Mengandi agnir úr dekkjum og bremsuklossum enda á afskekktum svæðum jarðar

Meira en 200 þús­und tonn af plast­ögnum fjúka af vegum og út í hafið ár hvert að því er fram kemur í nýrri rann­sókn sem leidd var af norsku loft­gæða­stofn­un­inni.

Mengun frá bílum kemur alls ekki aðeins frá eldsneyti.
Mengun frá bílum kemur alls ekki aðeins frá elds­neyti. Mynd: Kaique Rocha - Pexels

Nið­ur­staða nýrrar rann­sóknar á upp­runa plasts í haf­inu er sú að örsmáar plast­agnir, svo­kallað örplast, berst í meira mæli með vindi út í sjó en með ám, ólíkt því sem áður var talið. Í rann­sókn­inni var sjónum beint að örsmáum ögnum, svifryki, sem verða til þegar dekk og bremsuklossar eyð­ast. Samkvæmt mati vís­inda­mann­anna verða um 550 þús­und tonn af ögnum sem eru minni en 0,01 mm til með þessu móti á hverju ári. Um helm­ing­ur­inn eða um 200 þús­und tonn endar í haf­inu. Þá er það nið­ur­staða vís­inda­mann­anna að um 80 þús­und tonn falli árlega á afskekktum svæðum og á snævi þöktu landi og jöklum. Agnirnar eru svartar og draga því í sig hita frá sól­inni og því gætu þær hraðað bráðnun jökla .

Í umfjöllun Guardian um rann­sókn­ina segir að örplast hafi fund­ist um alla jörð­ina allt frá heim­skauta­svæðum til tinda hæstu fjalla. Þá er þær einnig að finna á botni dýpstu haf­svæða. Þessar agnir geta inni­haldið skað­leg efni og þær hafa valdið skaða á líf­rík­inu í sjónum. Þá er einnig vitað að þær enda í ýmsum mat­vælum og drykkj­ar­vatni og þannig kom­ast þær inn í lík­ama fólks.

Fyrri rann­sóknir höfðu gefið vís­bend­ingar um að örplast færi um heim­inn með vindum en sú norska er sú fyrsta sem leggur mat á magn efn­anna sem ferð­ast með þeim hætti.

Vís­inda­menn­irnir ein­beittu sér að ögnum úr bíldekkjum og bremsuklossum þar sem þegar er að finna góð gögn um hvernig þær verða til. „Vegir eru veiga­mikil upp­spretta örplasts sem endar á afskekktum svæðum, þar á meðal í haf­inu,“ hefur Guardian eftir Andreas Stohl hjá Loft­gæða­stofnun Noregs sem leiddi rann­sókn­ina. Hann segir að með­al­dekk tapi um fjórum kílóum af þyngd sinni á líf­tíma sínum. Stohl segir dekkin því mun stærri upp­sprettu örplasts en til dæmis föt.

Skýr­ingin á því að útbreiðsla örplasts í and­rúms­loft­inu hefur verið van­metin til þessa er sú að það er mjög erfitt að rann­saka hana af því að agnir sem geta borist með lofti eru svo gríð­ar­lega smáar og erfitt að bera kennsl á upp­runa þeirra. En þessar allra minnstu agnir eru að mati Stohl þær skað­leg­ustu þegar kemur að áhrifum á heilsu og vist­kerfi. Þær eru svo litlar að lík­leg­ast geta þær kom­ist inn í blóð­rás fólks og dýra.

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var nýverið birt í vís­inda­tíma­rit­inu Nature Communications.

Stohl segir að þar sem nið­ur­staðan sé fengin með lík­indum, m.a. út frá áætl­uðu magni agna úr dekkjum og bremsuklossum og hermi­lík­önum á vinda­kerfi heims­ins ríki tölu­verð óvissa um hvert agn­irnar dreifast. Þær gætu t.d. fallið fyrr til jarðar eða í hafið ef það rignir en hermi­líkanið áætlar.

Ef ekk­ert slíkt truflar ferð hinna örsmáu agna geta þær borist með loft­inu jafn­vel í heilan mánuð.

Ekki hefur hingað til mikið verið rætt um dekk og bremsuklossa sem upp­sprettu örplasts. Hingað til hefur aðal­lega verið rætt um notkun bíla í tengslum við umhverf­is­mál vegna los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Raf­magns­bílar eiga að margra mati að draga úr þeim vanda en eftir situr að raf­magns­bíll er að jafn­aði þyngri en bíll að svip­aðri stærð sem gengur fyrir jarð­efna­elds­neyti. Það þýðir meira álag á dekk og bremsur, bendir Stohl á.

„Þessi rann­sókn sýnir hversu sam­tengd afskekkt­ustu svæði heims eru við athafnir okkar í borgum og á vegum,“ segir Erik van Sebille sem kennir við háskól­ann í Utrecht og er í teymi Stohls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár