Á síðustu árum hafa skilin milli stétta á Íslandi orðið skýrari. Það er tilfinnanlegur munur á þeim efnahagslega veruleika sem fólk á Íslandi býr í og bilið hefur breikkað eftir því að sem hagkerfið hefur styrkst.
Stétt fjármagnseigenda hefur aukið auð sinn hratt og örugglega og styrkt stöðu sína jafnt og þétt með tilheyrandi hraðri aukningu á umsvifum eigna þeirra.
Á sama tíma hefur staða lágtekjuhópa versnað umtalsvert sökum þess að dregið hefur úr bótagreiðslum til þeirra, skattbyrði þeirra aukist og húsnæðiskostnaður hefur hækkað hraðar en kaupmáttur launa þeirra hefur aukist. Þá þykir húsnæðisöryggi hinna verst settu ekki viðunandi og aðgengi þeirra að viðeigandi húsnæði hefur dregist saman.
Þessar tvær stéttir eru á sitt hvorum endanum á lífsgæðastiganum á Íslandi. Þar á milli er síðan stór millistétt sem hefur líka verið klofin í tvennt; í þá sem á fasteignir og og þá sem hefur ekki haft tök á því að eignast slíkar.
Niðurstaðan er togstreita milli stétta sem á sér fá fordæmi hérlendis, og birtist meðal annars í því sem nýir leiðtogar verkalýðshreyfingarinnar kalla stéttastríð.
229 fjölskyldur eiga 237 milljarða króna
Það hefur verið gríðarlegur uppgangur í íslensku efnahagslífi á síðustu árum. Hann hefur skilað því að eigið fé landsmanna, eignir þeirra þegar búið er að draga skuldir frá, hefur farið úr því að vera 1.565 milljarðar króna í lok árs 2010 í að vera 4.103 milljarðar króna um síðustu áramót. Því hafa orðið til 2.538 nýir milljarðar króna á umræddu tímabili. Þeir hafa skipst misjafnlega niður á landsmenn.
Auður ríkasta eins prósents landsmanna, alls 2.290 fjölskyldna, hefur til að mynda aukist um 270 milljarða króna frá árslokum 2010, sem þýðir að tæplega ellefu prósent nýs auðs hefur farið til þess hluta landsmanna. Alls átti þessi hópur 719 milljarða króna í lok árs 2017.
Þegar enn minni hópur, 0,1 prósent ríkustu fjölskyldur landsins, alls 229 slíkar, er skoðaður kemur í ljós að hann á tæplega 237 milljarða króna. Auður þeirra sem tilheyra þessu ríkasta lagi þjóðfélagsins hefur aukist um tæpa 75 milljarða króna frá árslokum 2010. Meðaleign hverrar fjölskyldu sem tilheyrir þessum hópi er því rúmur milljarður króna. Og hver og ein þeirra jók eign sína að meðaltali um 328 milljónir króna á tímabilinu. Á árinu 2017 einu saman jókst auður þessa hóps um 35,3 milljarða króna, eða um 154 milljónir króna á hverja fjölskyldu.
Eiga meira en hagtölur segja til um
Eignir þessa hóps eru vanmetnar í þessum tölum, þar sem eign í hlutabréfum er færð til eignar á nafnvirði, ekki markaðsvirði, sem er vanalega miklu hærra. Sem dæmi er nafnvirði allra hlutabréfa í Icelandair Group um 4,8 milljarðar króna en markaðsvirði félagsins er vel yfir 50 milljarðar króna. Það þýðir að sá sem á t.d. hlutabréf í Icelandair sem eru að nafnvirði skráð á 100 milljónir króna gæti selt sömu bréf á yfir einn milljarð króna.
Efsta lag landsmanna á nær öll verðbréf sem eru í eigu einstaklinga hérlendis. Ríkustu tíu prósent þeirra eiga til að mynda 87 prósent allra slíkra verðbréfa. Vert er að taka fram að lífeyrissjóðir landsins eru langstærstu eigendur verðbréfa – þeir eiga tæplega 70 prósent markaðsskuldabréfa og víxla hérlendis – og eign þeirra er ekki talin með í ofangreindum tölum.
Þá vantar líka inn í tölurnar allar þær eignir sem Íslendingar eiga erlendis, og eru ekki taldar fram til skatts hérlendis. Í skýrslu sem unnin var fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið, og birt var í janúar 2017, kom meðal annars fram að aflandsfélagavæðing íslensks fjármálakerfis hefði haft tugi milljarða króna af íslenskum almenningi í vangoldnum skattgreiðslum og búið til gríðarlegan aðstöðumun þeirra sem hafa, bæði löglega og ólöglega, getað falið fé í erlendum skattaskjólum þegar illa árar í íslensku efnahagslífi en stýrt fé aftur heim til að kaupa eignir á brunaútsölu í niðursveiflum.
Þeir sem hagnast í uppsveiflum og á niðursveiflum
Þetta er yfirstétt landsins. Hún hefur hagnast mikið á örfáum árum, og hefur raunar tilhneigingu til að koma betur úr bæði hæðum og lægðum í efnahagslífinu. Ríkasta 0,1 prósent landsmanna næstum þrefaldaði til að mynda eigið fé sitt í góðærinu fyrir bankahrun. Á meðan að verðbólga og gengisfall brenndi upp eignir launamanna á Íslandi eftir hrunið héldust eignir þessa hóps nokkuð stöðugar. Og síðustu þrjú ár hafa þær vaxið hratt. Aldrei þó hraðar en á árinu 2017 þegar heilir 35,3 milljarðar króna bættust við eign hópsins. Það þýðir að tæplega helmingur alls þess nýja auðs sem safnast hefur saman hjá 0,1 prósent ríkustu Íslendingunum frá árslokum 2010, féll til í fyrra. Sú upphæð var líka tæplega fimm prósent af öllum nýjum auð sem varð til í landinu, og dreifðist til einstaklinga, á árinu 2017.
Innan þessa hóps er fólkið sem kann á íslenskt efnahagskerfi. Sem veit hvenær það á að koma eignum sínum í skjól utan lands áður en að krónan byrjar að síga og hvenær á að koma með þær aftur til baka til að innleysa gengishagnað og kaupa eignir á afslætti.
Um þessar mundir virðist vera sá tími í hagsveiflunni sem hluti þess hóps sem á mikinn sparnað er að færa hann í aðra gjaldmiðla. Um miðjan október síðastliðinn, þegar íslenska krónan hafði veikst um 7,5 prósent á innan við mánuði, sagði Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, við Vísi að veikinguna mætti meðal annars rekja til þess að innlendir aðilar hefðu „verið að flytja hluta af sparnaðinum sínum í erlenda mynt.“
Vert er að taka fram að ríkasta eitt prósent, eða 0,1 prósent, þjóðarinnar er ekki föst breyta. Þetta er ekki alltaf saman fólkið, þótt að gera megi ráð fyrir því að lítil breyting sé á því hverjir séu í þessu efsta lagi milli ára. Samhliða því að Íslendingum hefur fjölgað þá hefur eðlilega fjölgað í hverjum eignarbilshópi.
Þeir sem eiga, og hinir sem leigja
Um 70 prósent landsmanna sem eru eldri en 18 ára búa í eigin húsnæði. Það hlutfall hefur farið minnkandi á undanförnum áratug, en í desember 2008 var það 78 prósent. Stærsti hluti þessa hóps tilheyrir því sem við köllum millistétt. Innan hennar rúmast stærstur hluti þjóðarinnar og þar þrífst fremur lítill heildar tekjuójöfnuður.
Frá upphafi árs 2011 hefur íbúðaverð á Íslandi tvöfaldast. Ástæðurnar fyrir því eru margþættar. Uppsöfnuð eftirspurn var langt umfram framboð, fjölgun ferðamanna hefur gert það að verkum að sífellt meira af íbúðarhúsnæði hefur farið undir að hýsa slíka, fjöldi erlendra ríkisborgara sem búa á Íslandi hefur aukist um 22.500 – um 108 prósent –, og fasteignir hafa orðið mun stærri hluti af fjárfestingum fjármagnseigenda en var hér áður fyrr.
Á sama tíma hafa vaxtakjör batnað mjög, verðbólga hélst undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans í meira en fjögur ár og hið opinbera réðst í stórtækar aðgerðir undir hatti Leiðréttingarinnar sem í fólst tugmilljarða króna tilfærsla á fé úr sameiginlegum sjóðum til þeirra sem áttu, og eiga, húsnæði.
Eigið fé þjóðarinnar sem heildar sem bundið er í fasteignum hefur fyrir vikið aukist um 2.030 milljarða króna frá árslokum 2010. Það hefur tæplega þrefaldast.
Ef ríkustu tíu prósent landsmanna eru tekin út fyrir sviga þá kemur í ljós að 95 prósent eigin fjár 90 prósent íslenskra fjölskyldna er bundið í fasteignum. Tvöföldun á fasteignaverði hefur því gert það að verkum að mjög hefur dregið á milli þeirra sem tilheyra þess hluta íslenskrar millistéttar sem á eigið húsnæði og þess hlutar sem leigir slíkt. Fyrri hópurinn hefur eignast mikið eigið fé á síðustu árum á meðan sá síðari hefur ekki eignast neitt.
Ein birtingarmynd þessa er að eigið fé þess helmings þjóðarinnar sem á minnstar eignir farið úr því að vera neikvætt um 346,4 milljarða króna í að vera neikvætt um 132,1 milljarð króna. Eiginfjárstaða þessa helmings þjóðarinnar, sem í fyrra taldi 107 þúsund framteljendur, batnað um 214,3 milljarða króna á fimm árum.

Það þýðir að eiginfjárstaða hins helmings þjóðarinnar, sem á mestar eignir hverju sinni, hefur batnað um 1.835 milljarða króna á sama tímabili. Þar hefur staða 20 prósent ríkustu landsmanna batnað langmest, en sá hópur, sem alls telur 43.071 fjölskyldur, átti 1.334 milljörðum krónum meira í eigin fé um síðustu áramót en ríkustu 20 prósent landsmanna áttu í árslok 2012.
Lágtekjuhópar setið eftir
Þeir sem hafa farið verst út úr síðustu árum eru lágtekjuhóparnir, þeir sem eru með minnst á milli handanna og eiga litlar eða engar eignir. Skattbyrði þeirra hefur til að mynda aukist mest allra hópa frá árinu 1998 og þannig hefur ríkið tekið til sín meira af kaupmáttaraukningu lágtekjuhópa vegna vaxandi skattbyrði en þeirra sem eru með hærri tekjur. Innan þessa hóps er fólkið sem sinnir lægst launuðustu störfunum – oft slítandi þjónustu- eða verkamannastörfum – , gamalt fólk, öryrkjar, fólk sem glímir við félagslegan vanda og sístækkandi hópur útlendinga sem flyst hingað til lands til að manna störfin sem góðæri síðustu ára hefur búið til.
Samtímis hefur dregið mjög úr tekjujöfnunarhlutverki ríkissjóðs og bótagreiðslur dregist saman. Alls fækkaði fjölskyldum sem fengu barnabætur hérlendis um tólf þúsund milli áranna 2013 og 2016, en fjölgaði lítillega aftur á síðasta ári eftir að heildargreiðslur voru hækkaðar. Vaxtabætur sem greiddar voru út voru átta milljarðar króna árið 2013 en þrír milljarðar króna í fyrra. Þeim sem fá slíkar greiddar hefur fækkað um 23 þúsund á tímabilinu.
Íbúðaverð hefur sömuleiðis hækkað mun meira en tekjur, eða um 28 prósent frá árinu 2012. Þeir sem hafa setið fastast eftir á íbúðamarkaði vegna þessa eru tekjulágir og þeir eru mun ólíklegri til að eiga fasteign í dag en þeir voru árið 2012. Tekjuháir eru hins vegar enn jafn líklegir til slíks og áður.
Þessi hópur getur ekki tekið þátt í kaupum á húsnæði eins og staðan er í dag. Verðið er of hátt, það uppfyllir ekki skilmála lána og gríðarlegur skortur er á húsnæði sem hentar hópnum. Allt of hægt gengur að mæta þessari eftirspurn og sífellt bætast fleiri í hóp hinna þurfandi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





























Athugasemdir