Mitt Romney sækist ekki eftir að verða forsetaframbjóðandi Repúblikana

Mitt Romney ætlar ekki að sækj­ast eftir því að verða for­seta­fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins í kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum á næsta ári. Þetta hefur New York Times eftir fólki sem er honum nátengt.

Romney er sagður hafa deilt þess­ari ákvörðun sinni á síma­fundi með litlum hópi ráð­gjafa sinna í dag. Með því að taka þessa ákvörðun er hann sagður hafa greitt göt­una fyrir aðra fram­bjóð­endur, ekki síst Jeb Bush, bróður George W. Bush og son George Bush. Fyrr í jan­úar hafði Romney lýst yfir áhuga á því að bjóða sig fram í þriðja sinn. Margir af stuðn­ings­mönnum hans, starfs­mönnum og styrkt­ar­að­ilum hafa því verið tregir til að lýsa yfir stuðn­ingi við aðra á meðan afstaða hans var ekki ljós.

Romney hefur tvisvar áður sóst eftir til­nefn­ingu Repúblikana­flokks­ins, fyrst árið 2008 þegar hann tap­aði en þá varð John McCain fram­bjóð­andi flokks­ins, og svo árið 2012, þegar hann varð fram­bjóð­andi en tap­aði fyrir Barack Obama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár