Allir flokkar mynda saman meirihluta á Akureyri

Allir sex flokk­arnir í bæj­ar­stjórn Akur­eyrar hafa kom­ist að sam­komu­lagi um að mynda meiri­hluta út kjör­tíma­bilið. Þetta er gert vegna erf­ið­leika í rekstri bæj­ar­ins vegna efna­hags­legra áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Öll sex stjórn­mála­öflin sem eiga sæti í bæj­ar­stjórn Akur­eyrar ætla að mynda saman nýjan meiri­hluta í bænum, en breyt­ing­arnar verða kynntar á blaða­manna­fundi í menn­ing­ar­hús­inu Hofi í hádeg­inu.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var þessi ákvörðun tekin vegna erf­ið­leika í rekstri bæj­ar­ins vegna efna­hags­legra áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Viðræður flokk­anna um þetta fyr­ir­komu­lag hafa staðið yfir und­an­farna daga.

Sam­starfið í bæj­ar­stjórn Akur­eyr­ar­bæjar er sagt hafa verið gott þvert á flokka og því talið skyn­sam­legt að mynda sam­stíga meiri­hluta allra flokka til þess að takast á við það verk­efni að vinna sveit­ar­fé­lagið út úr rekstr­ar­vand­anum sem far­ald­ur­inn hefur valdið.

Sex manna meiri­hluti Sam­fylk­ingar, L-lista og Fram­sókn­ar­flokks hefur verið starf­andi frá síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, en hvert fram­boð hefur tvo full­trúa í bæj­ar­stjórn­inni.

Sjálf­stæð­is­flokkur var stærsti flokk­ur­inn eftir kosn­ingar og hefur þrjá full­trúa í bæj­ar­stjórn, en sjálf­stæð­is­menn hafa verið í minni­hluta ásamt einum full­trúa frá bæði Vinstri grænum og Mið­flokknum.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans munu full­trúar þeirra flokka sem nú eru í minni­hluta taka við for­mennsku í þeim nefndum bæj­ar­ins sem í dag er stýrt af öðrum full­trúum meiri­hluta­flokk­anna en kjörnum full­trúum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár