Milljarði króna veðjað á einn leik á Íslandi - áhugi veðmálahópa skapar freistnivanda

Velta veð­mála á einn leik í efstu deild karla í íslenskri knatt­spyrnu getur verið allt að einn millj­arður króna. Verið er að veðja á leiki sem fara fram á Íslandi út um allan heim, sér­stak­lega í Asíu. Ástæður þessa er aðal­lega þær að íslenska deildin er spiluð á sumrin, þegar nán­ast allar knatt­spyrnu­deildir í heimi eru í fríi, og að hún er álitin spill­ing­ar­frí. Og það er ekki bara verið að veðja á leiki í efstu deild. Þvert á móti. Það er veðjað á allar deildir karla og kvenna, leiki í öðrum flokki karla og meira að segja leiki í utandeild­inni. Dæmi eru um að æfing­ar­leikir að vori, þar sem úrslitin skipta engu máli, hafi ratað inn á veð­mála­síður virtra veð­mála­fyr­ir­tækja.

Við þessa aukn­ingu, og vegna þeirra háu fjár­hæða sem undir eru, eru upp áhyggjur af því að það skap­ist freistni­vandi til að hafa rangt við til að hag­ræða úrslitum.

Formaður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) sá til­efni til að minn­ast sér­stak­lega á hag­ræð­ingu úrslita í pistli í síð­ustu viku, Íslensk get­spá fylgist grannt með þessum málum og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur skipað nefnd til að skoða þau.

Ásakanir en engar sannanir


Geir Þor­steins­son, for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ), skrif­aði pistil á heima­síðu sam­bands­ins 28. apríl síð­ast­lið­inn. Inntak hans var að mestu að bjóða knatt­spyrnu­fólk og stuðn­ings­menn vel­komna til leiks, enda Íslands­mótið þá rétt óhafið.

Athygli vakti hins vegar að Geir kaus að fjalla sér­stak­lega um hag­ræð­ingu úrslita í pistl­inum. Þar bað hann aðild­ar­fé­lög KSÍ um að vera á varð­bergi gagn­vart slíkri hag­ræð­ingu. „Alltof víða hafa knatt­spyrnu­sam­bönd þurft að glíma við slíka svika­starf­semi. Það er nokkuð sem við viljum ekki sjá innan okkar raða.“

Kjarninn beindi í kjöl­farið spurn­ingum til Geirs um málið og spurði hann meðal ann­ars hvort KSÍ hefði ein­hverjar upp­lýs­ingar um hópa eða aðila sem hafi reynt að fá leik­menn á Íslandi til að hag­ræða úrslitum. Geir segir það hafa komið fram ásak­anir um slíkt en að ekk­ert hafi sann­ast. Að sögn Geirs hefur KSÍ ekki upp­lýs­ingar um að fólk sé að störfum fyrir erlenda veð­mála­hópa hér­lendis. „Við höfum orðið vör við fólk á leikjum sem aflar upp­lýs­inga og sendir þær frá sér, vænt­an­lega til erlendra get­rauna­fyr­ir­tækja.“

Hann segir Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bandið (FIFA) og Knatt­spyrnu­sam­band Evrópu (UEFA)hafa á síð­ast­liðnum árum staðið fyrir fræðslu til að gera knatt­spyrnu­sam­bönd með­vit­að­ari um hag­ræð­ingu úrslita. „Þá hafa FIFA og UEFA sett upp eft­ir­lits­kerfi sem ná til efstu deilda. KSÍ hefur fyrst og fremst vakið athygli aðild­ar­fé­laga á mál­inu auk þess sem í und­ir­bún­ing er aukin fræðsla.“

[caption id="attachment_28192" align="alignnone" width="656"] Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, skrif­aði pistil í síð­ustu viku sem vakti tölu­verða athygli. MYND:UEFA.COM[/caption]

Milljarður í veltu á einum leik á Íslandi


Það er ekki að ástæðu­lausu sem knatt­spyrnu­sam­bönd eru að hafa miklar áhyggjur af mögu­legum áhrifum veð­mála­starf­semi á hag­ræð­ingu úrslita. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá íslenskri Getspá er talið að veð­mála­mark­að­ur­inn í heim­inum sé að velta um 400 millj­örðum dala á ári, eða 52,8 þús­und millj­örðum íslenskra króna. Þar af eru veð­mál á íþróttir að velta um 50 millj­örðum dala, um 6.600 millj­örðum króna. Það eru vel rúm­lega þrjár árlegar íslenskar þjóð­ar­fram­leiðslur. Um 70 pró­sent af þessum veð­málum eru á vin­sæl­ustu íþrótt í heimi, knatt­spyrnu.

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, skrifaði pistil í síðustu viku sem vakti töluverða athygli. MYND:UEFA.COM
Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, skrif­aði pistil í síð­ustu viku sem vakti tölu­verða athygli. MYND:UEFA.COM

Pétur Hrafn Sig­urðs­son, deild­ar­stjóri get­rauna­deildar Íslenskrar Getspár, segir að með því að horfa á þessar tölur sé hægt að áætla hvað verið sé að veðja á leiki í íslensku deild­inni. Íslands­mótið í knatt­spyrnu er spilað á sumrin þegar mjög fáar aðrar deildir eru í gangi og auk þess eru margir leikir í deild­ar­keppn­inni spil­aðir á mánu­dögum. Það sé nán­ast aldrei spilað á þeim dögum í öðrum löndum og því fá leikir á Íslandi mikið vægi hjá veð­mála­síðum. „Það eru kannski fimm til sjö leikir í efstu deild í gangi í heim­inum á mánu­degi í júlí. Þá er kannski kom­inn um millj­arður króna í veltu á einn leik í efstu deild á Íslandi. Það er rosa­lega mikið.“

[quote font="0" align="right"]„Það eru kannski fimm til sjö leikir í efstu deild í gangi í heim­inum á mánu­degi í júlí. Þá er kannski kom­inn um millj­arður króna í veltu á einn leik í efstu deild á Íslandi. Það er rosa­lega mikið.[/quote]

Pétur segir fleira spila inn í en að á Íslandi sé spiluð sum­ar­deild. Íslenska deildin, og hinar nor­rænu deild­irnar, eru taldar spill­ing­ar­fríar. Það geri það að verkum að vin­sælla sé að veðja á þær.

Asíumarkaðurinn langstærstur


Þeir sem þekkja ekki til gera sér kannski ekki grein fyrir umfangi veð­mála­starf­semi í heim­inum. Það eru tugir ef ekki hund­ruð þús­unda vef­mála­síðna út um allan heim. Sumar eru lög­legar, margar ólög­legar eða ein­ungis lög­legar í ákveðnum hluta heims­ins.

Þessi starf­semi er lang­um­svifa­mest í Asíu. Sá mark­aður er langstærstur. Líka þegar kemur að því að veðja á leiki á Íslandi.

Til að setja aðdrátt­ar­afl veð­mála á íslenska leiki í sam­hengi segir Pétur frá því að hann hafi einu sinni verið staddur í teppa­búð í Istanbúl í Tyrk­landi með eig­in­konu sinni fyrir nokkrum árum. „Þar sat eig­and­inn með get­rauna­blöð­ung í hönd­unum og var að velta fyrir sér leik ÍBV og KR. Þegar hann komst að því að ég væri frá Íslandi vildi hann fá að vita allt sem ég vissi um leik­inn. Ég ætl­aði aldrei að losna út.

Annað dæmi er þegar ég hitti mann frá Ísrael fyrir nokkrum árum. KR hafði þá verið spáð Íslands­meist­aratitli en gekk illa í deild­inni. Hann spurði mig mikið um hvað væri í gangi hjá KR? Af hverju þeir væru að tapa svona mörgum leikjum?

Þetta er því orðið rosa­lega stórt alþjóð­lega, að veðja á íslenska leiki.“

Veðjað á dómaralausa æfingaleiki


Það er ekki bara verið að veðja á leiki í efstu deild karla. Þvert á móti er verið að veðja á leiki í öllum deildum karla og kvenna á Íslandi, utandeild karla, leiki í öðrum flokki karla og meira að segja æfing­ar­leiki sem skipta engu máli.

Pétur segir það alls ekki þannig að ein­ungis óþekktar eða ólög­legar veð­mála­síður séu að bjóða upp á að veðja á íslenska leiki. Flestar síður séu að gera það, enda er hluti af sam­keppn­inni á þessum mark­aði að bjóða upp á sem mest úrval. „Þess vegna eru fyr­ir­tækin að bjóða upp á þessa leiki sem þau vita kannski ekk­ert um . William Hill, sem er þekkt breskt veð­mála­fyr­ir­tæki, bauð til dæmis upp á veð­mál á æfinga­leik milli Leiknis og ÍR í mars síð­ast­liðnum. Það var ekki alvöru dóm­ari að dæma þann leik. Úrslitin skiptu engu máli enda leikur á und­ir­bún­ings­tíma­bili. Það er mjög slæmt að hægt sé að veðja á leiki þar sem úrslitin skipta engu máli. Vegna þess að það skapar ákveð­inn freistni­vanda.“

[caption id="attachment_28191" align="alignnone" width="654"] Það er ekki bara verið að veðja á efstu deild karla. Veðjað er á leiki í öllum deildum, bæði karla og kvenna. Það er meira segja veðjað á leiki í öðrum flokki, utandeild­inni og æfing­ar­leiki.[/caption]

Búið að skipa íslenska nefnd


Það hafa ekki komið upp mörg mál hér­lendis um að leik­menn hafi reynt að hag­ræða úrslitum vegna veð­mála­svindls. Það hafa þó komið upp til­vik þar sem slíkt hefur verið rann­sakað. Í jan­úar 2014 átti Þór Akureyri að leika við Dalvík/Reyni í Kjarna­fæð­is­mót­inu. Rannsókn leiddi í ljós að tölu­verðar upp­hæðir höfðu verið lagðar undir á að Þór myndi vinna leik­inn með fleiri en þremur mörkum. Svo háar að veð­mála­síðan sem bauð upp á leik­inn lækk­aði stuð­ul­inn á leiknum skarpt í aðdrag­anda hans. Þór vann leik­inn 7-0 og síðar var greint frá því að einn leik­manna Dalvíkur/Reynis hafi veðjað á leik­inn. Málið hafði enga eft­ir­mála.

Það er ekki bara verið að veðja á efstu deild karla. VEðjað er á leiki í öllum deildum, bæði karla og kvenna. Það er meira segja veðjað á leiki í öðrum flokki, utandeildinni og æfingarleiki.
Það er ekki bara verið að veðja á efstu deild karla. VEðjað er á leiki í öllum deildum, bæði karla og kvenna. Það er meira segja veðjað á leiki í öðrum flokki, utandeild­inni og æfing­ar­leiki.

Pétur segir fleiri dæmi hafa komið upp þar sem grun­semdir hafi vaknað um að rangt hafi verið haft við. Til dæmis muni hann eftir leik þar sem mark­vörður fékk á sig tvö klaufa­leg mörk á mjög skömmum tíma. Þá hafi verið kannað hvort miklar fjár­hæðir hafi verið lagðar undir á leik­inn. Svo reynd­ist hins vegar ekki vera.

Hann segir að Íslensk get­spá sé hluti af evr­ópu­sam­tökum get­rauna­fyr­ir­tækja. „Ef það kemur í ljós óeðli­legt veð­mál á íslenskan leik þá klingja bjöllur þar. Þá er hægt að skoða, hjá veð­mála­síð­unum, hvaðan það veð­mál kemur.“

Og það er ljóst að það á að taka þessi mál fast­ari tökum en áður. Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið skip­aði fyrir skemmstu nefnd sem á að fjalla um hag­ræð­ingu úrslita og meðal ann­ars að gera við­bragðs­á­ætlun ef slík mál koma upp. Í henni munu m.a. sitja full­trúar frá Íslenskri get­spá, KSÍ og lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár