Veðmálasérfræðingurinn kominn upp við vegg

Það besta sem gat komið fyrir hinn 59 ára gamla John A. Paulson var alls­herj­ar­hrun fjár­mála­mark­aða og fast­eigna­mark­að­ar­ins í Banda­ríkj­unum frá 2007 til 2009. Þá breytti hann eignum sem voru innan við 50 millj­ónir Banda­ríkja­dala í 20 millj­arða dala og gerðu hann að einum rík­asta manni í heimi. Bókin, Greatest Trade Ever, sem blaða­maður Wall Street Journal, Gregory Zuckerman, skrifar, rekur þá ótrú­legu sögu. Í stuttu máli veðj­aði Paulson, með hjálp vinar síns og skóla­fé­laga Paolo Pellegrini, að fast­eigna­verð myndi hrynja og að van­skil myndu hrann­ast upp í kerf­inu með þeim afleið­ingum að skulda­bréfa­vafn­ingar yrðu verð­lausir. Þetta gekk eftir, og bæði Paulson og Pellegrini, sem er doktor í stærð­fræði, urðu mold­ríkir. Pellegrini rekur nú sjóð­inn PSQR en John Paulson er með víð­tæka eigna­stýr­ing­ar­þjón­ustu í nokkrum sjóðum en félag hans Paulson & Co. Inc. er stærst og móð­ur­fé­lag flestra sjóð­anna.

Erfiðleikar hjá Paulson


Í gær var frá því greint að við­skipta­vinir Bank of America Merril Lynch hefðu ákveðið að yfir­gefa sjóði Paulson vegna slæmrar ávöxt­unar í fyrra, og erf­ið­leika það sem af er ári. Samtals hafa nú þegar verið teknir 81 millj­ónir Banda­ríkja­dala úr sjóðum Paulson, en heild­ar­stærð þeirra var um tveir millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 265 millj­örðum króna. Þó 81 milljón Banda­ríkja­dala af tveggja millj­arða dala sjóði virki ekki mikið, þá eru það skila­boðin sem risa­bank­inn er að senda út á mark­að­inn sem eru alvar­leg­ustu tíð­indin fyrir Paulson. Nú standa eft­ir­sótt­ustu við­skipta­vinir sjóða í New York ekki lengur í bið­röðum eftir því að kom­ast með fé sitt til Paulson til ávöxt­unar. Eftir að fréttir spurð­ust út af ótrú­legu veð­máli hans þegar fjár­mála­mark­aðir hrundu, var það reyndin. Hann gat valið fjár­festa til að vinna með.

En síð­ustu tvö árin hafa verið erfið. Áhættu­sæknar fjár­fest­ingar í heil­brigðistengdri nýsköpun hafa ekki skilað sér til baka, og þá hafa stöðu­tökur sjóða hans í hluta­bréfum heldur ekki verið að skila árangri. Eignir eru nú metnar á 11,2 millj­arða Banda­ríkja­dala en voru þegar best lét ríf­lega 30 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um fjögur þús­und millj­örðum króna.

Þrátt fyrir allt er Paulson enn með áhrifa­meiri fjár­festum í New York. Hann velur fífl­djarfa áhættu­sækni í mörgum sínum sjóðum og fjár­festar sem leggja honum til fé sitt vita það mæta vel. Allt getur tap­ast en ef veð­málin ganga upp þá er ávöxt­un­ar­mögu­leik­inn gríð­ar­legur.

[caption id="attachment_10162" align="alignnone" width="1024"] Wall Street, helsta tákn­mynd mark­aða í New York. Fjár­festar sem kenndir eru við meg­in­straum Wall Street eru ekki á sömu línu og Paulson, sem leitar uppi vanda­mál og reynir að græða á þeim. Mynd: EPA.[/caption]

Fjárfesti á Íslandi, í Grikklandi og Púertó Ríkó


Sjóðir í stýr­ingu hjá Paulson létur hrunið á Íslandi ekki fram­hjá sér fara og var sjóð­ur­inn Paulson Credit Oportunities Master um tíma meðal stærstu eig­enda krafna í slitabú Glitnis. Í des­em­ber 2014 seldi hann kröfur sínar sem voru að nafn­virði upp á 53 millj­arða króna á þeim tíma.

Wall Street, helsta táknmynd markaða í New York. Fjárfestar sem kenndir eru við meginstraum Wall Street eru ekki á sömu línu og Paulson, sem leitar uppi vandamál og rennir að græða á þeim. Mynd: EPA.
Wall Street, helsta tákn­mynd mark­aða í New York. Fjár­festar sem kenndir eru við meg­in­straum Wall Street eru ekki á sömu línu og Paulson, sem leitar uppi vanda­mál og rennir að græða á þeim. Mynd: EPA.

Paulson hefur einnig verið með fjár­fest­ingar í gangi á öðrum stöðum þar sem erf­ið­leikar hafa verið fyrir hendi og nú síð­ast í Grikk­landi. Sjóður sem þar hefur fjár­fest fyrir háar fjár­hæðir, Special Situations Fund, skil­aði nei­kvæðri ávöxtun upp á 3,8 pró­sent í júní síð­ast­liðnum og virð­ist sem Paulson hafi verið að veðja á aðra útkomu úr við­ræðum Grikkja við kröfu­hafa en reyndin varð. Sjóð­ur­inn er næst stærsti hlut­haf­inn í Piraeus Bank Group á eftir gríska rík­inu og hefur ein­fald­lega upp­lifað algjört hrun á mark­aðsvirði bank­ans og erf­ið­leika við fjár­mögnun. Þá keypti sjóð­ur­inn einnig hluti í fyr­ir­tækj­unum Athens Water Supply and Sewerage Company, sem fram­leiðir vatn eins og nafnið gefur til kynna. Samtals námu þessar fjár­fest­ingar 137 millj­ónum Banda­ríkja­dala. Mark­aðsvirðið hefur hrunið, og mikið fé tap­ast á skömmum tíma. En Paulson hefur sjálfur beðið fjár­festa um þol­in­mæði, ekki séu öll kurl komin til grafar ennþá í Grikk­landi.

Nýleg kaup hans á opin­berum skuldum Púertó Ríkó, sem á í miklum erf­ið­leikum þessa dag­ana, sýna enn fremur að Paulson vill helst vera þar sem vanda­málin eru stór og mikil. Kaup sjóða hans á kröfum upp á 120 millj­ónir Banda­ríkja­dala er enn ein stað­fest­ing á því.

Gefur ótrúlegar upphæðir til góðgerðarmála


Í maí síð­ast­liðnum sendi Paulson bréf til verk­fræði­deildar Harvard háskóla og sagð­ist hafa áhuga því styrkja deild­ina. Síðan fylgdi annað bréf þar sem hann sagð­ist vilja gefa deild­inni 400 millj­ónir Banda­ríkja­dala, jafn­virði tæp­lega 60 millj­arða króna, sem er stærsta gjöf sem skól­inn hefur nokkurn tím­ann fengið. Fyrstu við­brögð skól­ans voru hik­andi, vegna þess að þetta birt­ist eins og þruma úr heið­skíru lofti. En eftir nokkrar umræður, þar sem gjöfin var gagn­rýnd meðal ann­ars vegna þess að hún þótti það stór að hún gæti búið til þá ímynd að Harvard væri til sölu, þá sagði skól­inn já.

Í febr­úar 2012 kom svipað bréf frá Paulson til almenn­ings­garða félags New York borgar, sem styður við upp­bygg­ingu almenn­ings­garða, þar á meðal kenni­tákns­ins glæsi­lega Central Park. Paulson sagð­ist vilja styrkja upp­bygg­ingu garðs­ins og stuðla að verndun hans. (Myndin hér að neðan sýnir börn að leik í Central Park, sem Paulson vill að verði vernd­aður alveg, og mik­ill pen­ingur settur í almennt við­hald. Blaða­maður fór þangað með syni sínum á dög­unum, sem valdi að vera í vatn­inu í hit­anum, öðru fremur).


Í byrjun ágúst­mán­aðar bár­ust svo fréttir af því að Paulson hefði ákveðið að styrkja Success Academy skól­ann um 8,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, og hafa þær fréttir leitt til gagn­rýni á skól­ann fyrir að taka við pen­ing­unum, nú síð­ast í dag.

Lawmakers slam @MoskowitzEva over $8.5M from #JohnPaul­son http://t.co/hg6BpPW9fQ #NYC #newyork #education #PuertoRicoCrisis #puertorico — Miles Trager (@TragerUFT) August 6, 2015

Er Paulson með plan?


Erf­ið­leik­arnir hjá John Paulson vekja upp spurn­ingar. Er hann með plan, þar sem ávöxt­unin gæti komið hratt til baka ef mark­aðs­að­stæður breyt­ast? Hvernig sér hann fram­tíð­ina fyrir sér? Að hluta er þetta óráðið, enda er hann frægur fyrir að sýna ekki of mikið á spilin heldur frekar reyna að fá fjár­festa til þess að treysta sér fyrir pen­ing­unum sínum, með vit­und um að veð­málin geti farið vel og illa. Þessi tæp­lega sex­tugi fjár­festir, sem hefur BA prófum í klass­ískum vís­indum frá New York Uni­versity og MBA próf frá Harvard, hefur sýnt það áður að hann fer sínar eigin leiðir í stað þess að elta meg­in­straum­inn á Wall Street. Þó hann sé kom­inn upp við vegg núna, þýðir ekki endi­lega að hann viti ekki hvað hann er að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár