Fasteignaverðið hækkar og hækkar...hvað svo?

Und­an­farin ár hafa ein­kennst af nær for­dæma­lausum hækk­unum á fast­eigna­mark­aði, sé litið til sögu­legrar þró­unar á Íslandi. Á und­an­förnum tólf mán­uðum hefur fast­eigna­verðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað að með­al­tali um rúm­lega 19 pró­sent.

Uppbygging er víða á höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir því að allt að níu þúsund nýjar íbúðir komi út á markaðinn á næstu fimm árum.
Upp­bygg­ing er víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Gert er ráð fyrir því að allt að níu þús­und nýjar íbúðir komi út á mark­að­inn á næstu fimm árum. Mynd: Birgir Þór

Allt frá því að botni var náð eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, neyð­ar­laga­setn­ingu og fjár­magns­höft, árið 2010, þá hefur verðið verið að leita upp á við. Á þessu tíma­bili, frá 2010 og fram á þetta ár, hefur fast­eigna­verð tæp­lega tvö­fald­ast að með­al­tali á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þró­unin er þó mis­mun­andi eftir svæðum.

Þrjú aðalatriði

Mesta hækk­unin hefur verið mið­svæðis í Reykja­vík, og þar spilar inn í gríð­ar­legur upp­gangur í ferða­þjón­ust­unni. Allt að þrjú þús­und íbúðir hafa horfið af mark­aði fyrir var­an­lega búsetu og verið nýttar í leigu til Airbnb og fleiri leigu­miðl­ana fyrir ferða­menn, sam­kvæmt nýlegum grein­ingum.

Þessi mikli upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar hefur ýtt undir hækkun fast­eigna­verð­ins, en fleiri þættir koma þó til.

Í ein­földun sagt, má segja að þrjú atriði hafi skipt sköpum.

Í fyrsta lagi var lítið sem ekk­ert byggt af hús­næði í næstum tvö og hálft ár frá miðju ári 2008 og fram undir lok árs 2010, og því mynd­að­ist misvægi á milli fram­boðs og eft­ir­spurnar. Það ein­fald­lega vant­aði eignir á mark­að­inn til að mæta eft­ir­spurn­inni sem var byrjuð að örvast eftir hrunið.

Í öðru lagi má nefna mik­inn efna­hags­upp­gang. Hag­vöxtur hefur verið á bil­inu 4 til 7 pró­sent á árinu, und­an­farin fimm ár, og kaup­máttur hefur vaxið mikið hjá flestum hópum. Aukin kaup­geta, eftir að end­ur­skipu­lagn­ingu á efna­hag fyr­ir­tækja og heim­ila lauk, hefur ýtt enn frekar undir hækkun fast­eigna­verðs­ins. Verð­bólga hefur einnig hald­ist fyrir neðan 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið í á fjórða ár, en hún mælist nú 1,4 pró­sent.

Í þriðja lagi er það síðan áhrif ferða­þjón­ust­unnar á fast­eigna­mark­að­inn í heild, eins og áður segir. Ævin­týra­legur vöxtur ferða­þjón­ust­unnar hefur gjör­breytt stöðu efna­hags­mála til hins betra. Gert er ráð fyrir að 2,3 millj­ónir erlendra ferða­manna komi til lands­ins á þessu ári, en árið 2010 var fjöld­inn undir 500 þús­und.

Aðeins hægt á markaðnum

Hækk­an­irnar á verð­inu hafa haldið áfram, en sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár frá 20. sept­em­ber þá er hækk­unin mun meiri á sér­býli heldur en fjöl­býli. Þrátt fyrir að sum­ar­mán­uðir hafi verið rólegri en fyrstu mán­uðir árs­ins, eru tölur um hækk­anir á milli mán­aða ennþá með allra hæsta móti. Í ágúst hækk­aði verð á sér­býl­is­eignum um 2,4 pró­sent, og á íbúðum í fjöl­býli um 0,5 pró­sent. Horft yfir eitt ár hefur verð á sér­býli hækkað um rúm­lega 20 pró­sent en verð á fjöl­býli um 18,4 pró­sent.

Það sem helst bendir til þess að það sé að hægja á mark­aðnum, eru tölur um fjölda við­skipta. Sé litið á fjölda við­skipta má sjá að þró­unin síð­ustu mán­uði hefur verið breyti­leg hvað fjöl­býli varðar eftir að veru­lega dró úr fjölda við­skipta í apríl.

Þetta var meðal þess sem var gert að umtals­efni í Hagsjá Lands­bank­ans. Tölur um fjölda við­skipta fyrir fjöl­býli eru nú mun lægri en fyrir ári síðan. Fjöldi við­skipta með sér­býli er hins vegar ívið minni en fyrir ári og hefur minnkað stöðugt frá því í maí.

Sé litið á með­al­tal júní til ágúst hefur við­skiptum fækkað um 5% frá því í fyrra. Sé fjöldi við­skipta til lengri tíma skoð­aður er nokkuð ljóst að tími sam­fellds vaxtar milli ára er lið­inn, alla­vega í bili. Sé með­al­fjöldi við­skipta á þessu ári bor­inn saman við sömu stærðir á síð­ustu árum má sjá að dregið hefur úr við­skiptum bæði með fjöl­býli og sér­býli.

Vextir lækka

Eitt af því sem nú vinnur með hækkun fast­eigna­verðs er áfram­hald á lágri verð­bólgu (1,4 pró­sent) og lágir vextir. Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur lækkað vexti að und­an­förnu, og nú í byrjun mán­að­ar­ins voru stýri­vextir lækk­aðir í 4,25 pró­sent. Það sem skiptir þó einna mestu máli, er að lána­kjör lán­veit­enda hafa verið að batna mikið að und­an­förnu. Þar eru líf­eyr­is­sjóðir leið­andi, en vextir sem þeir bjóða á hús­næð­is­lánum eru mun lægri en bank­arnir hafa verið að bjóða.

Á und­an­förnum mán­uðum hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir verið að styrkja sig á hús­næð­is­lána­mark­aði og nema útlán þeirra um 130 millj­örðum frá árinu 2015 þegar þeir hófu mark­visst að auka hlut­deild sína á mark­aði.

Við­skipta­bank­arnir hafa kvartað sáran undan þessu, og hafa sagt að mun­ur­inn á vaxta­kjör­unum byggi á því að bank­arnir þurfi að greiða skatta og gjöld sem líf­eyr­is­sjóð­irnir þurfi ekki. Því sé sam­keppnin skökk. En fyrir neyt­endur má segja að þetta sé frekar til góðs, þar sem fleiri og fjöl­breytt­ari mögu­leikar eru í boði.

Erfitt er að full­yrða um það, hvort fast­eigna­verð muni halda lengi áfram að hækka eða taki að lækka innan skamms. Það sem mestu skiptir fyrir þá þróun, er hvort staða efna­hags­mála mun hald­ast góð áfram eða ekki. Ef það fer að bera á því að ferða­þjón­ustan missi byr í seglum þá gæti það til dæmis haft mikil marg­feld­is­á­hrif í hag­kerf­inu.

En eins og jafnan er með fast­eigna­við­skipti, þá eru for­sendur fólks fyrir kaupum og sölu breyti­legar. Það sem er góður tími fyrir við­skipti hjá einum, geta verið slæm tíma­setn­ing hjá öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár