Gefa út bókina „Ekkert að fela“ um Samherjamálið á morgun

Teymið sem vann Kveiks-þáttinn um Samherja og viðskipta­hætti fyrir­tækisins í Afríku hefur skrifað bók um málið. Hún kemur út á morgun.

Á morgun, mánudag, kemur út bókin „Ekkert að fela –Á slóð Samherja í Afríku“ eftir Helga Seljan, Aðalstein Kjartansson og Stefán Aðalstein Drengsson, teymið sem vann umfjöllun Kveiks um Samherja og viðskipta­hætti fyrir­tækisins í Afríku sem sýnd var á RÚV á þriðjudags­kvöld.

Bókin er gefin út af Vöku Helga­felli, er 356 síður að lengd og er ítarleg umfjöllun um Samherja­málið. Hún byggir meðal annars á gögnum sem höfundarnir fengu aðganga að í gegnum samstarf sitt við Wikileaks, Al Jazeera og Stundina.

Í henni er sagan sem uppljóstrarinn Jóhannes Stef­ánsson, sagan sem gögnin og tölvu­póstarnir sem Wikileaks hefur nú birt að hluta til á netinu og hlaupa á tugum þúsunda og sagan sem öll hin púslin sem teymið fann við margra mánaða vinnu sína sögð á heild­rænan og ítarlegan hátt og sett í mun víðara samhengi.

Á þriðjudag opinberuðu Kveikur og Stundin hvernig viðskipta­hættir Samherja í Afríku, nánar tiltekið í Namibíu, á síðustu árum á meðan að fyrir­tækið náði undir sig mjög verðmætum hrossa­makrílskvóta í landinu. Það var gert með mútu­greiðslum til tveggja ráðherra í landinu og annarra manna úr þeirra nánasta hring. Þær námu 1,4 milljarði króna hið minnsta og hófust með því að reiðufé var afhent í íþrótta­töskum en tóku svo á sig faglegri mynd og fóru fram í gegnum milli­færslur á reikninga í Dúbaí.

Frá því að þátturinn fór í loftið hafa ráðherrarnir tveir, Bern­hardt Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, og Sacky Shanghala, dóms­mála­ráð­herra lands­ins, sagt af sér emb­ætt­i. Á fimmtudag steig Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, til hliðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið undanfarið ár