Auðveldara að losa höft með inngöngu í ESB og upptöku evru

Innganga í Evr­ópu­sam­bandið og upp­taka evru sem gjald­mið­ils myndi fela í sér heppi­legra umhverfi til los­unar hafta með auknum stöð­ug­leika og þrótti íslensks atvinnu­lífs. Auð­veld­ara yrði að losa fjár­magns­höftin hratt og efna­hags­sveiflur við hraða losun yrðu minni.

Þetta er nið­ur­staða sviðs­mynda­grein­ingar á losun fjár­magns­hafta sem KPMG á Íslandi hefur unnið fyrir Félag atvinnu­rek­enda, Samtaka Atvinnu­lífs­ins, Alþýðu­sam­band Íslands og Við­skipta­ráð Íslands. Grein­ingin, sem var kynnt í morgun, ber nafnið "Úr höftum með evru". Hana er hægt að lesa hér.

Meiri hraði þýðir meiri sveiflur


Í sviðs­mynda­grein­ing­unni var unnið út frá þeirri for­sendu að ákvörðun hafi verið tekin um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið með upp­töku evru. Sviðs­mynd­unum var stillt upp út frá drif­kröft­unum „hag­vöxtur eða sam­dráttur í helstu við­skipta­löndum“ ann­ars vegar og „hæg eða hröð losun fjár­magns­hafta“ hins vegar. Svið­mynd­unum voru gefin heitin; Íslenski draum­ur­inn, Von­ar­neisti, Lága drifið og Línudans.

Grein­ingin leiddi í ljos að hrað­ara los­un­ar­ferli hafta hefði í för með sér aunkar sveiflur í efna­hahags­líf­inu, sem myndi að stórum hluta orsakast af þróun krón­unnar. Samkvæmt nið­ur­stöðu grein­ing­ar­innar yrðu sveifl­urnar væg­ari og síður öfga­fullar í umhverfi þar sem upp­taka evru væri í far­vatn­inu. „Þannig verði umhverfið stöðugra vegna minni sveiflna í þróun krón­unnar, minni verð­bólgu og stöðugra vaxta­stigs,“ segir í grein­ing­unni.

Þar segir einnig að óvissan um fram­tíð­ar­á­form um losun hafta hafi nei­kvæð áhrif á við­skipta­lífið. Trú­verðug áætlun um losun hafta sé því mik­il­væg fyrir til­trú fyr­ir­tækja fyr­ir­tækja og fram­tíð­ar­sýn þeirra. „Slík áætlun myndi þannig auð­velda fyr­ir­tækjum áætl­ana­gerð og ákvarð­ana­töku og birt­ast í auk­inni inn­lendri fjár­fest­ingu, minna brott­hvarfi og auk­inni nýliðun fyr­ir­tækja. [...]Af nið­ur­stöðum þess­arar grein­ingar og sam­an­burði við fyrri grein­ingu má draga þá ályktun að ákvörðun um inn­göngu í ESB með upp­töku evru feli í sér heppi­legra umhverfi til los­unar hafta með auknum stöð­ug­leika og þrótti íslensks atvinnu­lífs, hvort sem losun hafta verður hröð eða hæg. Jafn­framt virð­ist auð­veld­ara að losa fjár­magns­höftin hratt með upp­töku evru í far­vatn­inu og efna­hags­sveiflur við hraða losun verða minni“.

Gáfu til kynna stærri skref


Bæði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gáfu það sterk­lega til kynna í ræðum sínum á aðal­fundi Seðla­bank­ans í síð­ustu viku að stór skref í átt að losun hafta væru framundan. Und­an­farin ár hefur los­unin fyrst og síð­ast átt sér stað í gegnum gjald­eyr­is­út­boð Seðla­bank­ans, sem nú hefur verið hætt.

[caption id="attachment_14103" align="alignnone" width="1024"] Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri gaf til kynna í ræðu sinni á aðal­fundi Seðla­bank­ans í síð­ustu viku að stærri skref í átt að losun hafta væru framundan.[/caption]

Már Guðmundsson seðlabankastjóri gaf til kynna í ræðu sinni á aðalfundi Seðlabankans í síðustu viku að stærri skref í átt að losun hafta væru framundan.
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri gaf til kynna í ræðu sinni á aðal­fundi Seðla­bank­ans í síð­ustu viku að stærri skref í átt að losun hafta væru framundan.

Mikið hefur verið rætt um mögu­legar leiðir í þeim efnum og sér­stak­lega þegar kemur að með­höndlun þrota­búa föllnu bank­anna Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans. Margir stjórn­mála­menn eru á þeirri skoðun að setja eigi upp háan útgöngu­skatt sem kröfu­höfum þeirra verði gert að greiða til að kom­ast út úr íslensku hag­kerfi með eignir sínar. Enn sem komið er hafa stjórn­völd hins vegar ekk­ert sýnt á spilin í þessum efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár