Ungir Framsóknarmenn mótmæla ummælum Sveinbjargar Birnu harkalega

Oddviti Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í borg­ar­stjórn sagði að það fælist „sokk­inn kostn­að­ur“ í því fyrir Reykja­vík­ur­borg að taka við börnum hæl­is­leit­enda í grunn­skóla borg­ar­inn­ar. Ungir Fram­sókn­ar­menn mót­mæla þessum ummælum.

Stjórn Sambands ungra Fram­sókn­ar­manna mót­mælir harð­lega ummælum Svein­bjargar Birnu odd­vita Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina er tengj­ast menntun barna hæl­is­leit­enda hér á landi. Í yfir­lýs­ingu frá því er vísað í álykt­anir flokks­þings Fram­sókn­ar­flokks­ins þar sem segir: ,,Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn styður mann­rétt­indi, virð­ingu fyrir ein­stak­lingnum og fjöl­skyld­unni. Hafna á hvers konar mis­munun sem gerir grein­ar­mun á fólk", einnig segir: ,,Fjölbreyttur bak­grunnur fólks leiðir til betri og sam­keppn­is­hæf­ari vinnu­mark­aðar og ólík færni fólks ýtir undir fram­þróun atvinnulífs og skilar þannig árangri fyrir samfélagið allt".

Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að ungt

Fram­sókn­ar­fólk styðji mót­töku hæl­is­leit­enda á Íslandi. „Mik­il­vægt er að sýna ábyrgð í alþjóða­sam­fé­lag­inu og bjóða þá sem búa við stríðs­á­stand eða kúgun vel­komna. Einnig þarf að flýta máls­með­ferð hjá hæl­is­leit­endum. Samstíga því viljum við styðja betur við aðlögun inn­flytj­enda að íslensku sam­fé­lagi. Aldrei má mis­muna börnum undir neinum kring­um­stæðum.“

Svein­björg Birna sagði í upp­hafi viku í útvarps­við­tali að það felist „sokk­inn kostn­að­ur“ í því fyrir Reykja­vík­ur­borg að taka við börnum hæl­is­leit­enda í grunn­skóla borg­ar­inn­ar. Hún sagði að þeirri hug­mynd hafi skotið upp hvort eðli­legt sé að börn hæl­is­leit­enda verði sett í sér­stakan skóla þar til að ákvörðun liggi fyrir um hvort fjöl­skyldur þeirra fái dval­ar­leyfi eða ekki. Þetta kom fram í við­tali við Svein­björgu Birnu á Útvarpi Sögu.

Í við­tal­inu sagði hún að stjórn­mála­menn þyrftu að hugsa sinn gang veru­lega ef það væri þannig að þöggun ætti að ríkja um óþægi­lega hluti. Hún ræddi síðan mál­efni inn­flytj­enda á Íslandi og mein­tan kostnað sem þeim fylg­ir. Svein­björg Birna nefndi engar tölur í þeim efnum en sagði að það fylgdi t.d. mik­ill kostn­aður því fyrir grunn­skóla Reykja­víkur að taka við börnum sem væru að sækja eftir hæli hér­lend­is. Þessi börn stoppi stutt við og hætti í skól­anum ef að fjöl­skyldum þeirra sé vísað úr landi eftir ákveð­inn tíma. „Þá er þetta að ein­hverju leyti sokk­inn kostn­aður hjá Reykja­vík­ur­borg.“

Hún sagði að með þessu ætti hún ekki við að það væri eft­ir­sjá eftir því að kenna börnum hæl­is­leit­enda að lesa og skrifa. En þegar þau séu sett í bekki í skólum án aðgrein­ingar verði mjög mik­ill fókus á þessa nem­end­ur. Það bitni á öðrum nem­end­ur. „Þess vegna hefur þeirri hug­mynd alveg skotið upp hvort að það sé eðli­legt að það sé bara sér skóli, stofn­un, sem taki við þessum börnum sem eru að koma með for­eldrum í leit að alþjóð­legri vernd og síðan þegar við­kom­andi fjöl­skylda er þá komin með dval­ar­leyfi á Íslandi, að þá fari þeir inn í skól­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár