fjöldi aðgerða sem finna má í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda eru í dag orðnar 50 tals­ins.

Kostar 25 dali að binda eitt tonn

Föngun kolefnis er meðal þeirra aðgerða sem taldar eru vera þjóð­hags­lega hag­kvæmar – þar sem ábat­inn er tal­inn vera meiri en kostn­aður. Samkvæmt kostn­aðar- og ábata­mati Hag­fræði­stofn­unar er kostn­aður við kolefn­is­föngun á árunum 2019 til 2030 met­inn tæpir 2,4 millj­arðar. Ábatinn er met­inn vera tæpir 8,7 millj­arðar og nettó þjóð­hags­leg áhrif því jákvæð um sem nemur rúmum 6,3 millj­örðum króna.

Í þeim hluta skýrsl­unnar sem snýr að kolefn­is­föngun er fjallað um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins Carbfix en sam­kvæmt upp­lýs­ingum fyr­ir­tæk­is­ins kostar um 25 Banda­ríkja­dali að binda tonn af koltví­sýr­ingi úr jarð­gufu í loft­hreinsi­stöð fyr­ir­tæk­is­ins á Hell­is­heiði.

Ávinningurinn líkast til vanmetinn í aðgerðaáætlun

Umhverf­is­ráðu­neytið gerir ráð fyrir að árið 2030 verði hægt að binda 108 þús­und tonn af koltví­sýr­ingsí­gildum með aðferð Carbfix. Útreikn­ingar Hag­fræði­stofn­unar gera aftur á móti ráð fyrir að árið 2030 verði hægt að binda 90 pró­sent þess kolefnis sem losn­aði frá jarð­varma­virkj­unum árið 2019, um 150 þús­und tonn. „Alls verða bundin um 950 þús­und tonn frá 2021 til 2030 ef gert er ráð fyrir að vel gangi að beita aðferð­inni í jarð­gufu­virkj­unum næstu árin,“ segir í skýrsl­unni.

Fram kemur í skýrsl­unni að verð á los­un­ar­heim­ildum hafi hækkað mikið á síð­ustu árum og hafi verið nærri 60 evrum á fyrri hluta árs­ins 2021. „Ef verðið end­ur­speglar mat á tjóni af útblæstr­inum og aðeins kostar 25 Banda­ríkja­dali, eða rúmar 20 evrur, að binda kolefn­istonnið (á gengi seint í maí 2021) borgar sig lík­ast til að binda meira með þess­ari aðferð en gert er ráð fyrir í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda. Eins og fram hefur komið í fyrri köflum má búast við að verð á los­un­ar­heim­ildum hækki á kom­andi árum,“ segir um kostnað við bind­ing­una í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár