Big Ben gengur ekki eins og klukka

Klukkan fræga.
Klukkan fræga. Mynd: KERIM OKTEN / EPA

Þing­hús­klukkan í Lundúnum með sínum fimm bjöllum og dimmum hljómi, ætíð kölluð Big Ben, er án efa ein þekktasta klukka heims. Henni er ætlað að ganga hár­rétt og þegar kólf­ur­inn slær í stóru bjöll­una, til dæmis á hádegi á klukkan að vera nákvæm­lega tólf. Fyrir nokkrum mán­uðum tóku tækni­menn breska rík­is­út­varps­ins, BBC eftir því að sláttur klukk­unnar var sex sek­úndum of seint á ferð­inni en ekki „on the dot“eins og þar­lendir orða það. Ein af rásum breska útvarps­ins, BBC4, útvarpar dag­lega klukku­slætt­inum í upp­hafi kvöld­frétta­tím­ans. Þótt ekki skeik­aði nema sex sek­úndum þótti Bretum þetta alvar­leg tíð­indi. „Það er ekki von á góðu í henni ver­öld þegar meira að segja Big Ben bregst“ sagði við­mæl­andi BBC. Þótt þessi óná­kvæmni vekti vissu­lega athygli og umtal bár­ust brátt aðrar og alvar­legri fréttir af ástand­inu í hinum heims­þekkta klukkuturni.

Bjartsýnir úrsmiðir

Árið 2007 var klukkan ásamt bjöll­unum yfir­farin og ýmsir hlutir í gang­verk­inu end­ur­nýj­aðir. Það verk tók sex vikur og þegar því lauk höfðu úrsmiðir (hálf­gert rang­nefni í þessu til­viki) breska þings­ins á orði að ekki yrði þörf á annarri eins yfir­haln­ingu næstu tvö hund­ruð árin. Þau ummæli reynd­ust byggð á mik­illi bjart­sýni því nokkrum árum síðar kom í ljós að margt í þessu flókna og stóra klukku­verki var farið að gefa sig og nán­ast komið á síð­asta snún­ing. Málið var rætt í breska þing­inu og ákveðið að skipa nefnd til að meta ástandið og koma með til­lögur.

Svört skýrsla

Þing­manna­nefndin lauk störfum fyrir nokkrum vikum. Skýrsla hennar hefur ekki enn verið birt opin­ber­lega en inni­haldið hefur kom­ist í hendur fjöl­miðla. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar er í stuttu máli sú að grípa verði sem allra fyrst til meiri­háttar við­gerða á klukk­unni, bæði úrverk­inu sjálfu og bjöll­unum. Ef það verði ekki gert sé mikil hætta á að klukkan skemmist svo mikið að hún verði ónot­hæf og jafn­vel ónýt. Breska blaðið Daily Mail hefur eftir breskum þing­manni að sig hefði sundlað þegar hann las skýrsl­una. Engan hefði grunað að ástandið á þessu einu helsta tákni bresku þjóð­ar­innar væri jafn bág­borið og fram kemur í skýrsl­unni. Skýrslu­höf­undar telja að við­gerð á klukk­unni og því sem henni til­heyrir kosti sem sam­svari tæpum átta millj­örðum íslenskra króna, jafn­vel meira. Það er mikið fé en þar með er ekki öll sagan sögð því þing­húsið sjálft er í mik­illi nið­ur­níðslu, utan dyra og innan. Kostn­að­ur­inn við þær við­gerðir er met­inn jafn­gildi fjórtán hund­ruð millj­arða íslenskra króna. Eins og áður­nefndur breskur þing­maður sagði í við­tali við Daily Mail er við­gerðin á Big Ben smá­mál í þeim sam­an­burði. Til tals hefur komið að breska þingið flytji úr þing­hús­inu meðan við­gerðir, sem hvorki hafa verið ákveðnar né tíma­settar, fari fram en margir þing­menn hafa lýst and­stöðu við þær hug­myndir.

Sögufrægar byggingar

Breska þing­húsið heitir réttu nafni Palace of Westminster en er yfir­leitt kallað Houses of Parli­ament (hýsir báðar deildir, House, þings­ins) eða ein­fald­lega Westminster. Þing­húsið var byggt á árunum 1840 – 70 á rústum eldra þing­húss sem eyði­lagð­ist í eldi árið 1834. Arkitekt var Charles Barry. Samtímis ákvörðun um bygg­ingu þing­húss­ins var ákveðið að við það skyldi reistur klukku­turn og sér­stak­lega til­tekið að klukku­skífa yrði sýni­leg úr öllum áttum og klukkan skyldi ganga hár­rétt. Turninn sem nú ber nafn Elísa­betar II og iðu­lega rang­lega kall­aður Big Ben er 96 metra hár, smíði hans lauk 1859. Klukku­skíf­urnar fjórar, ein á hverri hlið, eru í 55 metra hæð. Þær eru um það bil 7 metrar í þver­mál, stóri vísir­inn 4.3 metra langur og sá minni 2.7 metrar. Úrverkið situr fyrir neðan skíf­urnar og er engin smá­smíði, vegur 5 tonn. Turninn og klukku­skíf­urnar teikn­aði Augustus Pugin.

Lögfræðingur og klukkuhönnuður

Þótt það freist­aði margra að hanna og smíða klukk­una gekk illa að fá ein­hvern til að taka verkið að sér. Til þess voru þær ástæður helstar að hér var um mjög flókið verk­efni að ræða og kröfur þings­ins strangar. Á end­anum tóku þekktir úrsmiðir, Edward og Frederick Dent verkið að sér í sam­vinnu við lög­fræð­ing­inn og áhuga­úrsmið­inn Edmund Beckett Denison. Denison hafði enga form­lega menntun sem úrsmiður en var að sögn ákaf­lega ráð­ríkur og sjálfsör­uggur. Smíði úrverks­ins og skíf­anna fjög­urra gekk vel, bjöll­urnar voru steyptar á þekktu verk­stæði í Lundúnum. Eftir að fljót­andi málm­inum hafði verið hellt í mótið tók það málm stóru bjöll­unnar 20 daga að kólna. Sú stóra vegur tæp 14 tonn og er 2.3 metrar á hæð og 2.75 metrar í þver­mál, hinar eru langtum minni. Þegar verið var að prófa stóru bjöll­una vildi ekki betur til en svo að hún hrökk i sundur. Þá var steypt önnur bjalla sem flutt var með mik­illi við­höfn niður að Westminster. Klukkan glumdi svo í fyrsta skipti sum­arið 1859.

Denison krafð­ist þess að kólf­ur­inn yrði hafður mun þyngri en upp­haf­lega var gert ráð fyrir, til að slátt­ur­inn yrði öfl­ugri. Það hafði þær afleið­ingar að um það bil tveimur mán­uðum eftir að klukkan var tekin í notkun kom sprunga í hana. Gert var við sprung­una og bjöll­unni snúið og jafn­framt settur í hana létt­ari kólfur. Þessar til­fær­ingar eru taldar ástæður þess að hljóm­ur­inn er nokkru dimmari og þyngri en ráð var fyrir gert.

Hvaðan kemur nafnið Big Ben?

Tilgátur um nafnið Big Ben eru margar en hvað er satt og rétt í þeim efnum er ekki vitað. Ein til­gátan, og sú lífseig­asta, er sú að þegar þing­menn höfðu rætt klukku­stundum saman um hvað klukkan skyldi heita tók til máls Sir Benjamin Hall. Hann var hár maður vexti og þrek­vax­inn og gekk undir nafn­inu Big Ben. Þing­mað­ur­inn tal­aði lengi og þegar hann sett­ist að lok­inni ræð­unni kall­aði einn þing­maður „Af hverju köllum við hana ekki bara Big Ben“. Hávær hlátra­sköll gullu við í þingsalnum en þarna var nafnið komið. Formlega heitir stóra bjallan The Great Bell en það nafn þekkja fáir.

Turninn hallar

„Ef turn­inn er lóð­réttur hall­ast kór­inn til hægri“ segir í þekktu ljóði Steins Steinars. Það ljóð var, sem kunn­ugt er, ekki ort um breska þing­húsið. Ljóðið hefði heldur ekki getað átt við klukku­turn­inn af tveimur ástæðum: þar er eng­inn kór og svo hitt að turn­inn er ekki lóð­réttur, hann hallar. Ekki mikið en þó svo að greina má með berum augum. Ekki er vitað um ástæður þessa en ýmsar skýr­ingar á lofti. Fram­kvæmdir við lesta­göng neð­an­jarðar, jarð­veg­ur­inn undir turn­inum hafi þornað og fleira er nefnt. Fylgst hefur verið með þessum breyt­ingum frá árinu 1999. Umsjón­ar­maður turns­ins segir að nú um stundir sé meiri ástæða til að hafa áhyggjur af klukk­unni. Miðað við breyt­ingar á halla turns­ins þurfi að gera ráð­staf­anir eftir um það bil 4000 ár, í fyrsta lagi. Það sé því drjúgur tími til und­ir­bún­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár