Björgólfur Thor lítið sýnilegur á Íslandi

Björgólfur Thor er aðeins stjórn­ar­maður í einu íslensku félagi, þrátt fyrir að vera lang­rík­asti Íslend­ing­ur­inn. Tveir helstu sam­verka­menn Björg­ólfs Thors eru stærstu hlut­hafar leigu­fé­lags­ins Ásbrúar á gamla varn­ar­liðs­svæð­inu. Eign­ar­haldið er í gegnum Lúx­em­borg. Talskona Björg­ólfs segir hann ekki tengj­ast félag­inu, þótt heim­il­is­föngin fari saman.

Sagður ekki tengjast leigufélaginu
Sagður ekki tengj­ast leigu­fé­lag­inu Ragn­hildur Sverr­is­dóttir segir að Björgólfur Thor eigi ekk­ert í leigu­fé­lag­inu Ásbrú en tveir af hans nán­ustu aðstoð­ar­mönnum og ráð­gjöfum, Andri Sveins­son og Birgir Már Ragn­ars­son, eru stærstu hlut­haf­arnir í gegnum félag í Lúx­em­borg. Mynd:

Tveir af nán­ustu sam­verka- og aðstoð­ar­mönnum Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar fjár­festis í gegnum árin, Andri Sveins­son og Birgir Már Ragn­ars­son, eru stærstu hlut­hafar leigu­fé­lags­ins Ásbrúar í gegnum félag í Lúx­em­borg sem þeir eru skráðir eig­endur að. Félag þeirra er stærsti ein­staki eig­andi stærsta hlut­hafans, sem á 90 pró­senta hlut, og eiga þeir 28 pró­senta hlut í honum. 

Ásbrú er eitt af þeim félögum sem keypti fast­eignir á gamla varn­ar­liðs­svæð­inu á Mið­nes­heiði af rík­is­fyr­ir­tæk­inu Kadeco fyrir nokkrum árum. Samtals keypti Ásbrú ehf. 470 íbúðir af Kadeco árið 2016. Ásbrú hefur síðan selt hluta af íbúð­unum en leigir hluta þeirra út.

Stærsti eig­andi Ásbrúar er félagið P190 ehf. Þeir Andri og Birgir Már hafa unnið hjá fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Björg­ólfs Thors, Novator, í á annan ára­tug og eru einnig hlut­hafar í félag­inu. Þeir eiga saman félagið Omega S.á.r.l. í Lúx­em­borg sem á 28 pró­senta hlut í P190 ehf., stærsta hlut­hafa leigu­fé­lags­ins í gegnum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár