Ríkin sem rugla í netinu

Indland var það ríki sem oft­ast tak­mark­aði inter­net­að­gang borg­ara sinna árið 2020, sam­kvæmt nýlega útgef­inni skýrslu. Hvíta-Rússland trufl­aði raf­ræn sam­skipti í 121 dag sam­fleytt eftir umdeildar for­seta­kosn­ingar í ágúst.

Samtökin Access Now hafa tekið saman 155 tilvik um heftan aðgang borgara að internetinu árið 2020.
Samtökin Access Now hafa tekið saman 155 til­vik um heftan aðgang borg­ara að inter­net­inu árið 2020. Mynd: Flickr

Að minnsta kosti tutt­ugu og níu ríki heims tóku í fyrra ákvörðun um að loka á eða tak­marka net­að­gang ein­hverra borg­ara sinna, í alls 155 skrá­settum til­vikum. Indland trónir á toppnum eins og mörg fyrri ár, en ríkið greip til þess ráðs að hefta aðgang borg­ara sinna að inter­net­inu að minnsta kosti 109 sinnum árið 2020.

Þetta kemur fram nýút­gef­inni í skýrslu sam­tak­anna Access Now, sem berj­ast gegn hverskyns tak­mörk­unum á net­að­gangi fólks um heim allan. Internet-lok­anir eru skil­greindar sem „vilj­andi trufl­anir á net­inu eða staf­rænum sam­skiptum [...] til þess að stýra flæði upp­lýs­inga“ og langoft­ast fram­kvæmdar af stjórn­völdum.

Sem áður segir trónir Indland á toppnum á þessum vafa­sama lista. Tak­mark­anir á notkun nets­ins hafa verið við­var­andi í Jammu og Kasmír-hér­aði, nyrst í land­inu við landa­mærin að Pakistan, um lengri tíma. Á tveggja vikna fresti allt árið 2020 voru þar gefnar út nýjar til­skip­anir um heftan net­að­gang, þrátt fyrir við­vör­un­ar­orð og mót­mæli lækna, blaða­manna­sam­taka og íbúa, sem sögðu net­lok­anir stjórn­valda auka enn á vandan sem heims­far­aldur COVID-19 hefði í för með sér.

Blaða­menn og gras­rót­ar­hópar í Indlandi hafa barist fyrir því að stjórn­völd í Jammu og Kasmír opin­beri á hvaða grund­velli net­lok­an­irnar séu gerðar og hæsti­réttur lands­ins hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að stjórn­völd þurfi að birta rök­stuðn­ing sinn fyrir ákvörð­un­unum.

Samkvæmt skýrslu Access Now er algeng­ast að ind­versk stjórn­völd rétt­læti heft­ingu net­að­gangs með því að um „var­úð­ar­ráð­staf­anir“ sé að ræða, eða til þess að koma í veg fyrir að „and­þjóð­fé­lags­leg öfl deili fölskum upp­lýs­ingum á sam­fé­lags­miðlum,“ en stjórn­mála­á­standið á svæð­inu hefur verið eld­fimt und­an­farin miss­eri, eftir að ind­verska stjórnin ákvað að svipta land­svæðið tak­mörk­uðu sjálf­stjórn­ar­valdi sínu.

Netið enn nauðsynlegra í heimsfaraldri

Samkvæmt því sem fram kemur í skýrsl­unni frá Access Now voru hund­ruð millj­óna manna án inter­net­að­gangs að öllu leyti eða hluta vegna aðgerða yfir­valda á síð­asta ári, í heims­far­aldr­inum miðjum. Samtökin segja nei­kvæð áhrif net­lok­ana hafa auk­ist í far­aldr­inum.

[adspot]

„Þeir sem hafa haft aðgang að net­inu í far­aldr­inum hafa treyst á það til þess að fá nýj­ustu upp­lýs­ingar, sem geta jafn­vel bjargað manns­lífum. Þau sem eru nettengd eru ekki bara í betri stöðu til að verja sig og vera örugg, heldur hafa flestir notað netið til að vinna, halda áfram með nám sitt, kenna börnum sínum að heiman, eiga sam­skipti við ást­vini, leita sér upp­lýs­inga um heil­brigð­is­þjón­ustu, leita sér að atvinnu og svo fram­vegis. Þau sem hafa ekki net­að­gang eða eru vís­vit­andi svipt honum hafa ekki þessa mögu­leika og lifa í ótta,“ segir í skýrsl­unni.

121 dagur samskiptatruflana í Belarús

Belarús, Hvíta-Rússland, er eina ríki Evrópu sem í fyrra tak­mark­aði net­að­gang þegna sinna. Það var gert í kringum umdeildar for­seta­kosn­ingar sem leiddu til fjölda­mót­mæla á götum úti. Á kosn­inga­dag, 9. ágúst, var fyrst lokað á YouTube og síðar á WhatsApp, Telegram og fleiri sam­skipta­for­rit.[links]

Eftir að Alex­ander Lúk­asjenkó for­seti lýsti yfir enn einum kosn­inga­sigrinum þusti fólk út á götur til mót­mæla. Þá var alfarið lokað á net­að­gang almenn­ings í heila þrjá daga og raunar sím­kerfið að mestu leyti líka. Far­síma­kerfið og aðgangur að net­inu lá síðan niðri að mestu í 121 dag til við­bótar.

Það var ekki fyrr en 6. des­em­ber sem far­síma­kerfið starf­aði á ný nokkuð eðli­lega, en for­rit á borð við Telegram og VPN-þjón­ustur eru enn blokk­aðar.

Myrkraverk í skugga netleysis

Aðgengi að net­inu er að mati Access Now bæði mann­rétt­inda- og örygg­is­mál fyrir fólk, enda eigi stjórn­völd hæg­ara með að kom­ast upp með voða­verk þegar búið er að slíta á mögu­leika fólks til að hafa tengsl við umheim­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

internetið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár