Munu ekki reyna að tefja Brexit

Verka­manna­flokk­ur­inn mun ekki reyna að tefja útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu ef þingið þarf að kjósa um málið. Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn mun hins vegar að öllum lík­indum kjósa gegn útgöng­unni.

Þing­mönnum ber að virða og standa við ákvörðun Breta um að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið, segir Brexit-ráð­herr­ann David Davis við breska þingið. BBC greinir frá. Yfir­lýs­ing Davis eru opin­ber við­brögð stjórn­valda við þeim úrskurði dóm­stóls í London að ekki sé hægt að virkja 50. grein Lissabon-sátt­mál­ans og hefja útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu án þess að bera það undir breska þingið fyrst. 

Stjórn­völd ætla að áfrýja úrskurð­inum til Hæsta­réttar, en talið hefur verið að hvernig sem fer hafi málið tafið fyrir ferl­inu. Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur sagt að hún vilji hefja útgöngu­ferlið fyrir lok mars á næsta ári. Það er gert með því að virkja 50. grein­ina, með bréfi til leið­toga­ráðs ESB.

Verka­manna­flokk­ur­inn, sem er í stjórn­ar­and­stöðu í breska þing­inu, segir að hann muni ekki reyna að stöðva eða tefja fyrir útgöng­unni ef svo fer að þingið þurfi að kjósa um málið. Skugga­ráð­herra flokks­ins í útgöngu­málum, Keir Starmer, segir að það verði að halda atkvæða­greiðslu í þing­inu, það sé það rétta fyrir full­veldið.

Skugga­ráð­herra Skotlands og Skoska þjóð­ern­is­flokks­ins, Michael Russell, segir hins vegar að hann sjái ekki fyrir sér neinar kring­um­stæður þar sem þing­menn flokks­ins kjósi með því að virkja 50. grein­ina. Skotar kusu gegn útgöngu úr ESB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár