26 einstaklingar eiga meiri auð en fátækari helmingur heimsbyggðarinnar

Í nýrri skýrslu Oxfam kemur fram að hinir ríku í heim­inum eru að verða rík­ari og hinir fátæk­ari að verða fátæk­ari. Þá fela hinir ofur­ríku mörg hund­ruð þús­und millj­arða króna frá skatt­yf­ir­völdum.

Bilið milli fátækra og ríkra í heiminum er að aukast samkvæmt nýrri skýrslu Oxfam.
Bilið milli fátækra og ríkra í heim­inum er að aukast sam­kvæmt nýrri skýrslu Oxfam. Mynd: Úr safni.

Ríkustu 26 ein­stak­lingar í heimi eiga jafn­mik­inn sam­an­lagðan auð og fátæk­ari helm­ingur heims­byggð­ar­innar, eða 3,8 millj­arðar manna. Á árinu 2018 urðu hinir ríku enn rík­ari og hinir fátæk­ustu fátæk­ari. Árið 2017 þurfti 43 millj­arða­mær­inga til að eiga jafn mikið og fátæk­asti helm­ingur mann­kyns.

[links]Þá eru hinir ofur­ríku að fela sam­tals um 7,6 trilljónir dala, 810 þús­und millj­arðar íslenskrar króna frá skatt­yf­ir­völdum víðs vegar um heim­inn og fyr­ir­tæki fela auk þess gríð­ar­legar fjár­hæðir í skatta­skjólum fjarri þeim löndum þar sem arð­semi þeirra verður til. Þessi til­hneig­ing auð­stétt­ar­innar, að greiða ekki skatta í sam­ræmi við lög og reglur heldur fela auð sinn frá skatt­heimtu, gerir það að verkum að þró­un­ar­lönd verða af 171 millj­arði dala, eða 20.570 millj­örðum króna á ári hverju vegna skatta sem skila sér ekki.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Oxfam-sam­tak­ana um mis­skipt­ingu auðs, sem gerð var opin­ber í dag.

Ríkari aldrei verið ríkari

Á þeim ára­tug sem lið­inn er frá því að alþjóð­leg efna­hag­skreppa reið yfir heim­inn hefur fjöldi millj­arða­mær­inga nán­ast tvö­fald­ast. Auður þeirra sem áttu yfir millj­arð dali, eða meira en 121 millj­arð króna, jókst um 900 millj­arða dala, 108.900 millj­arða króna, í fyrra. Millj­arða­mær­ingar heims­ins eiga nú meiri auð en nokkru sinni áður í heims­sög­unni.

[adspot]Ríkasti maður heims er Jeff Bezos, stofn­andi og aðal­eig­andi Amazon. Auður hans jókst um 112 millj­arða dala, 13.522 millj­arða króna, í fyrra. Í skýrslu Oxfam kemur fram að eitt pró­sent af heild­ar­auð Bezos sé jafn mikið af pen­ingum og fara í heil­brigð­is­mál í Eþíópíu, þar sem 105 millj­ónir manns búa.

Fátækustu bera meiri byrðar en ríkustu

Á sama tíma og auð­söfnun þeirra rík­ustu er í mik­illi sókn, sam­kvæmt sam­an­tekt Oxfam, þá njóta þeir sem til­heyra hópnum, og fyr­ir­tækin sem þeir eiga, líka hag­stæð­ari skatta­skil­yrða en þeir hafa notið í ára­tugi.

Oxfam bendir á að auður sé ekki skatt­lagður nema að litlum hluta. Þannig komi til að mynda ein­ungis fjögur pró­sent af öllum skatt­tekjum til vegna auð­legð­ar­skatta. Í ríkum löndum þá lækk­uðu hæstu tekju­skattar úr 62 pró­sent árið 1970 í 38 pró­sent árið 2013 og í þró­un­ar­lönd­unum er hæsta tekju­skatts­hlut­fall 28 pró­sent.

Skýrslan bendir á að í Brasilíu og Bret­landi séu fátæk­ustu tíu pró­sent lands­manna farin að greiða hærra hlut­fall af launum sínum í skatt en rík­ustu tíu pró­sentin.

Leggja til endurhannað alþjóðlegt skattkerfi

Skýrsla Oxfam er birt á sama degi og við­skipta­ráð­stefnan í Davos í Sviss, þar sem margt áhrifa­mesta fólk heims­ins á sviði stjórn­mála og við­skipta kemur saman til skrafs og ráða­gerða, er sett.

Í henni eru lagðar fram þrjár lykil til­lögur um það hvernig megi vinna gegn vax­andi ójöfn­uði. Sú fyrsta er að bjóða upp á gjald­frjálsa heil­brigð­is­þjón­ustu, menntun og aðra opin­bera þjón­ustu um heim allan sem nái einnig til kvenna og stúlkna. Oxfam hvetur til þess að einka­væð­ingu opin­berrar þjón­ustu verði hætt, að allir fái eft­ir­laun, barna­bætur og aðrar greiðslur sem tryggi félags­legt rétt­læti fyrir alla.

[adspot]Í öðru lagi leggur Oxfam til að rík­is­stjórnir um allan heim leggi sig fram við að auka svig­rúm millj­óna kvenna sem eyða hverjum degi í að sjá um fjöl­skyldur sínar og heim­ili án launa. Með því að fjár­festa í opin­berri þjón­ustu sem dragi úr þörf kvenn­anna á því að nota jafn mikið af tíma sínum í slík ólaunuð störf, t.d. með auk­inni barna­gæslu, aðgengi að vatni og raf­magni, þá sé hægt að ná þessu mark­miði.

Í þriðja lagi leggur Oxfam til að það verði hætt að und­ir­skatt­leggja ríka ein­stak­linga og fyr­ir­tæki með því að ein­fald­lega hækka skatta á þá og koma í veg fyrir skattaund­an­skot þeirra með sam­eig­in­legum aðgerðum. Það sé hægt með því að ná sam­komu­lagi um nýtt alþjóð­legt reglu­verk og með því að setja upp nýjar alþjóð­legar stofn­anir til að fram­fylgja því. Með þessu væri í raun verið að end­ur­hanna skatta­kerfi heims­ins í grund­vall­ar­at­riðum til að gera það rétt­lát­ara og hleypa þró­un­ar­löndum að ákvörð­un­ar­töku til jafn við rík­ari lönd heims­ins.

Hægt er að lesa skýrslu Oxfam í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár