Börn í Englandi aftur í skólann en hluti ítalskra barna sendur heim

Far­ald­ur­inn sendir ýmist kaldar eða hlýjar kveðjur um Evrópu nú í upp­hafi nýrrar viku. Í sumum löndum er verið að aflétta tak­mörk­unum en í öðrum er enn verið að herða.

Tvær milljónir barna í Englandi sneru aftur í skólann í morgun.
Tvær millj­ónir barna í Englandi sneru aftur í skól­ann í morgun. Mynd: EPA

Í morgun fóru börn í Englandi í skól­ann á ný eftir margra vikna fjar­nám. Í Þýska­landi var hömlum aflétt á ýmissi þjón­ustu. En í Finn­landi, Ung­verja­landi og á ákveðnum svæðum á Ítalíu voru hertar aðgerðir kynntar til sög­unnar.

Bresk stjórn­völd hafa kynnt áætlun um hvernig hömlum verður smám saman aflétt næstu vik­urnar. Stór áfangi varð í dag þegar um tvær millj­ónir grunn­skóla­barna máttu aftur mæta í skól­ann. Tvær vikur eru síðan þau voru send heim og í fjar­nám. Bretar hafa í þrí­gang frá upp­hafi far­ald­urs­ins gripið til mjög harðra aðgerða.

Nú hafa um 22 millj­ónir manna fengið að minnsta kosti fyrri skammt­inn af bólu­efni. Frá og með 29. mars mega allt að sex manns koma saman utandyra. Þann 12. apríl er svo stefnt að því að opna dyr bara og veit­inga­staða.

Hæg aflétt­ing er einnig að eiga sér stað í Þýska­landi. Í morgun máttu bóka­búðir, blóma­búðir og öku­skólar, svo dæmi séu tekin, aftur fara að taka við við­skipta­vinum. Aðeins um 5 pró­sent Þjóð­verja hafa fengið að minnsta kosti fyrri skammt bólu­efn­is­ins.

Í dag tóku hertar aðgerðir gildi á þremur svæðum á Ítalíu. Á svæð­inu í kringum Napolí er nú „rauður“ lita­kóði í gildi sem þýðir að mikil hætta á útbreiðslu er til staðar. Því þarf að loka börum, veit­inga­húsum, skólum og dag­heim­ilum, svo dæmi séu tekin.

Fyrir helgi til­kynnti ítalski heil­brigð­is­ráð­herr­ann að smittalan (R) væri komin yfir einn í fyrsta skipti í sjö vikur. Hann sagð­ist því ótt­ast að þriðja bylgjan væri yfir­vof­andi.

Finnar hafa séð sömu þróun og frá og með deg­inum í dag eru því barir og veit­inga­staðir lok­aðir. Sömu sögu er að segja frá Ung­verja­landi og þar stendur til að loka skólum og versl­unum vegna fjölg­unar smita.

Á svæði í Norður-Frakk­landi hefur einnig verið gripið til stað­bund­inna og harð­ari aðgerða vegna fjölg­unar smita. Þar hefur breska afbrigði veirunnar stungið sér niður af krafti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár