Hvað er að gerast í Hvíta-Rússlandi?

Atburðir í Hvíta-Rúss­landi á síð­ustu tveimur sól­ar­hringum hafa leitt til þess að Evr­ópu­sam­bandið hefur inn­leitt við­skipta­þving­anir á þar­lend rík­is­fyr­ir­tæki og ólig­arka. Kjarninn tók saman þessa atburði og aðdrag­anda þeirra.

Alexander Lukashenko, forseti Hvíta-Rússlands
Alex­ander Lukashenko, for­seti Hvíta-Rúss­lands Mynd: EPA

Evr­ópu­sam­bandið sam­þykkti í gær við­skipta­þving­anir sem beindar eru rík­is­fyr­ir­tækjum og ólígörkum í Hvíta-Rúss­landi. Nú mega hví­trúss­nesk flug­fé­lög ekki fljúga um evr­ópska loft­helgi eftir að stjórn­völd þar í landi neyddu Ryanair flug­vél til að lenda vegna falskrar sprengju­hót­unar.

Nauð­lend­ing Ryanair-flug­vél­ar­innar var liður í aðgerðum hví­trúss­neskra stjórn­valda við að fang­elsa póli­tíska and­stæð­inga Alex­ander Lukashenko, for­seta lands­ins til síð­ustu 27 ára.

Blaðamaður, bloggari og aktívisti

Roman Protasevich er 26 ára gam­all blaða­maður, blogg­ari og aktí­visti frá Hvíta-Rúss­landi sem átti þátt í að skipu­leggja mót­mælin í kjöl­far síð­ustu for­seta­kosn­inga þar í landi síð­asta sumar. Kjarninn hefur áður fjallað um mót­mælin, en mörg hund­ruð þús­und mót­mæltu end­ur­kjöri Lukashenko þrátt fyrir að skoð­ana­kann­anir bentu til þess að mót­fram­bjóð­andi hans, Svetlana Tik­hanovskaya, væri með 70-80 pró­senta fylgi. Eftir úrslitin flúði Tik­hanovskaya land og er nú í sjálf­skip­aðri útlegð í Litháen.

Samkvæmt BBC var Protasevich einn af stofn­endum spjall­rás­ar­innar Nexta á sam­skipta­for­rit­inu Telegram, sem tæpar tvær millj­ónir manna fylgdu og var notuð til að skipu­leggja götu­mót­mæli og deila myndefni um lög­reglu­of­beldi í Hvíta-Rúss­landi.

Rík­is­stjórn Lukashenko reyndi að koma í veg fyrir skipu­lagn­ingu mót­mæla með þessum hætti og slökkti á far­síma­kerf­inu og aðgangi að net­inu í 121 dag eftir kosn­ing­arnar. Enn er læst fyrir notkun sumra for­rita, líkt og Telegram.

Yfirvöld hafa lagt fram ákæru í þremur liðum gagn­vart Protasevich vegna mót­mæl­anna, en sam­kvæmt Financial Times er búist við að hann verði dæmdur til fimmtán ára fang­els­is­vistar. Sjálfur hefur Protasevich sagt að dauða­refs­ing bíði hans í Hvíta-Rúss­landi.

Handtaka með falskri sprengjuhótun

Protasevich, líkt og Tik­hanovskaya, hefur haldið sig fyrir utan Hvíta-Rússland síð­ustu miss­erin, en hann er líka með lög­heim­ili í Litháen. Hví­trúss­nesk yfir­völd náðu hins vegar að hand­sama hann með því að snúa við Ryanair flug­vél í þeirra loft­helgi með hann inn­an­borðs og neyða hana til að lenda á flug­vell­inum í Minsk, höf­uð­borg Hvíta-Rúss­lands.

Samkvæmt rík­is­fjöl­miðlum þar í landi ákváð Lukashenko að snúa vél­inni, sem var á leið til Litháen frá Grikk­landi, vegna sprengju­hót­unar. Starfs­menn á flug­vell­inum í Minsk hafa síðan stað­fest að sprengju­hót­unin hafi verið fölsk.

Protasevich greindi sjálfur frá því á sunnu­dag­inn að með­limur hví­trúss­nesku leyni­þjón­ust­unnar, KGB, hafði fylgt honum í flug­vél­ina og reynt að taka myndir af skjöl­unum hans.

Stjórnvöld grunuð um að pynta Protasevich

Við lend­ing­una í Minsk var blaða­mað­ur­inn svo hand­tek­inn, ásamt kær­ustu sinni, og settur í varð­hald. Degi síðar birti spjall­rás á Telegram sem er hlið­holl Lukashenko mynd­band af Protasevich, þar sem hann seg­ist vera í fang­elsi í Minsk.

Blaða­mað­ur­inn er með mar­blett á enn­inu í mynd­band­inu, en segir þó að vel sé farið með hann í fang­els­inu. Hann bætir einnig við að hann sé að fullu sam­vinnu­þýður við hví­trúss­nesk stjórn­völd. Mynd­bandið má sjá hér að neðan.

Myndband af Roman Protasevich, blaða­manni sem er í haldi rík­is­stjórnar Hvíta-Rúss­lands.

Áður­nefnd Tik­hanovskaya, sem er leið­togi hví­trúss­nesku stjórn­ar­and­stöðu­hreyf­ing­ar­innar, sagði á blaða­manna­fundi í gær að það væri aug­ljóst út frá mynd­band­inu að Protasevich hafi verið pynt­aður í varð­haldi. Samkvæmt frétt Reuters um málið hafa hví­trúss­nesk yfir­völd ekki svarað ásök­unum Tik­hanovskaya, en þau hafa áður neitað því að beita fanga sína ofbeldi.

Vesturlönd fordæma og beita refsiaðgerðum

Fjölmörg Vest­ur­lönd hafa for­dæmt hand­tök­una á Protasevich og atburð­unum í aðdrag­anda hennar. Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, kall­aði nauð­lend­ingu Ryanair á Minsk-flug­vell­inum „flug­rán“ í Twitter-færslu sem hún sendi frá sér á sunnu­dag­inn, auk þess sem hún kall­aði eftir því að Protasevich yrði leystur úr haldi taf­ar­laust. Svipuð yfir­lýs­ing kom frá Guðlaugi Þór Þórð­ars­syni utan­rík­is­ráð­herra á Twitter sama dag, sem sjá má hér að neðan.

Í gær sam­þykktu aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins svo refsi­að­gerðir í garð Hvíta-Rúss­lands, sem fela meðal ann­ars í sér bann hví­trúss­neska rík­is­flug­fé­lags­ins við að fljúga um loft­helgi sam­bands­ins. Auk þess hvöttu leið­tog­arnir evr­ópsk flug­fé­lög til að forð­ast hví­trúss­neska loft­helgi, en líkt og sjá má á vef­síð­unni Flight Radar virð­ast flest þeirra virða þá ósk, þar sem örfáar flug­vélar fljúga nú yfir landið.

Refsi­að­gerðir ESB munu einnig bein­ast að öðrum hví­trúss­neskum rík­is­fyr­ir­tækjum og óli­görkum þar í landi, sem eru sak­aðir um að fjár­magna Lukashenko. Samkvæmt sam­band­inu væru slíkar aðgerðir, sem eru sér­hæfð­ari en almennt við­skipta­bann, lík­legar til að skaða Lukashenko og banda­menn hans án þess að hví­trúss­neska þjóðin hlyti skaða af.

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti fagn­aði ákvörðun Evr­ópu­sam­bands­ins í opin­berri yfir­lýs­ingu og gaf til kynna að Banda­ríkja­stjórn myndi einnig beita sams­konar aðgerðum.

Rússland gagnrýnir aðgerðir ESB

Utan­rík­is­ráðu­neyti Hvíta-Rúss­lands varði hins vegar ákvörðun þar­lendra stjórn­valda um að snúa Ryanair-flug­vél­inni með Protasevich inn­an­borðs við í hví­trúss­neskri loft­helgi. Anatoly Glaz, tals­maður ráðu­neyt­is­ins, sagði í við­tali við Financial Times að flug­yf­ir­völd þar í landi hafi fylgt settum alþjóða­reglum í einu og öllu og sak­aði Evr­ópu­sam­bandið um að hlaupa á sig með stríðs­yf­ir­lýs­ingar.

Stjórn­völd í Rúss­landi taka undir yfir­lýs­ingar Hvíta-Rúss­lands og segj­ast hneyksluð á við­brögðum Evr­ópu­sam­bands­ins. Maria Zakharova, tals­maður utan­rík­is­ráðu­neytis Rúss­lands sagði það vera „átak­an­legt“ að Vest­ur­lönd brygð­ust svona hart við atvik­inu, sem hefði átt sér stað í hví­trúss­neskri loft­helgií nýlegri Facebook-færslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár