Boko Haram valdur að fleiri dauðsföllum en Íslamska ríkið

Hryðju­verka­sam­tökin Boko Haram urðu fleirum að bana í fyrra en öll önnur hryðju­verka­sam­tök í heim­inum, þar með talið hið svo­kall­aða Íslamska ríki. Boko Haram bar ábyrgð á dauða 6.664 ein­stak­linga í fyrra en Íslamska ríkið 6.073, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Institute of Economics and Peace, sem New York Times greinir frá.

Sam­an­lagt bera hryðju­verka­sam­tökin tvö ábyrgð á helm­ingi allra dauðs­falla sem verða í hryðju­verka­árásum. Boko Haram hefur heitið stuðn­ingi sínum við Íslamska ríkið, þótt ekki sé ljóst í hversu sá stuðn­ingur felst.

Að minnsta kosti tvær mann­skæðar árásir hafa verið gerðar í vik­unni í Nígeríu, þar sem Boko Haram hafa aðsetur sitt, og talið er að sam­tökin beri ábyrgð á þeim báðum. Á þriðju­dags­kvöld varð spreng­ing á mark­aðs­torgi í borg­inni Yola, sem varð 32 að bana. 80 til við­bótar særð­ust. Enginn hefur hefur lýst árásinni á hendur sér en stjórn­völd segja að Boko Haram hafi verið þar að verki.

Í gær var svo tvö­föld sjálfs­morðsárás gerð í Kano, en stjórn­völd segja að tvær konur hafi sprengt sig í loft upp á mark­aði þar. 12 hið minnsta eru látnir og tugir særðir að sögn stjórn­valda, en vitni og Rauði kross­inn telja að allt að 50 til 60 manns hafi lát­ist.

Margir hátt­settir emb­ætt­is­menn í Nígeríu og nágranna­ríkj­unum, sem og alþjóð­legir sér­fræð­ingar, segja við New York Times að und­an­farið hafi hallað undan fæti hjá sam­tök­unum og þau geti ekki lengur náð yfir­ráðum yfir heilum bæjum eða rænt stórum hópum fólks, eins og áður hefur verið gert. Þess í stað séu árásir á minni skala gerðar á mark­aði og aðra opin­bera staði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár