Fagna frumvarpi um niðurfellingu transskattsins

Nið­ur­fell­ing gjalds sem inn­heimt er fyrir leyfi til breyt­inga á skrán­ingu kyns væri gríð­ar­leg rétt­ar­bót fyrir þau sem vilja breyta kyn­skrán­ingu og nafni að mati Sam­tak­anna '78. Þjóðskrá telur breyt­ing­una geta ein­faldað ferlið.

Andrés Ingi Jónsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Andrés Ingi Jónsson er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Samtökin ‘78 fagna laga­frum­varpi um breyt­ingu á lögum um auka­tekjur rík­is­sjóðs er snúa að gjald­töku vegna nafna­breyt­inga og vegna breyt­inga á skrán­ingu kyns. Í umsögn sam­tak­anna við frum­varpið er það sagt gríð­ar­leg rétt­ar­bót fyrir þau sem vilja breyta kyn­skrán­ingu sinni og nafni, „og getur sú breyt­ing haft afar jákvæð áhrif á and­lega líðan og sjálfs­mynd við­kom­andi aðila.“

Að mati sam­tak­anna sé öllum í hag að Þjóðskrá sé sem allra rétt­ust og að ein­stak­lingar sem vilji breyta kyn­skrán­ingu sinni geti gert svo án þess að þurfa að greiða sér­stak­lega fyrir það. Að mati sam­tak­anna styður breyt­ingin ekki aðeins við kyn­rænt sjálf­ræði heldur sé breyt­ingin sem lögð er til með frum­varp­inu á vissan hátt leið­rétt­ing á lögum um kyn­rænt sjálf­ræði „þar sem hugs­unin með því frum­varpi var að opna enn frekar á breyt­ingar í stað þess að tor­velda fólki að breyta skrán­ingu sinni.“ eins og það er orðað í umsögn sam­tak­anna.

Því telji Samtökin ‘78 að frum­varpið eigi að vera sam­þykkt án breyt­inga.

Niðurfellingin styrki rétt einstaklinga til að skilgreina kyn sitt

Frum­varpið sem um ræðir var lagt fram í febr­úar á þessu ári. Í laga­texta frum­varps­ins er lagt til að einn tölu­liður sé felldur brott úr lögum um auka­tekjur rík­is­sjóðs en sá tölu­liður fjallar um gjöld sem inn­heimt eru fyrir leyfi til nafn­breyt­inga og fyrir leyfi til breyt­inga á skrán­ingu kyns sam­kvæmt lögum um kyn­rænt sjálf­ræði. Gjaldið er í dag 9.000 krónur.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að meg­in­til­gangur þess sé að „að styrkja rétt ein­stak­linga til að skil­greina kyn sitt, líkt og kveðið er á um í lögum um kyn­rænt sjálf­ræði, og rétt fólks til nafns. Að mati flutn­ings­manna standa jafn­framt ríkir almanna­hags­munir til þess að grund­vall­ar­upp­lýs­ingar eins og nafn og kyn séu rétt skráðar í þjóð­skrá.“ Með gjald­tök­unni skap­ist hindrun fyrir því að nafni og kyni ein­stak­linga sé sem rétt­ust, sem aftur stendur í vegi fyrir því að mark­mið laga um skrán­ingu ein­stak­linga í þjóð­skrá hald­ist. [links]

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, en hann fjall­aði um gjald­tök­una í þing­ræðu í jan­úar. „Sér­stakur trans­skattur er ósann­gjarn og órétt­lát­ur. Hann varpar skugga á þá stór­kost­legu rétt­ar­bót sem felst í lögum um kyn­rænt sjálf­ræði. Þingið þarf að við­ur­kenna að þarna varð okkur á í mess­unni, leið­rétta mis­tökin og afnema trans­skatt­inn strax,“ sagði hann meðal ann­ars um trans­skatt­inn í ræð­unni.

Þjóðskrá Íslands styður framgöngu frumvarpsins

Ein önnur umsögn um frum­varpið hefur borist, frá Þjóðskrá Íslands. Í umsögn­inni er frum­varpið sagt geta orðið til þess að ein­falda nafn­breyt­inga­ferlið bæði fyrir umsækj­anda og Þjóðskrá. Í dag sé ferlið snúið og ekki sé alltaf ljóst gagn­vart umsækj­anda hvort umsóknin sé gjald­frjáls eða gjald­skyld.

„Aðeins lít­ill hluti nafn­breyt­inga er gjald­skyldur og með frum­varp­inu er verið að leggja til að sá hluti verði gjald­frjáls. Með afnámi gjald­töku gæti Þjóðskrá jafn­framt ein­faldað ferlið við nafn­breyt­ingar og breyt­ingar á kyni tals­vert sem yrði öllum aðilum til hags­bóta,“ segir í umsögn Þjóð­skrár sem styður fram­göngu frum­varps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár