Þarf Donald Trump að óttast múslima í Bandaríkjunum?

Donald Trump vill loka landa­mærum Banda­ríkj­anna fyrir múslimum. Stað­reyndir sýna þó að sú mynd sem hann málar upp af múslimum í land­inu á sér enga stoð í raun­veru­leik­anum.

Donald Trump.
Donald Trump. Mynd: JIM LO SCALZO / EPA

Ummæli Donald Trump um að loka bæri landa­mærum Banda­ríkj­anna fyrir öllum múslimum hafa eðli­lega vakið mikla athygli, for­dæm­ingu og við­brögð um allan heim. Eðlilega, þar sem Trump leiðir sem stendur kapp­hlaupið um að vera til­nefndur sem for­seta­fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins í for­seta­kosn­ing­unum á næsta ári sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum.

Frétta­síðan FiveT­hir­tyEight, sem sér­hæfir sig í grein­ingu á töl­fræði, og raunar fjöl­margir aðrir, hafa ítrekað bent á að Trump muni að öllum lík­indum ekki vinna. Samkvæmt fréttum hennar hafa fram­bjóð­endur úr röðum repúblik­ana sem hafa mælst með mikið fylgi snemma í kapp­hlaup­inu um útnefn­ing­una, og talað í fyr­ir­sögnum, aldrei náð að vinna útnefn­ing­una. Má þar nefna fólk eins og Pat Roberts­son (1988), Pat Buchanan (1996), Steve Forbes (2000), Mick Huckabee (2008), Ron Paul (2012) og Rick Santorum (2012).

En stærsta ástæðan fyrir því að Trump mun lík­ast til ekki vinna er sú að Repúblikana­flokk­ur­inn vill ekki að hann vinni.

Hefur áður beitt svipuðum tólum

Það breytir því ekki að kast­ljósið bein­ist iðu­lega að Trump. Hann virð­ist móta umræð­una á meðal fram­bjóð­enda. Ummæli Trump hafa enda skilað honum því sem hann sæk­ist iðu­lega eftir, fyr­ir­sögnum. Loft­lags­ráð­stefnan í París, og þau mik­il­vægu mál­efni sem hún er að reyna að taka á, kemst ekki með tærnar þar sem Trump er með hæl­ana þegar kemur að umfjöllun und­an­farna daga. Þótt þjóð­ar­leið­togar, borg­ar­stjórar, póli­tískir and­stæð­ingar, og ætl­aðir sam­herjar Trump hafi sam­ein­ast í því að for­dæma ummæli hans hefur það ekk­ert dregið úr honum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Trump notar kyn­þátta­hyggju eða menn­ing­ar­legan ras­isma til að koma sér á fram­færi. Hann hóf kosn­inga­bar­áttu sína með látum og lof­aði því að byggja múr til að hindra flæði inn­flytj­enda frá Mexíkó til Band­arikj­anna og ásakað yfir­völd í Mexíkó um að senda glæpa­menn og nauð­gara til Banda­ríkj­anna . Trump sagð­ist lofa því að sekta Mexíkó um hund­rað þús­und doll­ara fyrir hvern ein­stak­ling sem kæmi ólög­lega til Banda­ríkj­anna. Í júlí sagði hann m.a. : „Það stafar mikil hætta frá ólög­legum inn­flytj­endum, það stafar gríð­ar­lega mikil hætta frá ólög­legum inn­flytj­endum við landa­mærin.“

Flestar full­yrð­ing­arnar sem Trump lét falla á þessum fyrstu stigum bar­áttu sinnar áttu sér ekki stoð í raun­veru­leik­anum. Engin gögn styðja t.d. þá full­yrð­ingu að inn­flytj­endur fremji fleiri glæpi en þeir sem fæð­ast í Banda­ríkj­unum.

Múslimar í Bandaríkjunum fáir en menntaðir

Hin rót­tæka yfir­lýs­ing, þegar Trump kall­aði eftir því að landa­mærum Banda­ríkj­anna yrði að öllu leyti lokað fyrir múslimum, var sett fram á mánu­dag. Trump rök­studdi kröf­una með því að það væri svo mikið hatur á meðal múslima alls staðar í heim­inum í garð Banda­ríkja­manna að það yrði að loka landa­mær­unum fyrir þeim þangað til að það verður betur hægt að greina og skilja vanda­málið. „Landið okkar getur ekki fórn­ar­lamb hræði­legra árása fólks sem trúir ein­ungis á Jihad." Trump sjálfur, og stuðn­ings­menn hans, hafa síðan ítrekað þessa kröfu.

En þarf Trump að hræð­ast múslima í Banda­ríkj­unum? Á ótti hans við rök að styðj­ast? Banda­ríska frétta­stöðin CNN hefur tekið saman ýmis gögn sem benda til að svo sé ekki. Raunar sé það fjarri lagi.

Í fyrsta lagi eru múslimar mjög lítið brot af þeim sem búa í Banda­ríkj­unum. Þeir eru undir eitt pró­sent full­orð­ina Banda­ríkja­manna og spár gera ráð fyrir að þeir verði 2,1 pró­sent árið 2050. Af þessum hluta er gert ráð fyrir að 63 pró­sent verði inn­flytj­endur, sem Trump vill banna að koma til Banda­ríkj­anna. Það er því ólík­legt að þetta litla þjóð­ar­brot muni taka yfir Banda­ríkin og koma á Sjaría-lögum.

Í sam­an­tekt CNN kemur einnig fram að múslimar í Banda­ríkj­unum eru lík­legri en flestir Banda­ríkja­menn til að hafa lokið háskóla­prófi. Raunar eru gyð­ingar eini trú­ar­hóp­ur­inn sem mæl­ast með hærra mennt­un­ar­stig en múslimar.

Ekki meiri bókstafstrúarmenn en kristnir

Þá á mýtan um að konur séu ætið und­ir­ok­aðar í múslim­skum sam­fé­lögum ekki við um þá sem búa í Banda­ríkj­unum. Um 90 pró­sent banda­rískra múslima eru þeirrar skoð­unar að konur eigi að taka þátt á vinnu­mark­aði og banda­rískar múslima­konur eru mennt­aðri en banda­rískir múslima­karlar.

CNN bendir einnig á að múslimar hafi verið hluti af banda­rísku þjóð­inni frá því að hún varð þjóð. Allt að þriðj­ungur þeirra þræla sem fluttir voru til Banda­ríkj­anna frá Afríku voru múslimar.

Ein mýtan um múslima er þó dag­sönn. Flestir banda­rískra múslima eru mjög trú­aðir. Um helm­ingur þeirra mætir til bæn­halds viku­lega. Hópurinn er þó ekki eins­leitur og 57 pró­sent hans segja að það séu til fleiri leiðir en ein til að túlka ritn­ingar trú­ar­innar.

Þeir skera sig samt ekki frá öðrum trú­ar­hópum í Banda­ríkj­unum varð­andi stað­festu í trúnni. Um 70 pró­sent þeirra Banda­ríkja­manna sem aðhyll­ast kristni segja trúnna vera mik­il­vægan hluta af lífi þeirra og um 45 pró­sent þeirra fara viku­lega trú­ar­lega sam­komu.

Það er líka rétt að banda­rískir múslimar hafa framið hryðju­verk í land­inu frá 11. sept­em­ber 2011 og til loka árs 2014. Alls hafa 50 manns lát­ist í slíkum sem framin hafa verið af banda­rískum múslimum á tíma­bil­inu. Til sam­an­burðar má nefna að á síð­asta ári einu saman lét­ust 136 manns í stór­felldum skot­vopna­árásum í Banda­ríkj­unum, eða 86 fleiri en lét­ust sam­tals vegna hryðju­verka banda­rískra múslima á rúm­lega 13 ára tíma­bili. Auk þess þá hafa múslimar í Banda­ríkj­unum for­dæmt þau hryðju­verk sem framin hafa verið í nafni trúar þeirra í land­inu og hjálpað til við að benda á aðila sem lík­legir eru til að ætla að fremja slík hryðju­verk.

Það virð­ist því vera að full­yrð­ingar Trump séu, sem fyrr, í mik­illi and­stöðu við raun­veru­leik­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár