Meirihlutinn í Bretlandi fallinn samkvæmt nýrri könnun

Verka­manna­flokk­ur­inn og Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn mæl­ast sam­an­lagt með 326 þing­sæti sam­kvæmt nýj­ustu könnun breska blaðs­ins Guardian, sem gerir nú dag­legar skoð­ana­kann­anir vegna þing­kosn­ing­anna sem framundan eru í Bret­landi.

Þessi sæta­fjöldi myndi tryggja flokk­unum tveimur meiri­hluta í breska þing­inu, og þetta er í fyrsta skipti sem Guardian mælir flokk­anna tvo með meiri­hluta.

Á móti hefur fjöldi þing­sæta núver­andi stjórn­ar­flokk­anna, Íhalds­flokks­ins og Frjáls­lyndra demókrata, farið niður fyrir 300 sæti. Flokk­arnir næðu því ekki meiri­hluta í þing­inu ef marka má könn­un­ina í dag, ekki einu sinni þótt þau sæti sem minni flokkar eins og UKIP og DUP séu tekin með í reikn­ing­inn.

Nicola Sturgeon, leið­togi Skoska þjóð­ar­flokks­ins, hefur gert það ljóst að hún myndi ekki styðja rík­is­stjórn Íhalds­flokks­ins og myndi kjósa með van­trausti á flokk­inn. Það myndi Verka­manna­flokk­ur­inn lík­lega einnig gera. Ef því er bætt við að sam­kvæmt könnun Guardian næðu Græn­ingjar inn einu þing­sæti og welski flokk­ur­inn Plaid Cymru þremur yrði fjöldi þing­manna sem myndi kjósa gegn Íhalds­flokknum 333. Þá er mögu­leg stjórn stjórn­ar­flokk­anna tveggja enn ólík­legri.

Verka­manna­flokk­ur­inn fengi 272 sæti sam­kvæmt nýju könn­un­inni, Íhalds­flokk­ur­inn 269 og Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn 54. Frjáls­lyndir demókratar fengju 29. Ef eng­inn flokkur nær meiri­hluta í kosn­ing­unum gæti sam­steypu­stjórn með fleiri en 322 þing­sæti lík­lega stað­ist van­traust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár