Á þriðja tug smita greindust í gær

Í fyrsta sinn frá því í nóv­em­ber 2020 greindust fleiri en 20 COVID-19 smit á Íslandi á einum degi. Fjöldinn sem greind­ist í gær er meiri en sá sem greind­ist síð­ast þegar aðgerðir voru hertar.

Yfir tutt­ugu COVID-19 smit greindust inn­an­lands í gær. Þetta kom fram í máli Runólfs Páls­sonar, yfir­manns á COVID göngu­deild Lands­spít­al­ans, þar sem hann var til við­tals í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun. Runólfur lagði áherslu á að töl­urnar væru ekki stað­festar og að vonir stæðu til þess að flestir þeirra sem greindust hefðu verið í sótt­kví.

Það hafa ekki greinst yfir 20 smit hér­lendis frá því í nóv­em­ber í fyrra.

Um er að ræða hópsmit sem á rætur að rækja til þess að ein­stak­lingur sem kom til lands­ins braut reglur um sótt­kví. Þaðan barst veiran inn í leik­skóla í Reykja­vík. Alls hafa 22 starfs­menn og börn á umræddum leik­skóla, Jörfa í Hæð­ar­gerði, greinst með COVID-19 síð­ustu tvo daga en þrettán manns greindust með veiruna í fyrra­dag.

[adspot]Fjöldinn sem greind­ist í fyrra­dag var sá mesti sem hafði greinst frá 23. mars, er fjórtán manns greindust með veiruna. Degi síð­ar, 24. mars, ákváðu stjórn­völd að herða sótt­varna­ráð­staf­anir veru­lega og var fyrst slakað á þeim síð­asta fimmtu­dag. Það mat var slegið í gær.

Í til­kynn­ingu sem Almanna­varnir sendu frá sér í gær voru allir sem höfðu umgeng­ist starfs­menn eða börn á leik­skól­anum Jörfa síð­ustu vik­una hvattir til þess að fara í skimun og á það við um börn jafnt sem full­orðna. Einnig voru íbúar sem búa í næsta nágrenni leik­skól­ans hvattir til að fara í skimun – ástæðan er sögð mikil sam­skipti á milli fólks og krakk­arnir eðli­lega mikið á ferð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár