Sérstakur transskattur „ósanngjarn og óréttlátur“

Þing­maður gagn­rýndi á þingi í dag gjald sem Þjóðskrá rukkar fólk sem vill breyta skrán­ingu á kyni sínu. „Þingið þarf að við­ur­kenna að þarna varð okkur á í mess­unni, leið­rétta mis­tökin og afnema trans­skatt­inn strax.“

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka.
Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka. Mynd: Bára Huld Beck

„Þann 5. jan­úar hrísl­að­ist gleði um kynsegin sam­fé­lagið – og henni deildum við sem stöndum með þeim hópi – þegar upp­skera ára­langrar bar­áttu birt­ist á ofurein­faldan hátt: „kynsegin/annað“ varð val­mögu­leiki í felli­val­mynd hjá Þjóðskrá. Á sama tíma kom flatt upp á fólk sem breytti skrán­ingu að fyrir það þurfti að greiða 9.000 krónur í gjald til Þjóð­skrár.“

Þetta kom fram í máli Andrésar Inga Jóns­sonar, þing­manns utan flokka, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Í ræðu sinni sagði hann að þetta gjald hefði einnig komið flatt upp á hann „en við nán­ari eft­ir­grennslan leynd­ist ástæðan nán­ast neð­an­máls, í 4. tölu­lið 18. gr. laga um kyn­rænt sjálf­ræði var breyt­ing á lögum um auka­tekjur rík­is­sjóðs sem hafði þessar afleið­ingar“.

Varpar skugga á þá „stórkostlegu réttarbót sem felst í lögum um kynrænt sjálfræði“

Andrés Ingi full­yrti að það hefði ekki verið ætlun þeirra á þingi að koma á sér­stökum trans­skatti um leið og „við náðum fram þess­ari rétt­ar­bót“.

„Bæði er ekki sjálf­sagt að trans fólk hafi efni á að borga slíkt gjald en þar að auki þá þjónar ekki almanna­hags­munum að vera með fjár­hags­legan þrösk­uld fyrir því að nafn og kyn séu rétt í þjóð­skrá.

Sér­stakur trans­skattur er ósann­gjarn og órétt­látur. Hann varpar skugga á þá stór­kost­legu rétt­ar­bót sem felst í lögum um kyn­rænt sjálf­ræði. Þingið þarf að við­ur­kenna að þarna varð okkur á í mess­unni, leið­rétta mis­tökin og afnema trans­skatt­inn strax,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár