Framtíð Lúkasjenkó óviss

Vaxandi mót­mæli í Hvíta-Rúss­landi og þrýst­ingur frá nágranna­löndum tefla fram­tíð for­seta lands­ins, Alex­ander Lúk­asjenkó, í tví­sýnu. Nú hefur Pútín boð­ist til þess að senda rúss­neska her­inn inn í landið ef þörf krefur.

Frá mótmælagöngu í Minsk í Hvíta-Rússlandi í gær
Frá mót­mæla­göngu í Minsk í Hvíta-Rúss­landi í gær Mynd: EPA

Umdeild úrslit for­seta­kosn­inga í Hvíta-Rúss­landi hafa leitt til mót­mæla­bylgju þar í landi gegn sitj­andi for­seta, Alex­ander Lúk­asjenkó. Rík­is­stjórnir ann­arra Evr­ópu­landa, þar á meðal Íslands, hafa einnig gagn­rýnt fram­ferði for­set­ans, sem hefur setið í emb­ætti í 26 ár og hefur nær algjört ein­ræð­is­vald yfir land­inu. Á laug­ar­dag­inn bauð svo Pútín fram hern­að­ar­að­stoð sína, en óvíst er hvort rúss­neski her­inn verði not­aður gegn mót­mæl­endum. 

Mannréttindi fótum troðin

Lúk­asjenkó tók við völdum í fyrstu lýð­ræð­is­legu kosn­ingum Hvíta-Rúss­lands árið 1994, en landið hafði þá verið sjálf­stætt í þrjú ár eftir fall Sov­ét­ríkj­anna. Útlit er fyrir að kosn­ing­arnar hafi einnig verið þær síð­ustu sem voru haldnar með lýð­ræð­is­legum hætti í land­inu, en erlendar eft­ir­lits­stofn­anir hafa gefið öllum kosn­ingum í Hvíta-Rúss­landi frá árinu 1995 fall­ein­kunn.

[links]Á valda­tíð sinni hefur Lúk­asjenkó haldið völdum með lög­reglu­sveitum sem berja niður til­raunir til frið­sam­legra mót­mæla og fang­elsa blaða­menn sem gagn­rýna rík­is­stjórn­ina. Samkvæmt nýj­ustu skýrslu Human Rights Watch um landið er tján­ing­ar­frelsi, félaga­frelsi og frelsi fjöl­miðla þar mjög tak­markað, en Hvíta-Rússland er einnig eina Evr­ópu­landið þar sem dauða­refs­ing er enn stunduð.

Með stjórn­ar­skrár­breyt­ingum árið 2012 kom afnam Lúk­asjenkó svo tak­mörk á valda­tíð for­seta og getur hann því setið í emb­ætti sínu til dauða­dags.

Svetlana Tsika­novska­ja

Síðustu for­seta­kosn­ingar í land­inu voru haldnar fyrir viku síðan, en sam­kvæmt opin­berum tölum frá kosn­inga­stjórn Hvíta-Rúss­lands fékk Lúk­asjenkó yfir 80 pró­sent allra greiddra atkvæða. Úrslitin eru þó víða dregin í efa, en sam­kvæmt BBC bentu skoð­ana­kann­anir til þess að helsti keppi­nautur for­set­ans, Svetlana Tsika­novska­ja, væri með 70-80 pró­senta fylgi.

[adspot]Tsika­novska­ja, sem er fyrrum ensku­kenn­ari og var heima­vinn­andi hús­móðir þangað til fyrir stuttu, var óvæntur keppi­nautur Lúk­asjenkó, en hún ákvað að bjóða sig fram í stað eig­in­manns síns sem var hand­tek­inn rétt eftir að hann til­kynnti fram­boð sitt til for­seta. Helsta stefnu­mál hennar að frelsa alla póli­tíska fanga lands­ins, þar á meðal eig­in­mann sinn, og efna til lýð­ræð­is­legra kosn­inga innan fárra mán­aða.

Framboði Tsika­novska­ja var vel tekið af stjórn­ar­and­stæð­ingum, en sam­kvæmt umfjöllun New York Times er nær öruggt að hún hafi í raun og veru unnið kosn­ing­arnar. Hins vegar lýsti Lúk­asjenkó yfir sigri og Tsika­novska­ja flúði til Litháen, þar sem hún taldi að líf sitt og barna sinna væru í hættu í heima­landi hennar.

Brugðist við mótmælum með hörku

Í kjöl­far úrslita kosn­ing­anna síð­asta sunnu­dag hafa sprottið upp fjölda­mót­mæli víðs vegar um Hvíta-Rússland. Samkvæmt vefnum Politico voru mót­mælin í smærra lagi í fyrstu en hafa svo stækkað með hverjum deg­inum. Í gær voru svo stærstu mót­mælin haldin en þá komu um 200 þús­und manns saman í miðbæ Minsk, höf­uð­borgar lands­ins, og kröfð­ust afsagnar Lúk­asjenkó.

Mót­mæl­unum hefur oft verið mætt af hörku, en fyrr í vik­unni voru rúm­lega sjö þús­und mót­mæl­endur hand­teknir auk þess sem tveimur var banað.

Lögregluofbeldið fordæmt

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra for­dæmdi, ásamt hinum þjóð­ar­leið­togum Norð­ur­land­anna og Eystra­salts­ríkj­anna, lög­reglu­of­beldi hví­trúss­nesku rík­is­stjórn­ar­innar með sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sem gefin var út síð­asta þriðju­dag. Evr­ópu­sam­bandið sam­þykkti einnig að setja við­skipta­þving­anir á þá sem eru ábyrgir fyrir við­brögðum hví­trúss­neskra stjórn­valda síð­asta föstu­dag.

Atburðir síð­ustu viku hafa líka dregið úr stuðn­ingi við Lúk­asjenkó innan rík­is­stjórnar Hvíta-Rúss­lands, en sendi­herra lands­ins í Slóvakíu, Ígor Leskenja, lýsti yfir stuðn­ingi við mót­mæl­endur í mynd­bands­upp­töku sem birt var í gær. Einnig greinir Politico frá því að hví­trúss­neskir her­menn og lög­reglu­menn hafi dreift mynd­böndum af sér að henda ein­kenn­is­bún­ingum sínum í ruslið.

Vandamálin „bráðum leyst“

Lúk­asjenkó á sér þó einn hauk í horni, en það er Vladímír Pútín for­seti Rúss­lands. Löndin tvö eru með­limir í banda­lagi fyrrum Sov­ét­ríkj­anna, sem kallað er CIS, ásamt Armeníu, Rúmeníu, Moldóvu og ýmsum Mið-Asíu­ríkjum. Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá yfir­völdum Rúss­lands í Kreml Full­viss­aði Pútín Lúk­asjenkó á laug­ar­dag­inn að hern­að­ar­banda­lag ríkj­anna tveggja yrði heiðrað og bauð hann fram hern­að­ar­að­stoð ef utan­að­kom­andi ógn steðj­aði að Hvíta-Rúss­landi.

Hins vegar er enn óvíst hvort Pútín telji hví­trúss­neska mót­mæl­endur vera utan­að­kom­andi ógn, en yfir­völd í Kreml sögðu slíka ógn steðja að land­inu núna.Í sím­tal­inu sagð­ist Pútín einnig vera „full­viss“ um að núver­andi ástand „yrði bráðum leyst“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár