Fólki í sóttkví fjölgar á ný

Í dag eru 1.054 ein­stak­lingar með virk COVID-19 smit en í gær voru þeir 1.017. Alls er 428 manns batnað.

Ellefu sjúklingar liggja nú á gjörgæsludeild vegna COVID-19
Ellefu sjúk­lingar liggja nú á gjör­gæslu­deild vegna COVID-19 Mynd: Þorkell Þorkelsson/Landspítalinn

Staðfest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1.486 hér á landi. Í gær voru þau 1.417 og hefur þeim því fjölgað um 69 á einum sól­ar­hring. Í dag eru 5.511 manns í sótt­kví og hefur þeim fjölgað tölu­vert frá því í gær, er fjöld­inn var 5.275. Alls hafa 11.657 manns lokið sótt­kví.

Í dag eru 1.054 ein­stak­lingar með virk COVID-19 smit en í gær voru þeir 1.017. Alls er 428 manns batnað.

Tæplega sex­tíu ný smit greindust í þeim 574 sýnum sem tekin voru á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í gær. Af 1.080 sýnum sem tekin voru hjá Íslenskri erfða­grein­ingu fund­ust tíu ný smit. Alls hafa 25.394 sýni nú verið tekin hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Á sjúkra­húsi liggja 42 sjúk­lingar vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af ell­efu á gjör­gæslu, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.

Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru fjögur látin.

[adspot]

Í spálík­ani vís­inda­manna við Háskóla Íslands sem upp­fært var fyrir helgi kemur fram að á meðan far­ald­ur­inn gengur yfir er gert ráð fyrir því að rúm­lega 1.800 manns á Íslandi verði greind með COVID-19 í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins, en talan gæti náð nær 2.500 manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði senni­lega um 1.200 manns, en gæti viku seinna náð 1.700 manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Þá er gert ráð fyrir að á meðan að far­ald­ur­inn gangi yfir muni 120 manns þarfn­ast inn­lagnar á sjúkra­hús, en gæti náð hátt í 180 manns.

Mesta álag á heil­brigð­is­þjón­ustu vegna sjúkra­húsinn­lagna verður fyrir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um það bil 60 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama tíma, en svart­sýnni spá er 90 ein­stak­lingar.

Gert er ráð fyrir því að á tíma far­ald­urs­ins muni um 26 ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega, þ.e. þurfa inn­lögn á gjör­gæslu, á tíma­bil­inu en svart­sýnni spá er 40 ein­stak­lingar.

Mesta álag á gjör­gæslu­deildir gæti orðið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 10 manns liggi þar inni á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýnni spá gætu það verið 18 manns.

Smá­vægi­leg hliðrun ald­urs­dreif­ingar í átt að fleiri greindum smitum meðal ein­stak­linga yfir sex­tugt myndi auka álag á heil­brigð­is­þjón­ustu tals­vert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár