Fjármál Heilsustofnunar í Hveragerði til skoðunar

Sjúkra­trygg­ingar skoða hvernig Heilsu­stofnun í Hvera­gerði nýtir opin­bera fjár­muni upp á 875 millj­ónir króna. Til stendur að byggja heilsu­dval­ar­stað fyrir ferða­menn. Stundin hefur fjallað um há laun stjórn­ar­for­manns, greiðslur til móð­ur­fé­lags og sam­drátt í geð­heil­brigð­is­þjón­ustu.

Gunnlaugur K. Jónsson
Gunn­laugur K. Jónsson Óskað hefur verið eftir til­lögum vegna mik­illar upp­bygg­ingar Heilsu­stofn­unar á næst­unni.

Fjármál Heilsu­stofn­unar í Hvera­gerði eru til skoð­unar hjá Sjúkra­trygg­ingum Íslands. Þetta stað­festir María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga. Millj­arða­upp­bygg­ing með þjón­ustu fyrir ferða­menn hefur verið kynnt á svæði stofn­un­ar­innar, sem er að mestu rekin fyrir opin­bert fé.

Stundin fjall­aði ítar­lega um mál­efni stofn­un­ar­innar síð­asta sumar þegar for­stjóri hennar var skyndi­lega lát­inn hætta. Greint var frá því að laun Gunn­laugs K. Jóns­sonar, stjórn­ar­for­manns stofn­un­ar­innar, hafi tvö­fald­ast milli ára og hann hafi fengið 1,2 millj­ónir í mán­að­ar­greiðslur árið 2018 sam­hliða störfum sínum sem lög­reglu­maður. Þá gagn­rýndi frá­far­andi starfs­maður háar greiðslur til móð­ur­fé­lags­ins, Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands (NLFÍ), sem lýtur stjórn sömu aðila, og sagði þær bók­halds­brellu til að flytja fé úr rekstr­inum.

„Þetta er í vinnslu hér,“ segir María um mál­efni stofn­un­ar­innar. „Við höfum kallað eftir gögnum og fengið frá Heilsu­stofnun og erum að vinna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár