Yfirkjörstjórn telur Áslaugu Örnu ekki hafa brotið gegn reglum Sjálfstæðisflokksins

Utan­rík­is­ráð­herra og aðstoð­ar­maður hans kærðu dóms­mála­ráð­herra fyrir að brjóta reglur próf­kjörs, þar sem þau takast á. Ekki verður aðhafst frekar vegna máls­ins.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Yfir­kjör­stjórn Varðar, full­trúa­ráðs Sjálf­stæðis­fé­lag­anna í Reykja­vík, mun ekki aðhaf­ast frekar athuga­semda fram­boða Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra og Diljár Mistar Ein­ars­dóttur, aðstoð­ar­manns hans, sem kærðu Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra fyrir að brjóta reglur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Próf­kjörið hefst á morgun og lýkur á laug­ar­dag.

Í sam­eig­in­legri kæru Guðlaugs Þórs, sem keppir við Áslaugu Örnu um fyrsta sætið í próf­kjör­inu og Diljár Mistar, sem sæk­ist eftir þriðja sæti í próf­kjör­inu, sagði að Magnús Sig­ur­björns­son, bróðir Áslaugar Örnu og kosn­inga­stjóri hennar, hafi í aðdrag­anda próf­kjörs­ins og eftir að fram­boðs­frestur rann út haft aðgang að flokks­skrá Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem finna má „ná­kvæmar og stöðugt upp­færðar upp­lýs­ingar um flokks­menn.“

[adspot]Í kærunni kom fram að ábend­ingar hefðu borist kærendum um að nýskráðir Sjálf­stæð­is­menn hefðu fengið sím­tal frá fram­boði Áslaugar Örnu þar sem þeir eru boðnir vel­komnir í flokk­inn. „Rennir það stoðum undir þá ályktun að fram­boð Áslaugar Örnu hafi haft aðgang að þessum nákvæmu per­sónu­upp­lýs­ingum og nýtt þær í þágu fram­boðs­ins.“

[links]Í úrskurði yfir­kjör­stjórnar segir að hún hafi farið yfir efni athuga­semd­anna, aflað sér nán­ari upp­lýs­inga og kynnt sér gögn máls­ins. „Magnús Sig­ur­björns­son hafði aðgang að flokk­skrá Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna verk­efna sem hann vann fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Verkefni Magnúsar sner­ist að því að tengja saman flokks­skrá og nýtt tölvu­póst­kerfi flokks­ins. Magnús hafði áður unnið hjá flokknum í rúm fjögur ár. Var aðgangi Magnúsar að flokks­skrá lokað þann 1. júní sl. Magnús hefur aldrei haft aðgang að kjör­skrá vegna próf­kjörs­ins sem haldið verður 4. og 5. júní nk.

Yfir­kjör­stjórn fór yfir inn­skrán­ingar Magnúsar í flokks­skrá. Síðasta inn­skrán­ing Magnúsar var þann 10. maí. Var sú inn­skrán­ing að beiðni starfs­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna verk­efnis sem Magnús vann að. Fram­boðs­frestur vegna próf­kjörs­ins rann út föstu­dag­inn 14. maí sl.

Kjörskrá var afhent fram­bjóð­endum þann 18. maí. Þá var við­bót við kjör­skrá sem m.a. inni­hélt nýskrán­ingar aðgengi­leg öllum fram­boðum kl. 10.00 mánu­dag­inn 31. maí. Fyrir liggur að fram­bjóð­endur sem vildu nýta sér þau gögn hófu úthring­ingar strax í kjöl­farið. Í ljósi fram­an­greinds er það nið­ur­staða yfir­kjör­stjórnar að athuga­semd­irnar eigi ekki við rök að styðj­ast og ekki hafi verið brotið gegn ákvæðum 2. mgr. 4. gr. próf­kjörs­reglna um jafnan aðgang að gögnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár