Ofbeldissaga Mayweather í sviðsljósinu

Talið er að 400 millj­ónir manna hafi horft á hnefa­leika­bar­dag­ann milli Floyd Mayweather og Manny Pacquiano í gær. Þessi „bar­dagi ald­ar­innar“ vakti mikla athygli og það fór svo að Floyd Mayweather sigr­aði, sem þýðir að hann hefur nú sigrað í 48 bar­dögum. Hann hefur aldrei tapað.

Fjöl­miðla­at­hyglin í kringum bar­dag­ann var gríð­ar­leg, enda hefur bar­dag­ans verið beðið í fimm ár, en athyglin var ekki öll jákvæð. Bar­dag­inn varð fjöl­mörgum banda­rískum fjöl­miðlum til­efni til þess að rifja upp sögu Mayweather, sem er hæst laun­aði íþrótta­maður í heim­inum. Hann fékk til að mynda um 180 millj­ónir dala fyrir bar­dag­ann í gær.

Mayweather á sér mikla ofbeld­is­sögu og hefur fengið á sig dóm fyrir að hafa beitt fyrr­ver­andi konu sína ofbeldi fyrir framan börnin þeirra. Hann hót­aði sonum sínum þegar þeir reyndu að stöðva ofbeldið. Dómurinn var þó vægur, hann var dæmdur í 90 daga fang­elsi en fulln­ustu dóms­ins var frestað svo að hann gæti barist í hnefa­leika­bar­daga í Las Vegas.

Fyrr­ver­andi konan hans, Josie Harris, er móðir þriggja af fjórum börnum hans. Hún steig nýverið fram og sagði frá því að hnefa­leika­kapp­inn beitti hana lík­am­legu ofbeldi í sex skipti, og lýsti einnig miklu and­legu ofbeldi. Alvar­leg­asta árásin var eftir að þau skildu, og það er sú árás sem hann var dæmdur í 90 daga fang­elsið fyrir. Þá kom hann inn á heim­ili Harris og barna þeirra. Hún var sof­andi þegar hann réðst á hana, kýldi og spark­aði í hana. Elsti sonur þeirra, Koraun, var tíu ára þegar þetta gerð­ist og hann lædd­ist út úr hús­inu og lét örygg­is­vörð vita, sem hringdi á lög­regl­una. Mæðginin sögðu sögu sína í USA Today, þar sem fram kom að Mayweather vilji ekki gang­ast við ofbeld­inu þrátt fyrir að hafa játað fyrir dómi. „Hann er heigull,“ sagði son­ur­inn um pabba sinn.

Shantel Jackson var trú­lofuð Mayweather eftir að hann skildi við Harris. Hún hefur líka kært hann fyrir lík­am­legt og and­legt ofbeldi. Hún segir að hann hafi nán­ast haldið henni fang­inni á heim­ili þeirra í Las Vegas. Hann hafi beint byssu að henni og hótað að skjóta hana.

New York Times er meðal þeirra fjöl­miðla sem fjöll­uðu um ofbeldi Mayweather í aðdrag­anda bar­dag­ans. Í grein fjöl­mið­ils­ins kemur einnig fram að árið 2003 hafi hann kýlt tvær vin­konur Harris, játað og fengið skil­orðs­bund­inn dóm. Þá eru einnig nokkur dæmi um að hann hafi beitt karl­menn ofbeldi og hótað þeim. Í eitt skipti braut hann kampa­víns­flösku á höfði manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár