Staðfest: Íslendingar þurfa í sóttkví við komuna til landsins

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur fall­ist á til­lögu sótt­varna­læknis um að Íslend­ingar og aðrir sem búsettir eru hér þurfi að fara aftur í skimun 4-5 dögum eftir komu til lands­ins og vera í sótt­kví þangað til nið­ur­staða fæst.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Sótt­varna­læknir hefur lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra að breyta reglum um skimun á landa­mærum vegna COVID-19. Breyt­ingin snýr ein­göngu að íslenskum rík­is­borg­urum og þeim sem eru búsettir hér á landi. Sem fyrr verður hægt að velja á milli 14 daga sótt­kvíar eða skimunar á landa­mærum en gert er ráð fyrir að ein­stak­lingar úr fyrr­nefndum hópi sem velja skimun þurfi að fara aftur í skimun 4 – 5 dögum eftir kom­una til lands­ins og vera í sótt­kví þar til nið­ur­staða seinni sýna­tök­unnar liggur fyrir. Heil­brigð­is­ráð­herra hefur fall­ist á til­lögu sótt­varna­læknis þessa efnis og er stefnt að því að breyt­ingin komi til fram­kvæmda eigi síðar en 13. júlí.

Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis, sem liggur til grund­vallar ákvörðun ráð­herra, kemur fram að reynslan af skimun á landa­mærum hafi leitt í ljós hættu á því að ein­stak­lingar sem hafa smit­ast nýlega beri með sér smit sem grein­ist ekki við landamæra­skimun en komi fram síðar. Sótt­varna­læknir telur að til­vik sem þessi skapi hættu á hópsmitum og þá sér­stak­lega þegar í hlut eiga ein­stak­lingar með útbreitt tengsla­net hér á landi. Þess vegna leggur hann til að breyttar reglur um skimun taki ekki til almennra ferða­manna heldur verði bundnar við íslenska rík­is­borg­ara og aðra sem eru búsettir hér á landi.

Und­ir­bún­ingur að breyttu fyr­ir­komu­lagi er þegar haf­inn. Breyting á reglum um sótt­kví og ein­angrun vegna COVID-19 í sam­ræmi við þetta er í und­ir­bún­ingi og verður send Stjórn­ar­tíð­indum til birt­ingar innan skamms.

Fyrir liggur að þeir sem þurfa að fara í tvær sýna­tökur sam­kvæmt fyr­ir­hug­aðri breyt­ingu á reglum um sýna­töku á landa­mærum þurfa ekki að greiða fyrir seinni sýna­tök­una.

Samkomur miðist áfram við 500 manns

Þá hefur heil­brigð­is­ráð­herra einnig ákveðið, að til­lögu sótt­varna­læknis, að fram­lengja aug­lýs­ingu um tak­mörkun á sam­komum óbreytta um þrjár vikur, þ.e. til 26. júlí. Fjölda­tak­mörk á sam­komum mið­ast því áfram við 500 manns. Opn­un­ar­tími spila­sala og veit­inga­staða með vín­veit­inga­leyfi verður einnig óbreyttur og heim­ilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin. Upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings um ein­stak­lings­bundnar sýk­inga­varnir verður efld.

Ákveðið bakslag

Frá því að skimanir hófust á landa­mærum 15. júní síð­ast­lið­inn hafi um 22.000 ferða­menn komið til lands­ins og sýni verið tekin hjá um 16.000 manns. Virk smit hafa greinst hjá sjö ein­stak­lingum og rúm­lega 400 manns hafa þurft að fara í sótt­kví eftir smitrakn­ingu. Enginn er alvar­lega veikur.

Sótt­varna­læknir segir um ákveðið bakslag að ræða sem hafi ekki verið óvið­búið en að lág­marka þurfi áhætt­una á því að far­ald­ur­inn nái sér á strik hér á landi. Tillaga sótt­varna­læknis um að ekki verði slakað frekar á reglum um sam­komu­bann að sinni bygg­ist á þessu, auk þess sem hann leggur áherslu á að efla fræðslu um ein­stak­lings­bundnar sýk­inga­varnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár