Guðlaugur Þór kærir framboð Áslaugar Örnu

Guð­laugur Þór og Áslaug Arna kepp­ast um fyrsta sætið í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík. Nú hefur Guð­laugur Þór ásamt Diljá Mist Ein­ars­dóttur, sem er aðstoð­ar­maður Guðlaugs og einnig í fram­boði, kært fram­boð Áslaugar Örnu.

Ráðherrarnir tveir sækjast eftir fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Ráð­herr­arnir tveir sækj­ast eftir fyrsta sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Kjarninn/Samsett

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, hefur lagt fram kæru á hendur Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, dóms­mála­ráð­herra, fyrir að brjóta reglur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík en próf­kjörið hefst á morgun og lýkur á laug­ar­dag. Frá þessu greinir Frétta­blaðið.

Í frétt á vef blaðs­ins kemur fram að í sam­eig­in­legri kæru Guðlaugs Þórs og Diljár Mistar Ein­ars­dóttir sem sæk­ist eftir þriðja sæti í próf­kjör­inu segir að Magnús Sig­ur­björns­son, bróðir Áslaugar Örnu og kosn­inga­stjóri hennar, hafi í aðdrag­anda próf­kjörs­ins og eftir að fram­boðs­frestur rann út haft aðgang að flokks­skrá Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem finna má „ná­kvæmar og stöðugt upp­færðar upp­lýs­ingar um flokks­menn.“

Í kærunni kemur fram að ábend­ingar höfðu borist kærendum um að nýskráðir Sjálf­stæð­is­menn hefðu fengið sím­tal frá fram­boði Áslaugar Örnu þar sem þeir eru boðnir vel­komnir í flokk­inn. „Rennir það stoðum undir þá ályktun að fram­boð Áslaugar Örnu hafi haft aðgang að þessum nákvæmu per­sónu­upp­lýs­ingum og nýtt þær í þágu fram­boðs­ins,“ segir í kærunni.

Óska eftir því að gerðar verði viðeigandi ráðstafanir

Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins var kæran send stjórn Varðar, full­trúa­ráðs flokks­ins í Reykja­vík, og óskað var eftir því að hún bær­ist yfir­kjör­stjórn.

Óskað er eftir því í kærunni að yfir­kjör­stjórn sem og aðrir fram­bjóð­endur verði upp­lýstir um aðstöðumun fram­bjóð­enda. Þá er það sagt nauð­syn­legt að yfir­kjör­stjórn og fram­kvæmda­stjórn flokks­ins „kanni nánar hugsan­legar af­leið­ingar meintra brota og geri við­eig­andi ráð­staf­anir lögum sam­kvæmt.“

Líkt og áður segir hefst próf­kjör Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík á morgun og lýkur á laug­ar­dag­inn. Áslaug og Guð­laugur hafa bæði sóst eftir fyrsta sæt­inu í próf­kjör­inu. Diljá Mist hefur sóst eftir þriðja sæti í próf­kjör­inu en hún er aðstoð­ar­maður Guðlaugs Þórs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár