Anní Ólafsdóttir er ungur og upprennandi leikstjóri og er alin upp bæði á Íslandi og í Þýskalandi. Áhugi hennar á kvikmyndagerð kviknaði þó ekki fyrr en um 19 ára aldurinn. „Ég var þá byrjuð í handrita- og leikstjórnarnámi. Ég horfði mikið á Disney-myndir, tónlístarmyndbönd og hryllingsmyndir þegar ég var lítil,“ útskýrir hún. „Ég var alltaf skrifandi sögur og teiknandi, ætlaði að verða myndlistarmaður, arkitekt eða sálfræðingur. Á tímabili langaði mig að fara í danska herinn,“ segir hún og brosir. „Ég er með danskan ríkisborgararétt þar sem móðir mín er færeysk en föðurættin er úr Mosfellsdalnum. Ég hætti nú við herinn þegar ég heyrði nokkra vini mína tala um kvikmyndanám, þeir væru að gera tónlistarmyndbönd í einum áfanga þar. Þá svona small eitthvað, áhuginn á fólki og þessi löngun til að skapa sjónrænan heim sem segir einhverja sögu. Ég er ekki þessi hefðbundni íslenski leikstjóri sem er búinn að stúdera kvikmyndasöguna, …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir