Norskur ráðherra segist ekki sjá ástæðu til að hjálpa Samherja að safna meiri kvóta

Norsk stjórn­völd hafa gripið form­lega til aðgerða vegna til­raunar Samherja til að kom­ast yfir aukin fisk­veiði­kvóta þar í landi. Reglur verða hertar og fjár­fest­ingar erlendra aðila í sjáv­ar­út­vegi þar í landi verða bundnar sér­stakri heim­ild.

Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja og sonur hans, Baldvin Þorsteinsson, er yfir Evrópuútgerð Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja og sonur hans, Baldvin Þor­steins­son, er yfir Evr­ópu­út­gerð Samherja. Mynd: Skjáskot/RÚV

Sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyti Noregs hefur form­lega fyr­ir­skipað Fiski­stofu (Fisker­i­di­rekt­ora­tet) þar í landi að herða reglur sem snúa að erlendu eign­ar­haldi á fisk­veiði­skipum sem úthlutað hefur verið fisk­veiði­kvóta í Noregi. Fiski­stofa á nú að leggja sér­stakt mat á hvort reglur séu brotnar. Til við­bótar stendur til að setja nýja reglu­gerð sem mun gera það að verkum að norsk stjórn­völd verða að veita sér­staka heim­ild fyrir slíkum kaupum. Eins og er þá er nóg að til­kynna um kaup erlendra aðila á skipum með fisk­veiði­kvóta, en ekki þarf að sækja sér­staka heim­ild.

Í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef norska stjórn­ar­ráðs­ins í dag vegna þessa er haft eftir Odd Emil Ingebrigt­sen, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs, að hann reyni ekki að fela að fyr­ir­skip­unin eigi rætur sínar að rekja til kaupa íslenska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja, eins stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis Evrópu, á 40 pró­sent hlut í norskri útgerð, Eskøy í Finn­mörku í Norður-Noregi. „Samherji er þegar með við­veru í fjöl­mörgum evr­ópskum fisk­veiði­þjóðum og hefur veitt í okkar lög­sögu undir mis­mun­andi fánum, og slík alþjóð­leg sam­þjöppun á eign­ar­haldi leiðir af sér sér­stakar stjórn­unar­á­skor­anir.“

[adspot]Hann segir enn fremur að reglu­verk um þátt­töku í veiðum og eign­ar­hald á fisk­veiði­flot­anum þar í landi miði að því að virkir fisk­veið­endur eigi fisk­veiði­skip, og að strand­byggðir í Noregi njóti góðs af sjáv­ar­út­vegi. „Það er þess vegna góð ástæða til þess að skoða gaum­gæfi­lega þá erlendu eig­endur sem þrátt fyrir þetta eru við­ur­kenndir. Ég sé enga ástæða til að vera sér­stak­lega hjálp­legur þeir hópum sem eru að reyna að safna eins miklum kvóta þvert á landa­mæri eins og þeir kom­ast yfir fyrir sjálfa sig.“

Sagði Samherja með laskað mannorð

Seint á síð­asta ári var gert sam­komu­lag um að Icefresh GmbH, dótt­ur­fé­lag Sam­herja í Þýska­landi, myndi leggja Eskøy til nýtt fé og fá í stað­inn 40 pró­sent hlut í Eskøy. Greint var form­lega frá frá­gangi við­skipt­anna á vef vef Icefresh seint í apríl, eftir að norska Fiski­stofan hafði vottað ráða­hag­inn. Eskøy hefur um ára­bið verið í sam­starfi við Icefresh sem rekur fisk­vinnslu nálægt Frank­furt am Main í Þýska­landi. 
Lög í Noregi segja til um að skip með úthlut­uðum fisk­veiði­kvóta verði að vera í að minnsta kosti 60 pró­sent eigu Norð­manna. Eigendur 60 pró­sent hlutar í Eskøy eru íslenskir bræður sem hafa hlotið norskan rík­is­borg­ara­rétt.

[links]Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að norsk stjórn­völd gruni Samherja um að vera að reyna að kom­ast fram­hjá þeim lögum með því að fela raun­veru­legt eign­ar­hald á Eskøy með lán­veit­ingum.

Ingebrigt­sen sagði við Dagens Nær­ingsliv í gær að hann væri ekki jákvæður í garð Samherja. „Þetta fyr­ir­tækið er með laskað mann­orð. Í Noregi hafa skip sem þeir eiga oft­sinnis verið stöðvuð af land­helg­is­gæsl­unni, sem er auð­vitað óheppi­legt. Meiri áhersla verður lögð á slík mál í fram­tíð­inni þegar sam­þykki verður veitt fyrir breyt­ingum á eign­ar­haldi.“

Í skrif­legu svari til norska við­skipta­blaðs­ins sagði Margrét Ólafs­dóttir, tals­kona Samherja, að það valdi Samherja von­brigðum að norski sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann segi að sam­stæðan sé með „laskað mann­orð“. Hún segir orð ráð­herr­ans vera „mjög ósann­gjörn“.

Fjár­fest­ingin í Eskøy var ekki fyrsta fjár­fest­ing Samherja í norskum útgerðum. Fyrir um sjö árum síðan keypti sam­stæðan, í gegnum dótt­ur­fé­lög, fimmt­ungs­hlut í út­gerð­arfé­lag­inu Nergård, sem er meðal stærstu út­gerða Nor­egs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár